Yfir 1.600 greindust með kórónuveirusmit í gær

Fjöldi þeirra sem eru í ein­angrun eða sótt­kví hefur tvö­fald­ast á einni viku, 20 liggja á sjúkra­húsi og sex þeirra eru á gjör­gæslu. Alls eru 172 starfs­menn Land­spít­al­ans í ein­angrun.

Í gær, fimmtu­dag­inn 30. des­em­ber greindust 1.601 með COVID-19 smit, þar af voru 44 sem greindust sem landamæra­smit. Alls voru 731 í sótt­kví. Þetta er lang­mesti fjöldi sem nokkru sinni hefur greinst með smit hér­lendis. Þetta er í fyrsta sinn sem fleiri en þús­und smit grein­ast á einum degi.

Sem stendur eru 7.585 í ein­angrun og 6.424 í sótt­kví, en ákveðið var í gær að stytta ein­angr­un­ar­tím­ann úr tíu dögum í sjö og heim­ila svo­kall­aða vinnu­staða­sótt­kví. Sam­an­lagt eru því rúm­lega 14 þús­und manns í sótt­kví eða ein­angrun yfir ára­mótin. Það eru rúm­lega tvö­falt fleiri en fyrir viku síðan, en á aðfanga­dag jóla voru 6.781 í sótt­kví eða ein­angrun.

20 liggja á sjúkra­­húsi með COVID-19 þar af sex á gjör­­gæslu og fimm þeirra eru í önd­un­­ar­­vél. Alls eru 172 starfs­menn Land­spít­ala í ein­angrun sem stendur.

Fyrsta til­­­fellið af kór­ón­u­veirunni var stað­­fest hér á landi 28. febr­­úar árið 2020. Síðan þá eru liðnir 22 mán­uðir og frá þeim tíma hafa 27.059 smit greinst.

[adspot]Ástæða þess að smitum hefur fjölgað skarpt er útbreiðsla ómíkron-af­brigðis veirunnar hér­lend­is.

að afbrigði hefur dreifst á leift­­ur­hraða um ver­öld víða, um nokkuð tak­­marka­­laus sam­­fé­lög manna ólíkt því sem gerð­ist í delta-­­bylgj­unni, höfum við ekki enn fengið stað­­fest­ingu á því hversu skað­­legt það er.

Það sem vís­inda­­menn hafa þó sagt er að jafn­­vel þótt ómíkron valdi almennt mild­­ari sjúk­­dóms­ein­­kennum en delta gæti sú bylgja sem nú rís sligað heil­brigð­is­­kerfi af þeirri ein­­földu ástæðu að þegar gríð­­ar­­lega margir smit­­ast sam­­tímis mun fjölga í hópi þeirra sem þurfa sjúkra­­hús­inn­lögn – hvort sem veiran kall­­ast ómíkron eða delta.

Arnar Páls­­son erfða­fræð­ing­ur sagði við Kjarn­ann skömmu fyrir jól að fjölg­un­­ar­­geta ómíkron sé meiri en delta, ann­­arra afbrigða og upp­­runa­­legu gerðar veirunn­­ar. „Það þýðir að með tíð og tíma verður ómíkron alls­ráð­andi í öllum stofn­um, það er að segja á öllum svæðum þar sem veiran geis­­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár