Einkafyrirtækin fá 4.000 krónur fyrir hvert hraðpróf

Á fyrstu 20 dögum nóv­em­ber­mán­aðar voru tekin ríf­lega 80 þús­und hrað­próf á land­inu. Þrjú einka­fyr­ir­tæki fá greitt frá Sjúkra­trygg­ingum fyrir að taka slík próf og höfðu þau fengið 240 millj­ónir króna í lok nóv­em­ber.

Þrjú einka­fyr­ir­tæki upp­fylla skil­yrði reglu­gerðar heil­brigð­is­ráð­herra til greiðslna frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands fyrir töku hrað­prófa. Ekki er unnt að upp­lýsa um nákvæman kostnað vegna þess­ara prófa þar sem SÍ hafa ekki borist allir reikn­ingar en í lok nóv­em­ber höfðu fyr­ir­tækin fengið greiddar tæp­lega 240 millj­ónir króna, segir í svari stofn­un­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans um kostnað vegna hrað­prófa. Að auki sér Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um töku hrað­prófa og einnig eru þau tekin á stofn­unum úti á lands­byggð­inni.

Ný reglu­gerð um fjölda­tak­mark­anir tók gildi 12. nóv­em­ber og sam­kvæmt henni má halda við­burði fyrir allt að 500 manns gegn því að nið­ur­stöðu úr hrað­prófum sé fram­vísað.

Fram kemur í reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra um töku hrað­prófa að Sjúkra­trygg­ingar Íslands end­ur­greiða einka­að­ilum sem upp­fylla skil­yrði og hafa heim­ild til að ann­ast hrað­próf (antigeng-próf) kostnað vegna þeirra sam­kvæmt gjald­skrá stofn­un­ar­innar. Gjaldið nemur 4.000 krónum á hvert sýni og á að standa undir kostn­aði við prófin og fram­kvæmd þeirra. Þeir aðilar sem um ræðir eru Örygg­is­mið­stöðin, Sameind og Arctic Therapeutics. Mikil aðsókn hefur verið í prófin und­an­farið enda marg­vís­legir við­burðir í boði.

Yfir 80 þúsund próf á þremur vikum

Heil­brigð­is­ráðu­neytið óskaði fyrir nokkru eftir upp­lýs­ingum um fjölda tek­inna hrað­prófa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í heil­brigð­is­um­dæmum Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­lands og Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja en þorri allra hrað­prófa er tek­inn á þessu svæði. Upp­lýs­ing­arnar tóku til tíma­bils­ins 1. til 20. nóv­em­ber. og voru þetta sam­tals 81.815 hrað­próf.

Aðgengi að hrað­prófum var aukið í byrjun des­em­ber með lengdum opn­un­ar­tíma fyrir sýna­tökur hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins við Suð­ur­lands­braut, með það að mark­miði að koma betur til móts við menn­ing­ar­tengda við­burði á aðvent­unni.

Það er fag­legt mat sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­yf­ir­valda að notkun hrað­prófa til að sporna við útbreiðslu veirunnar sé mik­il­væg og hafi reynst árang­urs­rík, segir í svari heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við spurn­ingu Kjarnans um árangur af notkun hrað­prófa sem tekin eru á vegum heilsu­gæsl­unnar og ann­arra aðila sem upp­fylla skil­yrði ráðu­neyt­is­ins við töku þeirra sam­kvæmt reglu­gerð.

Ráðu­neytið var einnig spurt hvort til greina kæmi að hvetja fólk til að taka COVID-próf heima hjá sér sem lið í bar­átt­unni við útbreiðslu far­ald­urs­ins og benti ráðu­neytið þá á að þau próf sem fólk getur tekið sjálft, oft í dag­legu tali kölluð sjálfs­próf, veiti ekki und­an­þágu frá fjölda­tak­mörk­unum, enda séu þau ekki talin mjög áreið­an­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár