Ísland raðgreinir mest í heimi

Í Suður-Afríku, þar sem hið nýja afbrigði kór­ónu­veirunnar Ómíkron greind­ist fyrst í síð­ustu viku, eru innan við 1 pró­sent jákvæðra sýna rað­greind. Hlut­fallið er lang­hæst á Íslandi.

Ísland: Fyrsta sæti.

Danmörk: Annað sæti.

Ástralía: Þriðja sæti.

Þegar kemur að einu helsta tæki sem mann­kynið hefur til að fylgj­ast með þróun kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og mögu­lega bregð­ast við með áhrifa­ríkum hætti á hverjum tíma er Ísland fremst í flokki. Hér hafa 56,2 pró­sent allra jákvæðra sýna verið rað­greind. Danir sem koma næstir hafa greint 46,6 pró­sent.

Um þetta er fjallað í frétta­skýr­ingu Washington Post.

[adspot]

Mann­fjöldi og þar af leið­andi fjöldi sýktra er vissu­lega mis­jafn milli okkar Íslend­inga og t.d. Banda­ríkj­anna en þar í landi hafa aðeins 3,6 pró­sent jákvæðra sýna verið rað­greind. Þar hafa hins vegar greinst um 48 millj­ónir til­fella en hér eru þau 17.770 tals­ins.

Rað­grein­ing varpar ljósi á gerð veirunnar og breyt­ingar sem á henni verða. Veirur breyt­ast stöðugt en aðeins er farið að tala um ný afbrigði þegar þessar breyt­ingar eru orðnar umfangs­miklar. Þannig hefur Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin skil­greint afbrigði og gefið þeim nafn: Alfa. Beta. Gamma. Delta.

Og nú Ómíkron.

[links]Á þess­ari stundu er ekki vitað hvort að Ómíkron varð til í Suður-Afríku þó að það hafi fyrst upp­götvast þar líkt og þar­lendir vís­inda­menn til­kynntu opin­ber­lega í lok síð­ustu viku. Svo miklar og þess eðlis voru stökk­breyt­ing­arnar á veiru­af­brigð­inu, sem hafði fyrst og fremst greinst á ákveðnu svæði í land­inu en hefur nú greinst í löndum víðs­vegar um heim­inn, að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin ákvað að setja það þegar á lista yfir afbrigði sem valda áhyggjum. Hvort að þær reyn­ist rétt­mætar á þó enn eftir að koma í ljós. Stór bylgja gengur nú yfir flest Evr­ópu­ríki sem og Banda­ríkin. Það hefur ekk­ert með Ómíkron að gera en ótt­inn felst í því að afbrigðið gæti enn aukið á þann vanda sem far­ald­ur­inn er nú að valda. Þess vegna ein­kennd­ust við­brögð margra ríkja af skelf­ingu – og ferða­bönn hafa aftur verið tekin upp, aðal­lega á ferða­lög frá ríkjum í sunn­an­verðri Afríku þar sem Ómíkrón greind­ist fyrst. Japan og Ísrael gengu skref­inu lengra og hafa skellt ferða­banni á alla erlenda rík­is­borg­ara, hvaðan svo sem þeir eru að koma.

Í næsta mán­uði verða tvö ár liðin frá því að kór­ónu­veiran greind­ist fyrst í Wuhan í Kína. Síðan þá hafa fjöl­mörg afbrigði skotið upp koll­inum, nokkur orðið ráð­andi á ákveðnum svæðum eða um ákveð­inn tíma en ekk­ert þó í lík­ingu við Delta, afbrigðið sem fyrst greind­ist á Indlandi fyrir um ári.

Veirur greindar og gögnum deilt með öðrum

Þekking á afbrigðum fæst með rað­grein­ingu og slíkum upp­lýs­ingum er deilt með öðrum, m.a. í gegnum fyr­ir­bæri sem kall­ast GISAID. Í Suður-Afríku, þar sem Ómíkron var fyrst greint, eru rað­grein­ingar ekki stund­aðar af sama kappi og hér á landi. Þar hafa aðeins um 0,8 pró­sent allra jákvæðra sýna verið rað­greind en til­felli COVID-19 frá upp­hafi far­ald­urs­ins eru um þrjár millj­ónir.

Í grein­ingu Washington Post á gögnum um rað­grein­ingar kemur fram að þótt aðeins um 3,6 pró­sent af jákvæðum sýnum í Banda­ríkj­unum séu rað­greind sé það fram­för frá því fyrir tæpu ári er hlut­fallið var aðeins 0,3 pró­sent. Á Indlandi er hlut­fallið aðeins um 0,2 pró­sent. Í apríl, er Delta-far­ald­ur­inn reis sem hæst, var það 0,06 pró­sent.

Þetta hlut­fall skiptir máli og vís­inda­menn telja að það verði að vera ákveðið hátt svo hægt sé að grípa til aðgerða tím­an­lega.

[adspot]

Það er sama hvort horft er til rað­grein­inga eða bólu­efna­skammta. Fátæk­ustu ríki ver­aldar eru á botn­inum. Á meðan örv­un­ar­skammtar eru gefnir á Vest­ur­löndum er aðeins búið að bólu­setja um 6 pró­sent þeirra 1.200 millj­óna manna sem búa í Afríku. Aðeins um 3 pró­sent íbúa fátæk­ustu ríkja heims hafa verið bólu­sett.

Vís­inda­menn og alþjóða­stofn­anir, m.a. WHO, hafa frá upp­hafi varað við því að mis­skipt­ingin ætti eftir að koma í bakið á þeim sem keyptu sig fremst í for­gangs­röð­ina. „Þangað til að við bólu­setjum nægi­lega marga mun þetta ger­ast aftur og aftur,“ hefur Washington Post eftir Glendu Gray, sem fer fyrir lækna­ráði Suður-Afríku. Óbólu­settir munu alltaf dreifa veirunni meira og hraðar en bólu­settir og eftir því sem veiran hefur fleiri lík­ama að sýkja mun hún halda áfram að stökk­breyt­ast – jafn­vel til hins verra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár