Rætt um að lengja afgreiðslutíma en ákveðið að hafa aðgerðir óbreyttar

Sótt­varna­tak­mark­anir verða óbreyttar í tvær vikur. Á þeim tíma verður safnað gögnum, m.a. um hið nýja afbrigði ómíkrón, til að meta stöð­una.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í ljósi óvissunnar af hinu nýja afbrigði kór­ónu­veirunnar og sam­hliða því að þótt ástandið sé orðið við­ráð­an­legt í dag hafi álagið á heil­brigð­is­kerfið verið langvar­andi, verða sótt­varna­að­gerðir óbreyttar næstu tvær vikur. Þetta til­kynnti Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í dag. „En við munum og bindum vonir við að við getum slakað til fyrr ef gögn benda okkur á að það sé óhætt,“ sagði Willum. Áfram­hald­andi aðgerðir eru í full­komnu sam­ræmi við minn­is­blað sótt­varna­læknis að sögn ráð­herr­ans.

Reglu­gerð um tak­mörkun á sam­komum sem sett var 12. nóv­em­ber fellur úr gildi á morgun, 8. des­em­ber. Er hún var sett var far­ald­ur­inn í mik­illi upp­sveiflu og á tíma­bil­inu hafa tugir smita greinst á hverjum degi. Flest voru smitin yfir 200 þann 15. nóv­em­ber. Síðustu daga virð­ist sem bylgjan sé í rénun þrátt fyrir að enn séu að grein­ast um og yfir 100 smit á hverjum degi. Fimm liggja nú á gjör­gæslu vegna COVID-19.

Fimmtíu mega koma saman en allt að 500 ef hrað­próf eru notuð. Opn­un­ar­tími veit­inga­staða er og verður sem sagt áfram til kl. 22 og þurfa gestir að hafa yfir­gefið stað­inn kl. 23.

Willum segir að meðal þeirra gagna sem þarf nú að meta varða hið nýja afbrigði ómíkron. Meta þurfi t.d. hvernig afbrigðið virki gagn­vart hrað­grein­ing­ar­prófum og bólu­setn­ingum.

Ráð­herr­ann segir að ólík sjón­ar­mið hafi verið innan rík­is­stjórn­ar­innar á fund­inum í dag um hversu hratt ætti að slaka á aðgerðum, „en nið­ur­staðan var þessi og full sam­staða í rík­is­stjórn­inni að horfa svona á þetta.“

Á fundum var því m.a. velt upp að hans sögn hvort lengja ætti opn­un­ar­tíma veit­inga­staða eða fara úr 50 manna fjölda­tak­mörkum í hund­rað. „En maður þarf bara að hafa gögnin,“ segir Willum. „Það er ekki gott að taka svo­leiðis ákvarð­anir af því bara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár