Um 500 manns greinst tvisvar eftir að ómíkron-bylgja hófst

Hægt er að end­ur­sýkast af und­ir­af­brigði ómíkron þótt það sé lík­lega sjald­gæft. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir við Kjarnann að hann telji því ekki sér­staka nýja hættu á ferðum vegna þessa en að fjöl­mörg „ef“ séu til staðar um fram­haldið.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Upp­sveifla er á ný í far­aldri COVID-19 í að minnsta kosti átján Evr­ópu­löndum. Smitum fjölgar m.a. í Bret­landi, Frakk­landi, á Ítalíu og í Þýska­landi og sagði Hans Kluge, yfir­maður Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO), í gær að hörðum tak­mörk­unum sem settar voru á er ómíkron-afbrigðið kom fram á sjón­ar­sviðið hafi verið aflétt of skarpt þegar ljóst var að sjúk­dóms­ein­kenni eru almennt væg­ari en af fyrri afbrigðum kór­ónu­veirunnar. Tak­mark­anir vegna ómíkron hafi verið „of miklar“ en svo skyndi­lega „of litlar“ og á of stuttum tíma. Smitum fækk­aði hratt í lok jan­úar eftir stærstu bylgj­una hingað til en hefur farið fjölg­andi síð­ustu daga og vikur. Fimm millj­ónir nýrra til­fella hafa greinst í Evrópu síð­ustu viku og 12.500 manns með COVID-19 hafa lát­ist. Kluge segir „nýja umferð“ af sýk­ingum í álf­unni hafna sem rekja megi til und­ir­af­brigðis ómíkron; BA.2.

[adspot]

Það er hægt að end­ur­sýkj­ast af þessu und­ir­af­brigði, segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir við Kjarnann, en það er senni­lega mjög sjald­gæft. Af þeim sem greinst hafa á Íslandi eftir 1. des­em­ber, þ.e. eftir að ómíkrón-bylgjan hófst, hafa tæp­lega 500 manns greinst tvisvar. Á þessu tíma­bili hafa 170 þús­und manns greinst með veiruna.

Hann seg­ist ekki hafa af þessu sér­stakar áhyggjur. Um 11 pró­sent þeirra sem sýkt­ust af öðrum afbrigðum á fyrri stigum far­ald­urs­ins end­ur­sýkt­ust af ómíkron. Hins vegar er ekki hægt að gera grein­ar­mun á BA.1 (ómíkrón) og BA.2 (und­ir­af­brigð­inu) í gögnum íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda.

Sennilega fyrr á ferðinni en aðrar þjóðir

En eigum við von á nýrri bylgju smita, líkt og hafin er í nokkrum löndum Evrópu?

„Ólíklega eins og staðan er núna,“ segir Þórólfur. „Við erum búin að ganga í gegnum ómíkron-bylgj­una og smit eru núna á nið­ur­leið hjá okkur. Við erum senni­lega fyrr á ferð­inni en margar þjóðir.“

Hvað síðan taki við sé óljóst. „Munum við fá ný afbrigði sem bólu­efnin vernda ekki gegn eða fyrri sýk­ingar? Mun verndin eftir bólu­setn­ingu eða nátt­úru­lega sýk­ingu ekki end­ast nema ein­hverja mán­uði og mun ómíkron þá aftur kom­ast á strik? Það eru fjöl­mörg „ef“ í þessu.“

Skoða að bjóða öldruðum fjórða skammtinn

Um 205 þús­und lands­menn hafa fengið örv­un­ar­skammt af bólu­efni gegn COVID-19. Flestir fengu örvun sína í lok síð­asta árs eða byrjun þessa árs. Ein­stak­lingum með und­ir­liggj­andi ónæm­is­vanda­mál stendur nú til boða að fá fjórðu bólu­setn­ing­una að sögn Þórólfs. „Til skoð­unar er að bjóða öldruðum fjórða skammt því þar gæti ávinn­ing­ur­inn verið tals­verður. Á þess­ari stundu er ólík­legt að öllum verði boð­inn fjórði skammtur þar sem ávinn­ing­ur­inn hjá þeim er lík­lega ekki mik­ill með núver­andi bólu­efnum.“

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 93 ein­stak­lingar með COVID-19 lát­ist hér á landi. Þrír voru undir þrí­tugu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár