Um þrír milljarðar jarðarbúa hafa ekki fengið einn einasta skammt

Á síð­ustu mán­uðum hefur fram­leiðsla á bólu­efnum og dreif­ing þeirra auk­ist til muna. Það eru hins vegar ekki fátæk­ustu ríki heims sem eru að fá skammt­ana, líkt og stefnt var að.

Ávaxtasali fer um götur Kampala með varning sinn á reiðhjóli.
Ávaxta­sali fer um götur Kampala með varn­ing sinn á reið­hjóli.

Aðeins lít­ill hluti þess bólu­efnis sem dreift hefur verið um heims­byggð­ina hefur ratað til fátæk­ustu íbú­anna. Gjáin milli ríkra og fátækra, sem var djúp fyrir, hefur því dýpkað enn meira vegna far­ald­urs COVID-19. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rann­sókn Þró­un­ar­á­ætl­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNDP).

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum setti Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) fram það metn­að­ar­fulla mark­mið að 70 pró­sent allra jarð­ar­búa yrðu bólu­settir um mitt árið 2022. Þá höfðu aðeins rétt rúm­lega þrjú pró­sent íbúa fátæk­ustu ríkj­anna fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni en yfir 60 pró­sent íbúa þeirra efna­meiri.

Nú, sex mán­uðum síðar, erum við ekki einu sinni að nálg­ast það að ná þessu mark­miði WHO.

[adspot]

Fram­leiðsla á bólu­efnum hefur auk­ist stór­kost­lega á þessum tíma en einnig ójöfn­uður þegar kemur að dreif­ingu þeirra. Aðeins eitt pró­sent af þeim tæp­lega 11 millj­örðum skammta sem hefur verið dreift hefur ratað til efna­minni landa.

„Þetta þýðir að 2,8 millj­arðar manna í heim­inum eru enn að bíða eftir að fá sína fyrstu sprautu,“ segir til­kynn­ingu UNDP. Stofn­unin segir að þessi mis­munun stefni öryggi og heilsu allra í hættu. Ekki aðeins auki þetta hætt­una á því að far­ald­ur­inn drag­ist á lang­inn heldur hægi einnig á efna­hags­bata heilu land­anna – landa sem geta þá ekki greitt af lánum sínum eða fjár­fest í grunn­þjón­ustu. Atvinnu­leysi er enn útbreitt og skuldir fólks og heim­ila hækka.

Ríkin sunnan Sahara verst sett

Rannsókn UNDP leiddi í ljós að Afr­íku­ríki sunnan Sahara, m.a. Búrúndi og Austur-Kongó eru verst sett. Þar er innan við eitt pró­sent íbúa bólu­sett. Utan Afríku eru Haítí og Jemen í verstu stöð­unni en þar eru innan við tvö pró­sent íbúa bólu­sett.

UNDP segir að ef efna­minni ríki hefðu haft sama bólu­setn­ing­ar­hlut­fall og þau efna­meiri í sept­em­ber á síð­asta ári (um 54 pró­sent) hefði verg lands­fram­leiðsla þeirra verið 16 millj­örðum Banda­ríkja­dala meiri í fyrra en raun bar vitni. Þau ríki sem töp­uðu mest af órétt­látri dreif­ingu bólu­efna í far­aldr­inum sam­kvæmt grein­ingum UNDP eru Eþíópía, Austur-Kongó og Úganda.

[adspot]

Þótt far­ald­ur­inn og aðgerðir vegna hans hafi komið illa niður á vinn­andi fólki alls staðar í heim­inum er him­inn og haf á milli áhrif­anna sem fólk í efna­meiri ríkjum varð fyrir og þeirra efna­minni. Ríkari lönd fóru í rík­is­kass­ann og greiddu út alls konar bætur og styrki en því var og er almennt ekki fyrir að fara í fátæk­ari löndum. Raunin er sú að bóta­greiðslur, ef ein­hverjar voru, dróg­ust saman enda engir djúpir rík­is­kassar að grafa í.

Brýnt er að leið­rétta þessa órétt­látu dreif­ingu bólu­efna sem fyrst og auka á sama tíma aðgang að fjár­magni, svo sem í gegnum Alþjóða gjald­eyr­is­sjóð­inn, að mati UNDP.

„Ef ekki verður tekið á ójafnri dreif­ingu bólu­efna sem fyrst þá verða afleið­ing­arnar grafal­var­legar,“ segir í skýrslu UNDP. Líkt og Michelle Bachelet, yfir­maður mann­rétt­inda­mála hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum segir, þá þarf að auka sam­vinnu ríkja til að dreifa bólu­efnum til að ná því sam­eig­in­lega mark­miði að stöðva fram­gang far­ald­urs­ins alls staðar. Áfram­hald­andi ójöfn­uður mun ýta undir mis­rétti, átök og ofbeldi og upp­bygg­ing hag­kerfa efna­minni landa, sem náðst hefur árangur í síð­ustu ár, tap­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár