Félag í eigu Björgólfs Thors byggir nýjan miðbæ í Þorlákshöfn

Arn­ar­hvoll, félag í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar fjár­festis, hefur samið við bæj­ar­yf­ir­völd í Ölfusi um upp­bygg­ingu nýs mið­bæjar í Þor­láks­höfn. Minni­hluti bæj­ar­stjórnar telur vinnu­brögð meiri­hlut­ans ekki boð­leg.

200 metra göngugata, skrifstofur, íbúðahúsnæði og verslanir verða hluti af nýjum miðbæ Þorlákshafnar. Framkvæmdafélga í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis hefur gert drög að samningi við Ölfus um framkvæmdir á svæðinu.
200 metra göngu­gata, skrif­stofur, íbúða­hús­næði og versl­anir verða hluti af nýjum miðbæ Þor­láks­hafnar. Fram­kvæmda­félga í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar fjár­festis hefur gert drög að samn­ingi við Ölfus um fram­kvæmdir á svæð­inu. Mynd: Ölfus

Drög að samn­ingi við fram­kvæmda­fé­lagið Arn­ar­hvol um upp­bygg­ingu nýs mið­bæjar í Þor­láks­höfn voru sam­þykkt á bæj­ar­stjórn­ar­fundar í Ölfusi í lok síð­asta mán­aðar. Arn­ar­hvoll er í eigu Andra Sveins­sonar, Árna Geirs Magn­ús­sonar, Birgis Más Ragn­ars­sonar, Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar og Karls Þrá­ins­sonar, sem er jafn­framt fram­kvæmda­stjóri Arn­ar­hvols.

Full­trúar sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss hafa til skamms tíma átt í við­ræðum við fram­kvæmda­fé­lagið Arn­ar­hvol um mögu­lega aðkomu þeirra að bygg­ingu mið­bæjar í Þor­láks­höfn. „Við­ræð­urnar hafa verið byggðar á gild­andi aðal­skipu­lagi með áherslu á hvernig nýta má svæðið í kringum Sel­vogs­braut­ina til að skapa mann­eskju­legan og fal­legan miðbæ,“ segir í fund­ar­gerð bæj­ar­stjórnar frá 28. apríl sl.

Í umfjöllun Hafn­ar­frétta kemur fram að nýi mið­bær­inn muni mót­ast af 200 metra langri göngu­götu þar sem gera má ráð fyrir skrif­stofum, versl­unum, þjón­ustu og íbúða­byggð, auk opinna svæða og torga. Í fund­ar­gerð bæj­ar­stjórnar kemur einnig fram að sveit­ar­fé­lagið og Arn­ar­hvoll hafi rætt mögu­lega sam­vinnu um bygg­ingu fjöl­nota menn­ing­ar­salar í nýja mið­bænum sem myndi meðal ann­ars nýt­ast fyrir tón­list­ar­við­burði og ýmis konar lista­sýn­ingar.

Arnarhvoll fái lóðum úthlutað í nýja miðbænum

Í fund­ar­gerð­inni kemur fram að Arn­ar­hvoll hafi lýst áhuga á að standa að metn­að­ar­fullri upp­bygg­ingu mið­bæj­ar­kjarna í Þor­láks­höfn. Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri gerði einnig grein fyrir fyrstu hug­myndum um skipu­lag nýja mið­bæj­ar­ins á fundi bæj­ar­stjórnar þegar drög samn­ings­ins voru kynnt.

[adspot]Drögin að sam­komu­lag­inu gera ráð fyrir að Arn­ar­hvoll og sveit­ar­fé­lagið mæli fyrir um sam­starf um skipu­lag svæð­is­ins, gatna­gerð, lagna­kerfi og rétt Arn­ar­hvols til að fá lóð­unum á svæð­inu úthlutað, með þeim fyr­ir­vara að nýtt aðal- og deiliskipu­lag taki gildi fyrir svæðið, og að félagið skuld­bindi sig til upp­bygg­ingar nýja mið­bæj­ar­ins á grund­velli hins nýja deiliskipu­lags þannig að á svæð­inu rísi „eft­ir­sókn­ar­verð, hag­kvæm og aðlað­andi byggð sem styrki Sveit­ar­fé­lagið Ölfus í sessi sem eft­ir­sókn­ar­verðan búsetu­kost,“ að því er segir í fund­ar­gerð­inni.

Vissu af áformunum tveimur sólarhringum fyrir fund

Bæj­ar­full­trúar O-list­ans, fram­fara­sinna og félags­hyggju­fólks, sem mynda minni­hluta í bæj­ar­stjórn, lögðu fram bókun á fund­inum þar sem gagn­rýnt er að minni­hlut­inn hafi fyrst vitað af þessum hug­myndum um nýjan miðbæ rúmum tveimur sól­ar­hringum fyrir bæj­ar­stjórn­ar­fund­inn þar sem drög sam­komu­lags­ins voru tekin fyrir. „Engin umræða hefur átt sér stað innan bæj­ar­stjórnar um að afhenda einum aðila mið­bæj­ar­svæðið án aug­lýs­ingar og teljum við þau vinnu­brögð ekki boð­leg,“ segir í bókun O-list­ans, þar sem er þó tekið fram að bæj­ar­full­trúar O-list­ans styðji heils­hugar upp­bygg­ingu mið­bæj­ar­svæð­is­ins.

Bæj­ar­full­trúar O-list­ans telja það for­kast­an­legt að ekki sé horft til þess að aug­lýsa eftir áhuga­sömum aðilum í tengslum við upp­bygg­ingu mið­bæj­ars­ins.

Enginn í meirihlutanum með tengsl við Arnarhvol

Tillögu minni­hlut­ans um frestum afgreiðslu máls­ins var hafnað. Í bókun D-lista Sjálf­stæð­is­flokks er full­yrt að bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans höfðu sama tæki­færi til að kynna sér málið og bæj­ar­full­trúar meiri­hlut­ans. Þannig hafi allir tíma­frestir verið í sam­ræmi við gild­andi reglur og fund­ar­gögn hafi verið send út með til­greindum tíma og afgreidd í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu. Í bók­un­inni er einnig sér­stak­lega tekið fram að „eng­inn sem að mál­inu hefur komið hefur nokkur fyrri tengsl við Arn­ar­hvol, eig­endur þess að þá starfs­menn sem koma að mál­inu“.

Tillaga meiri­hlut­ans um að sam­þykkja sam­komu­lagið var sam­þykkt með fjórum atkvæðum D-lista gegn þremur atkvæðum O-lista. Í aðsendri grein í Hafn­ar­fréttum segj­ast fram­bjóð­endur í efstu fjórum sætum D-list­ans í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingnum næst­kom­andi laug­ar­dag vera bjart­sýn á að hönnun og skipu­lagi á nýja mið­bænum ljúki innan skamms og fljót­lega upp úr því geti fram­kvæmdir haf­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byggingaframkvæmdir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár