Tryggt að foreldrar geti fylgt börnum í COVID-bólusetningu

Heilsu­gæslan hefur óskað eftir því að skóla­starf verði fellt niður eða skert dag­inn sem bólu­setn­ing 5-11 ára barna fer þar fram í byrjun jan­úar. Það er gert vegna sótt­varna­sjón­ar­miða „en líka til að lág­marka sam­an­burð milli barna“.

Bólusett verður í einn dag í hverjum skóla, sautján skólum á dag.
Bólusett verður í einn dag í hverjum skóla, sautján skólum á dag. Mynd: EPA

Stefnt er að því að COVID-bólu­setn­ing barna á aldr­inum 5-11 ára fari fram í skólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu dag­ana 10.-14. jan­úar. Bólusett verður í sautján skólum á hverjum degi. Tryggt verður að eitt for­eldri eða annar for­sjárað­ili geti fylgt hverju barni í bólu­setn­ing­una. Bólu­setn­ing barna mun einnig fara fram í skólum á lands­byggð­inni víð­ast hvar en á minni stöðum verður bólu­sett á heilsu­gæslu­stöðvum.

Þetta segir Ragn­heiður Ósk Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar á Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, við Kjarnann.

[adspot]

Sótt­varna­læknir ákvað fyrir nokkrum dögum að börnum á aldr­inum 5-11 ára verði boðin bólu­setn­ing gegn COVID-19. Hann segir ákvörð­un­ina í sam­ræmi við ákvarð­anir í mörgum löndum eins og Danmörku, Írlandi, Aust­ur­ríki, Banda­ríkj­unum, Kanada og Ísrael. Auk þess hafi Sótt­varna­stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins bent á fjöl­margar ástæður þess að bólu­setja börn á þessum aldri.

Ástæð­urnar fyrir þeirri ákvörðun að bjóða 5-11 ára börnum bólu­setn­ing­una eru nokkrar, að því er fram kemur í pistli sótt­varna­læknis á síð­unni covid.is

Í fyrsta lagi nefnir hann að COVID-19 geti verið alvar­legur sjúk­dómur hjá börnum í þessum ald­urs­hópi. Nefnir hann máli sínu til stuðn­ings að í sam­an­tekt Sótt­varna­stofn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins sem gefin var út í byrjun des­em­ber komi fram að 0,6 pró­sent 5-11 ára barna sem sýkj­ast af COVID og fá ein­kenni þurfi að leggj­ast inn á spít­ala og að 10 pró­sent þess hóps þurfi á gjör­gæslu­með­ferð að halda. Enn­fremur er það nið­ur­staðan í sam­an­tekt­inni að 0,006 pró­sent smit­aðra barna lát­ist.

„Ef ofan­greindar tölur eru yfir­færðar á íslensk börn á aldr­inum 5-11 ára og öll börn á þeim aldri myndu smit­ast (32.000), þá gætum við búist við að 134 börn þyrftu að leggj­ast inn á sjúkra­hús, 13 legð­ust inn á gjör­gæslu­deild og eitt barn myndi lát­ast vegna COVID-19,“ skrifar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. (Setn­ingin hefur verið upp­færð í kjöl­far nýrrar færslu hans á covid.is)

Þá tekur hann einnig fram að virkni bólu­setn­ingar hjá börnum í þessum ald­urs­hópi sé góð og veiti um 90 pró­sent vörn gegn því að smit­ast og fá ein­kenni.

Ekkert hægt að fullyrða um alvarlegar aukaverkanir

Alvar­legar auka­verk­anir eftir bólu­setn­ingu 5-11 ára barna hafa enn ekki verið til­kynntar en Þórólfur bendir þó á að á þess­ari stundu hafi ekki mörg þeirra verið bólu­sett og því ekki hægt að full­yrða með vissu hvort alvar­legar auka­verk­anir muni sjást. Hjá eldri börnum hafi bólgum í hjarta­vöðva og/eða goll­ur­húsi verið lýst hjá einum af hverjum 10 þús­und bólu­settum. „Ef tíðni alvar­legra auka­verk­ana COVID-19 og bólu­setn­ingar er yfir­færð frá ald­urs­hópnum 12-16 ára yfir á ald­urs­hóp­inn 5-11 ára á Íslandi, þá má búast við að 32 fengju hjarta­vöðva­bólgu eftir COVID-19 en ein­ungis 2 börn eftir bólu­setn­ingu. Að auki má búast við öðrum alvar­legum auka­verk­unum eftir COVID-19 sem ekki sjást eftir bólu­setn­ing­una,“ skrifar Þórólfur.

HÉR GETUR ÞÚ LESIÐ ÍTARLEGAN PISTIL HANS UM VÍSINDIN AÐ BAKI ÁKVÖRÐUNINNI.

[adspot]

Ragn­heiður Ósk segir útfærslu fram­kvæmdar við bólu­setn­ingu barn­anna óðum vera að skýr­ast. „Hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ingar verið að útfæra skipu­lag, og stað­setn­ingu í hverjum skóla fyrir sig í sam­ráði við skóla­stjórn­endur þessa vik­una.“

Áætlað er að senda for­eldrum upp­lýs­ingar frá skóla­heilsu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um dag­setn­ingu og skipu­lag hvers skóla þann 4. jan­úar. Boð á alla for­sjárað­ila á land­inu verða send mið­lægt frá sótt­varn­ar­lækni 6.-7. Janúar ef áform stand­ast. Í þeim skila­boðum verður teng­ill á vef­síðu þar sem for­sjárað­ilar skrá barn sitt í bólu­setn­ingu og hafa þar einnig tæki­færi til að skrá leyfi­lega fylgd­ar­menn. Við þessa skrán­ingu fá for­sjárað­ilar sent strik­a­merki sem þau mæta með í bólu­setn­ing­una.

„Hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víða á lands­byggð­inni þar sem skól­arnir eru mjög stórir erum við að óska eftir því að skóli verði felldur niður bólu­setn­ing­ar­dag­inn, eða þá alla­vega skertur skóla­dagur,“ segir Ragn­heiður. Það sé gert vegna sótt­varn­ar­sjón­ar­miða „en líka til að lág­marka sam­an­burð milli barna“.

Fræðlsuefni fyrir börn og fullorðna í smíðum

Spurð hvort hún telji þörf á því að miðla sér­stak­lega og ítar­lega upp­lýs­ingum, m.a. vís­inda­legum gögnum, til for­eldra og ann­arra for­ráða­manna um bólu­setn­ingar barna svarar hún því ját­andi. Verið sé að vinna að fræðslu­efni á vegum sótt­varna­læknis. Þær upp­lýs­ingar verða á um 16 tungu­málum, segir Ragn­heiður.. „Auk þess verður sér­stakt fræðslu­efni unnið fyrir börn sem for­eldrar geta skoðað með börnum sínum. Allt þetta er vænt­an­legt innan skamms á covid-síð­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár