Skilgreining á „fullri bólusetningu“ ekki breyst – ennþá

Ertu full­bólu­sett? Eða þarftu örv­un­ar­skammt til að falla undir þá skil­grein­ingu? Kjarninn leit­aði svara við þess­ari spurn­ingu sem farin er að brenna á mörgum Evr­ópu­búum.

Tæplega 100 þúsund manns á Íslandi hafa nú fengið örvunarbólusetningu.
Tæplega 100 þús­und manns á Íslandi hafa nú fengið örv­un­ar­bólu­setn­ingu. Mynd: EPA

Nokkur umræða er hafin erlendis um skil­grein­ingu á því að vera „full­bólu­sett/ur“ gegn COVID-19. Ertu full­bólu­sett með tveimur sprautum eða þegar þú hefur fengið örv­un­ar­skammt?

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Embætti land­læknis hefur skil­grein­ingin ekki breyst – að minnsta kosti ennþá. Þannig að mann­eskja sem hefur lokið bólu­setn­ingu með tveimur sprautum með Pfizer, svo dæmi sé tekið, er talin full­bólu­sett. Örv­un­ar­bólu­setn­ing er einmitt það, segir í svari emb­ætt­is­ins, örvun ofan á fulla bólu­setn­ingu.

„Hins vegar er það svo að það sam­evr­ópska kerfi sem notað er um bólu­setn­ing­arpassa (t.d. vegna ferð­laga) byggir á skil­grein­ingu sem aðeins náði til eins árs,“ segir í svari emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. „Því gæti farið svo að þeirri skil­grein­ingu verði breytt. Við höfum hins vegar ekki heyrt af slíkum hug­myndum.“

Faraldur COVID-19 hefur náð miklum hæðum í Evrópu ennþá einu sinni og hertar aðgerðir boð­aðar víða. Stjórn­völd í Aust­ur­ríki hafa til dæmis þegar gripið til útgöngu­banns (lockdown) og hafa auk þess ákveðið að frá og með febr­úar á næsta ári verði allir skyld­aðir til bólu­setn­ingar.

Örv­un­ar­bólu­setn­ing, þ.e. að gefa þriðja skammt­inn af bólu­efni, er hafin í mörgum Evr­ópu­ríkjum og litið er svo á að hún gæti orðið leiðin út úr far­aldr­inum.

En þetta gæti þýtt að skil­grein­ing á „fullri bólu­setn­ingu“ ætti eftir að breyt­ast. Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagði í síð­ustu viku að tvær sprautur væru ekki lengur nægj­an­legar til að ná fullri bólu­setn­ingu. Til að koma í veg fyrir útbreiddan far­aldur í land­inu á ný, sem myndi hafa hertar aðgerðir í för með sér, væri þriðji skammt­ur­inn – örv­un­ar­skammt­ur­inn – nauð­syn­legur. „Með tím­anum dregur úr vernd tveggja skammta,“ sagði hann á blaða­manna­fundi fyrir um viku. Til stendur að gefa um 10 millj­ónum Breta örv­un­ar­bólu­setn­ingu fyrir jól. Byrjað var að gefa fólki yfir fimm­tugu og við­kvæmum hópum slíka sprautu í sept­em­ber.

Samkvæmt frétt AFP hafa um 3,7 pró­sent Evr­ópu­búa fengið örv­un­ar­skammt. Ísland leiðir örv­un­ar­bólu­setn­ingar álf­unnar, segir enn fremur í frétt­inni. Samkvæmt því sem fram kemur á covid.is hafa tæp­lega 100 þús­und ein­stak­lingar fengið örv­unar- eða við­bót­ar­skammt af bólu­efni. Ákveðið var nýverið að öllum sextán ára og eldri stæði slíkt til boða um 5-6 mán­uðum eftir að önnur sprauta var gefin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár