Segir lítinn samhljóm á milli fjármálastefnu og stjórnarsáttmála

ASÍ segir að fjár­mála­stefna rík­is­stjórnar byggi á því að vel­ferð­ar­kerfið verði notað sem helsta hag­stjórn­ar­tækið á næstu árum. Að mati sam­taka getur slík stefna aldrei orðið grund­völlur fyrir stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði.

Boðað aðhald í fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar getur aldrei orðið grund­völlur fyrir stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði eða til að ná mark­miðum um vel­sæld og úrbætur á sviði vel­ferð­ar­mála. Þetta segir Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) í mán­að­ar­yf­ir­liti sam­tak­anna, sem birt­ist í dag.

Samkvæmt yfir­lit­inu er lít­ill sam­hljómur á milli fjár­mála­stefn­unnar og stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem sú fyrr­nefnda boðar aukið aðhald til að stöðva vöxt skulda­hlut­falls­ins en sú síð­ar­nefnda boðar betri almanna­þjón­ustu og skatta­lækk­anir. [links]

ASÍ segir lík­legt að rík­is­stjórnin stefni því að því að auka útgjöld eða lækka skatta ef afkoma verður betri en búist er við vegna betri fram­vindu í efna­hags­málum. Þessar áherslur eru að mati sam­tak­anna gagn­rýni­verðar, sér í lagi ef skattar eru lækk­aðir í efna­hags­legri upp­sveiflu þegar jákvæð afkoma skýrist öðru fremur af tekjum sem séu ekki lík­legar til að halda til lengri tíma.

Vilja hærri skatta í stað niðurskurðar

Samkvæmt sam­tök­unum hafa skatta­lækk­anir á tíma­bil­inu 2013-2019 þrengt veru­lega að stöðu rík­is­sjóðs og fjár­mögnun sam­fé­lags­legra inn­viða ekki verið tryggð með full­nægj­andi hætti.[adspot]

Í grein­ar­gerð­inni sam­hliða fjár­mála­stefn­unni kemur þó fram að unnið verði að end­ur­bótum á skatt­kerf­inu þannig að tekju­öflun hins opin­bera nægi til þess að standa undir verk­efnum þess. ASÍ segir hins vegar að ekki sé ljóst hvað felist í þessum end­ur­bótum, þar sem stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórn­ar­innar boðar bæði efl­ingu almanna­þjón­ustu og skatta­lækkun.

Hins vegar benda sam­tökin á að stórar áskor­anir séu framundan í opin­berum fjár­málum, þar sem búist er við minni hag­vexti til langs tíma í fram­tíð­inni, en auk­inni útgjalda­þörf.

„Í fjár­mála­stefnu er ekki að finna skýra stefnu­mörkun um hvernig brugð­ist verði við þeim stóru áskor­unum sem hag­kerfið stendur frammi fyrir,“ bætir ASÍ við. „Þvert á móti fæst ekki séð hvernig fjár­mála­stefnan, með veikan tekju­grunn og litlar fjár­fest­ingar stuðli við fram­leiðni­vöxt og mæti útgjalda­þörf vegna öldr­unar þjóðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár