Síðasta kórónuveiruverk Svandísar að bregðast við „Ómíkrón“

Á sunnu­dag tekur gildi reglu­gerð sem felur í sér að þeir sem koma til lands­ins frá skil­greindum háá­hættu­svæðum þurfa að fara í tvö PCR-próf með sótt­kví á milli. Ómíkrón-afbrigðið veldur áhyggjum víða um heim og líka hjá sótt­varna­lækni.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur undirritað reglugerð sem markar fyrstu viðbrögð íslenskra stjórnvalda við hinu svokallað Ómíkrón-afbrigði veirunnar.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur und­ir­ritað reglu­gerð sem markar fyrstu við­brögð íslenskra stjórn­valda við hinu svo­kallað Ómíkrón-afbrigði veirunnar. Mynd: Heilbrigðisráðuneytið

Reglu­gerð um aðgerðir vegna kór­ónu­veirunnar á landa­mærum var breytt í dag, og elti Ísland þar með fleiri ríki hins vest­ræna heims sem hafa gripið til aðgerða vegna ótta við útbreiðslu nýs afbrigðis kór­ónu­veirunnar sem hefur fengið nafnið „Ómíkrón“. Afbrigðið hefur til þessa aðal­lega greinst í ríkjum í syðsta hluta Afríku og taka aðgerðir íslenskra stjórn­valda mið af því.

Til nýskil­greindra „háá­hættu­svæða“ telj­ast nú Afr­íku­ríkin Botsvana, Esvatíní, Lesótó, Mósambík, Namibía, Simbabve og Suður-Afríka. Allir sem koma til lands­ins og hafa dvalið meira en sól­ar­hring í þessum ríkjum 14 daga fyrir kom­una til Íslands þurfa að fara í PCR-próf við kom­una og svo í sótt­kví, sem lýkur með öðru PCR-prófi fimm dögum síðar.

„Þetta gildir um alla sem dvalið hafa á háá­hættu­svæði, hvort sem þeir eru bólu­settir eða ekki eða með sögu um fyrri sýk­ingu af Covid-19. Þessir ein­stak­lingar þurfa jafn­framt að fram­vísa nei­kvæðu Covid-prófi við byrð­ingu erlendis fyrir kom­una til Íslands (þó að und­an­skildum þeim sem eru með tengsl við Ísland). Enn fremur ber þeim að fylla út raf­rænt for­skrán­ing­ar­eyðu­blað þar sem m.a. kemur fram hvar þau hyggj­ast dvelja í sótt­kví á Íslandi,“ segir í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins, en reglu­gerð sem Svandís Svav­ars­dóttir hefur und­ir­ritað um þetta efni tekur gildi á morgun, sunnu­dag.

Telja má lík­legt að und­ir­ritun þess­arar reglu­gerðar verði síð­asta emb­ætt­is­verkið sem Svandís Svav­ars­dóttir sinnir sem heil­brigð­is­ráð­herra, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans mun heil­brigð­is­ráðu­neytið verða í höndum Fram­sókn­ar­flokks­ins á þessu kjör­tíma­bili.

Auk breyttrar reglu­gerðar hefur Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir jafn­framt gefið út til­mæli þar sem Íslend­ingar eru hvattir til að ferð­ast ekki til þess­ara landa, óháð bólu­setn­ing­ar­stöðu eða sögu um fyrri sýk­ingu af völdum Covid-19.

Virðist dreifast mun hraðar en Delta

Grunur er um að þetta nýja afbrigði veirunnar hafi þegar náð að skjóta ein­hverjum rótum í Evr­ópu­ríkjum. Tvö smit þessa afbrigðis hafa greinst í Bret­landi, sam­kvæmt blaða­manna­fundi for­sæt­is­ráð­herr­ans Borisar Johnsons í dag, og afbrigðið hefur auk þess greinst í Belgíu.

Auk þess er grunur um að Ómíkrón-afbrigðið hafi greinst í Þýska­landi, Hollandi og Tékk­landi, hið minnsta, sam­kvæmt fréttum evr­ópskra miðla í dag.

[adspot]

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis segir að „miklar áhyggjur“ hafi vaknað í alþjóða­sam­fé­lag­inu um að „hér geti verið komið fram nýtt og stökk­breytt afbrigði SARS-CoV-2 sem hefur aukna smit­hæfni, veldur hugs­an­lega alvar­legri sýk­ingu og kemst undan vernd­andi áhrifum bólu­efna og fyrri sýk­inga af völdum COVID-19. Þetta á hins vegar eftir að stað­festa frekar. Afbrigðið virð­ist dreifast mun hraðar en Delta-afbrigðið gerir.“

Sótt­varna­læknir segir þó að von­andi verði hægt að end­ur­skoða aðgerðir á landa­mærum sem fyrst, „þegar gleggri nið­ur­stöður fást varð­andi þá hættu sem af ofan­greindu afbrigði stafar.“

„Þess ber þó að geta að einnig gæti þurft að herða aðgerðir, allt eftir hvernig upp­lýs­ingum og rann­sóknum varð­andi Omicronafbrigðið vindur fram,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár