Ekkert hægt að fullyrða um mismunandi vernd bóluefna

Flestir bólu­settra sem smit­ast hafa í yfir­stand­andi bylgju fengu bólu­efni Pfizer. Það sama á við um þá bólu­settu sjúk­linga sem lagðir hafa verið inn. Ekki er þó hægt að reikna virkni bólu­efna út frá þessum tölum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Frá 1. júlí hafa rúm­lega 9.200 manns greinst með COVID-19 hér landi og um 60 pró­sent voru full­bólu­sett við grein­ingu. Flest hinna smit­uðu á þessu tíma­bili hafa verið bólu­sett með Pfizer, þá Janssen, svo AstraZeneca og loks Moderna. Að sögn sótt­varna­læknis er ekki hægt að sjá út frá þessum tölum hvort eitt bólu­efni fremur en annað sé að veita meiri eða minni vernd.

[adspot]

190 hafa lagst inn á sjúkra­hús í þess­ari bylgju og voru flest þeirra bólu­sett með Pfizer, síðan AstraZeneca, þá Janssen og loks Moderna. „Sömu­leiðis er ekki hægt að reikna virkn­ina út frá þessum tölum því mis­mun­andi margir voru bólu­settir með bólu­efn­unum og eins var ald­ur­inn mis­mun­andi og tíðni und­ir­liggj­andi sjúk­dóma,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir við Kjarnann spurður út í virkni ólíkra bólu­efna.

Um helm­ingur allra bólu­settra hér á landi hefur fengið bólu­efni Pfizer. Fæstir hafa fengið bólu­efni Moderna eða aðeins 7,2 pró­sent lands­manna.

Herferð örv­un­ar­bólu­setn­ingar er hafin og í henni eru notuð mRNA-bólu­efnin tvö; Pfizer og Moderna. Allir sextán ára og eldri munu fá boð í slíka bólu­setn­ingu og mun her­ferðin standa að minnsta kosti fram í febr­úar á næsta ári.

„Við notum enn tölu­vert af Janssen en AstraZeneca er ekki lengur flutt inn,“ segir Þórólfur. „Það nýt­ist betur í öðrum löndum út af þeim tak­mörk­unum sem við höfðum sett á notkun þess með til­liti til ald­urs og kyns.“

Þeir skammtar af bólu­efni AstraZeneca sem eru til í land­inu eru not­aðir í seinni skammta þeirra sem hafa ekki klárað bólu­setn­ingu tím­an­lega eða hófu hana erlendis og vilja klára með sama bólu­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár