Sólveig og Viðar telja sótt að sér með ósannindum í vinnustaðaúttekt hjá Eflingu

Sólveig Anna Jóns­dóttir og Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi for­maður og fram­kvæmda­stjóri Eflingar, fengu ófagra umsögn í vinnu­staða­út­tekt hjá stétt­ar­fé­lag­inu. Viðar hafnar ásök­unum um kven­fyr­ir­litn­ingu og ein­elti, sem á hann eru bornar.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson.
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Viðar Þor­steins­son. Mynd: Facebook-síða Viðars

Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eflingar, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann segir að ásak­anir um ein­elti og kven­fyr­ir­litn­ing af hans hálfu, sem hafa í dag verið hafðar eftir starfs­mönnum Eflingar upp úr vinnu­staða­út­tekt sál­fræði­stof­unnar Líf og sálar, séu ósannar. Sólveig Anna Jóns­dóttir fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, sem sæk­ist eftir því að leiða félagið á ný, hefur sömu­leiðis fjallað um úttekt sál­fræði­stof­unnar í færslu á Facebook og segir bæði hana og Viðar „sitja undir því að vera ásökuð nafn­laust um ýmsa glæpi“ sem þau hafi ekki framið.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Eflingu sem barst á þriðja tím­anum segir meðal ann­ars frá því að sál­fræð­ingar á vegum Lífs og sálar telji „tölu­vert áhyggju­efni hve starfs­mönnum var tíð­rætt um kyn­bundna áreitni, ofbeldi og ein­elti af hálfu fram­kvæmd­ar­stjóra, að því er virð­ist í skjóli for­manns“.

Ýmsir helstu fjöl­miðlar lands­ins, þeirra á meðal mbl.is, Vísir og RÚV hafa í dag fjallað um nið­ur­stöður þess­arar úttektar. Í til­kynn­ing­unni frá Eflingu um málið segir að fjórir sál­fræð­ingar hafi tekið við­töl við 48 starfs­menn skrif­stof­unnar og að það meðal ann­ars verið þeirra mat að „fram­ganga fyrrum for­manns og fram­kvæmda­stjóra Eflingar gagn­vart starfs­manna­hópnum og svo ein­angrun þeirra á sinni veg­ferð, virð­ist hafa orðið til þess að þau náðu ekki hópnum með sér og átök og tog­streita jókst uns upp úr sauð.“

Þá hafi verið „tor­tryggni á báða bóga í byrjun sem virð­ist ekki hafa verið unnið í að eyða af hálfu stjórn­enda“ og það hafi gert bæði starfs­manna­hópnum og stjórn­endum „erfitt um vik að finna takt og sam­stöðu.“

„Að mati grein­ing­ar­að­ila virð­ast óund­ir­búnar breyt­ingar, léleg miðlun upp­lýs­inga, nei­kvæð fram­koma gagn­vart und­ir­mönnum og tíðar og óvæntar upp­sagnir hafa skapað óör­yggi og van­traust í hópnum. Virðist hafa skort mjög að hafa starfs­hóp­inn með í ráðum um hvernig hann gæti stutt við og eflt for­mann og stjórn og aðstoðað við að ná mark­miðum stjórn­enda í sínu starfi,“ segir einnig í til­kynn­ingu frá Eflingu um nið­ur­stöð­urnar.

Þar er jafn­framt haft eftir Lindu Dröfn Gunn­ars­dóttur fram­kvæmda­stjóra félags­ins að það sé ákveð­inn léttir fyrir skrif­stof­una að vinnu­staða­út­tekin sé komin fram.

Sólveig segir „einfaldlega ósatt“ að hún hafi ekki brugðist við ábendingum

Bæði Sólveig og Viðar brugð­ust við fregnum fjöl­miðla í dag áður en Efling sendi frá sér til­kynn­ingu þar sem nið­ur­stöð­unum er lýst. Hvorugt þeirra seg­ist hafa fengið að sjá nið­ur­stöð­urnar né tæki­færi til þess að svara fyrir sig.

„Og í dag heyri ég í fréttum að önnur “úttekt” hafi leitt í ljós að starfs­fólk skrif­stof­unnar hafi margoft leitað til mín til að segja mér af illri með­ferð en ég aldrei brugð­ist við.

Stað­reyndin er sú að þetta er ein­fald­lega ósatt. Í eitt skipti var komið til mín eftir króka­leiðum. Mér var sýnt sam­an­safn að ódag­settum og nafn­lausum upp­lif­unum ein­hverra sem störf­uðu á skrif­stof­unni. Ég mátti ekki halda papp­ír­unum eftir til að gaum­gæfa þá. Ég mátti ekki fá að vita um hvaða mann­eskjur var að ræða. Í því sam­an­safni af upp­lif­unum sem mér var sýnt var ekki talað um ofbeldi eða áreiti. Ég gat ekki áttað mig á því um hvað margar mann­eskjur var að ræða sökum fram­setn­ingar en mér tald­ist til að senni­lega væru þetta 5 mann­eskjur sem þarna hefðu skrifað.

Nú er ég í fréttum ásökuð um að hafa nært umhverfi kven­fyr­ir­litn­ingar vegna van­hæfni minnar og/eða sið­blindu. Lengi skal kon­una reyna,“ segir Sólveig Anna í færslu á Facebook.

Viðar vísar þeim ávirð­ingum sem á hann eru bornar á bug, í yfir­lýs­ingu sinni. Hann lýsir jafn­framt „mik­illi furðu á því“ að hans fyrrum vinnu­staður hafi gert hann hans störf að „umfjöll­un­ar­efni í vinnu­staða­út­tekt og látið fella um þau þungan dóm án þess að gefa mér minnsta færi á segja mína hlið á málum.“ Jafn­framt seg­ist hann ekki fá skilið „hvers vegna sál­fræði­stofan Líf og sál hefur látið hafa sig í slíka veg­ferð.“

Vinnustaðaúttektin „sterkasta vopnið“ í höndum hóps starfsfólks á skrifstofu

Í yfir­lýs­ingu Viðar kemur fram að hann hafi vitað að úttekt Líf og sálar á vinnu­staðnum væri í und­ir­bún­ingi frá því fyrir jól og að hann „vissi líka að þessi úttekt yrði sterkasta vopnið í höndum hóps starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar sem hefur lengi haft horn í síðu minni og Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur fyrrum for­manns Eflingar.“

„Ég vissi að þessir ein­stak­lingar myndu nota sér nafn­leysi til að bera mig sökum, og að nið­ur­stöð­unum yrði svo lekið á réttum tíma í fjöl­miðla til að hámarka skað­ann fyrir Sólveigu Önnu og fram­boð Bar­áttu­list­ans. Nákvæm­lega það hefur gerst,“ segir í yfir­lýs­ingu Viðars.

„Hið rétta er að ég axl­aði ábyrgð á því hlut­verki mínu sem fram­kvæmda­stjóri að gera eðli­legar kröfur til stjórn­enda, með hags­muni starf­sem­innar og félags­manna Eflingar í huga. Ég harma það að þessir ein­stak­lingar not­færi sér van­líðan þeirra sem upp­lifað hafa raun­veru­legt ein­elti og kven­fyr­ir­litn­ingu til að koma höggi á mig vegna ósættis sem snýst um frammi­stöðu og vinnu­brögð í starfi,“ segir í yfir­lýs­ingu Viðars.

Háttsettur stjórnandi hafi hafið „ásakanaherferð“ eftir uppsögn

Viðar rekur í yfir­lýs­ingu sinni að hann hafi, um mitt síð­asta ár, sagt hátt­settum kven­kyns stjórn­anda hjá Eflingu upp störfum. „Mikill skortur á sam­hljómi og sam­stil­ingu við stefnu félags­ins hafði verið áber­andi í störfum þessa stjórn­anda. Áður en að upp­sögn­inni kom hafði ég átt ítrekuð sam­skipti við hana þar sem ég reyndi að rétta kúr­s­inn,“ segir Viðar.

Hann segir að í kjöl­far upp­sagn­ar­innar hafi þessi stjórn­andi hafið „ásakana­her­ferð“ á hendur sé, sem verið hafi keim­lík þeirri „sem aðrir hátt­settir stjórn­endur hjá félag­inu hafa stundað gegn mér og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur allt frá því við hófum störf hjá Eflingu árið 2018.“

„Hún sendi inn erindi til stjórnar Eflingar þar sem ég var sak­aður um óeðli­lega fram­göngu gagn­vart henni. Krafðist hún þess að fá veg­legan starfs­loka­samn­ing og að mér yrði vikið úr starfi. Jafn­framt hafði hún safnað liði meðal ann­arra fyrrum stjórn­anda sem af ýmsum ástæðum höfðu ekki átt sam­leið með félag­inu á und­an­gengnum árum, til að geta dregið upp þá mynd að ann­ar­legar orsakir væru að baki því þegar leiðir stjórn­enda skildu við félagið. Enginn þess­ara stjórn­enda hafði þó haft uppi slíkar ásak­anir fyrr,“ segir í yfir­lýs­ingu Viðars.

Hann segir að umræddur stjórn­andi hafi í erindi sínu til stjórnar Eflingar vakið „sér­staka athygli á því að þetta væru allt konur“, án þess þó að Viðar væri berum orðum sak­aður um kven­fyr­ir­litn­ingu eða for­dóma í garð kvenna. Það hafi þess í stað verið „látið liggja í loft­inu.“

„Stjórn Eflingar gaf mér færi á að svara þessum ásök­unum, og gerði ég það í ítar­legri grein­ar­gerð þar sem ég fór yfir sam­skipti mín við stjórn­and­ann. Ég fjall­aði einnig um aðdrag­and­ann að við­skiln­aði félags­ins við aðra stjórn­endur sem nefndir voru í erind­inu. Ég greindi frá dag­settum fundum og sam­tölum, nær alltaf í vitna við­ur­vist, og vitn­aði í skrif­leg sam­skipti. Ég greindi frá ýmsum úrræðum sem gripið hafði verið til í þeim til­gangi að leysa málin, svo sem að veita umræddum ein­stak­lingum utan­að­kom­andi stjórn­un­ar­ráð­gjöf, bjóða þeim til­flutn­ing í starfi og bjóða þeim náms­leyfi. Allir sem lesa þessar grein­ar­gerðir sjá að þar var ekki á ferð­inni neitt annað en heið­ar­legar til­raunir yfir­manns til að veita und­ir­mönnum sínum nauð­syn­lega leið­sögn í starfi. Stjórn varð ekki við óskum stjórn­and­ans um við­bót­ar­greiðslur vegna starfs­loka og sá ekki ástæðu til að hlut­ast til um mín störf.

Þetta er sam­hengið sem ekki hefur komið fram varð­andi tíma­setn­ingu marg­um­ræddrar álykt­unar trún­að­ar­manna frá því síð­ast­liðið sumar. Umræddur stjórn­andi virð­ist hafa verið með í ráðum um samn­ingu þeirrar álykt­unar, enda vís­aði hún til hennar í erindi sínu til stjórnar Eflingar, áður en stærstur meiri­hluti starfs­manna skrif­stofu Eflingar höfðu séð hana. Raunar fengu almennir starfs­menn ekki að sjá ályktun trún­að­ar­mann­anna fyrr en á starfs­manna­fundi 29. októ­ber á síð­asta ári,“ segir Viðar í yfir­lýs­ingu sinni vegna þessa máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár