Teitur Björn nýr aðstoðarmaður Jóns

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur ráðið Teit Björn Ein­ars­son, lög­fræð­ing og vara­þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem nýjan aðstoð­ar­mann.

Teitur Björn Einarsson, nýr aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar.
Teitur Björn Ein­ars­son, nýr aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar. Mynd: Aðsend

Teitur Björn Ein­ars­son, lög­fræð­ingur og vara­þing­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, hefur verið ráð­inn sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra. Þetta stað­festir Brynjar Níelsson, annar aðstoð­ar­maður Jóns, í sam­tali við Kjarnann.

Teitur var kjör­inn á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi árið 2016, en hann hefur verið vara­þing­maður flokks­ins frá árinu 2017. Í síð­ustu kosn­ingum var hann í þriðja sæti á lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.[adspot]

Þetta er ekki fyrsta starf Teits sem aðstoð­ar­maður, en á árunum 2014-2016 var hann aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra. fyrir það starf­aði hann hjá lög­manns­stof­unum LOGOS og Opus, auk þesss sem hann var í for­svari fyrir fisk­vinnslu­fyr­ir­tækið Eyr­ar­odda hf. á Flateyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár