Íslendingar gefa hálfa milljón bóluefnaskammta

Ísland hefur gefið alla umfram­skammta sína af bólu­efnum AstraZeneca og Janssen inn í COVAX-sam­starfið. Um 15 pró­sent eru þegar komin til við­töku­ríkja. „Allt kapp er lagt á að umfram­skammtar renni inn í COVAX eins fljótt og kostur er á.“

Tæplega 130 þúsund umframskammtar af AstraZeneca sem Ísland hafði tryggt sér með samningum við framleiðandann hafa verið gefnir inn í COVAX-samstarfið.
Tæplega 130 þús­und umfram­skammtar af AstraZeneca sem Ísland hafði tryggt sér með samn­ingum við fram­leið­and­ann hafa verið gefnir inn í COVAX-sam­starfið. Mynd: EPA

Heil­brigð­is­ráðu­neytið og utan­rík­is­ráðu­neytið hafa á und­an­förnum miss­erum unnið að því að gefa umfram­skammta af COVID-19 bólu­efnum til efna­minni ríkja í gegnum COVAX-bólu­efna­sam­starfið. Ísland hefur gefið alla umfram­skammta sína af AstraZeneca, eða 125.726 skammta, til COVAX og einnig alla umfram­skammta af Janssen-bólu­efn­inu eða 171 þús­und skammt.

Þá mun Ísland einnig gefa ríf­lega 45.000 skammta af Moderna-bólu­efn­inu til COVAX og unnið er að áfram­hald­andi áætlun um gjöf af Moderna skömmtum í sam­ræmi við áætlun sótt­varna­læknis um örv­un­ar­bólu­setn­ingu næstu miss­erin. Það sama er uppi á ten­ingnum hvað varðar gjöf á Pfizer-skömmtum, sú áætlun er unnin í sam­ræmi við áætlun sótt­varna­læknis um örv­un­ar­bólu­setn­ingu hér á landi. Sú her­ferð er hafin og býðst öllum lands­mönnum sextán ára og eldri örv­un­ar­skammtur.

[adspot]

„Við notum enn tölu­vert af Janssen en Astra er ekki lengur flutt inn,” segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir við Kjarnann. Hann segir það bólu­efni nýt­ast betur í öðrum löndum út af þeim tak­mörk­unum sem við settum á notkun þess með til­liti til ald­urs og kyns. Þeir skammtar af bólu­efni AstraZeneca sem eru til í land­inu eru not­aðir í seinni skammta þeirra sem hafa ekki klárað tím­an­lega sína bólu­setn­ingu eða hófu hana erlendis og vilja klára með sama bólu­efni.

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um gjafa­skammta Íslands og aðra aðstoð við efna­minni ríki í heims­far­aldr­inum kemur fram að umfram­skammtar Íslands fari þangað sem þörfin er talin mest hverju sinni sam­kvæmt mati bólu­setn­ing­ar­banda­lags­ins GAVI sem hefur umsjón með COVAX. Nú þegar hafa í heild­ina 47.220 skammtar af AstraZeneca bólu­efn­inu lent í við­töku­ríkjum, þar af hafa 35.700 skammtar farið til Fíla­beins­strand­ar­innar, 1.920 til Gana, 2.400 til Síerra Leóne og 7.200 skammtar til Egypta­lands. „Allt kapp er lagt á að umfram­skammtar renni inn í COVAX eins fljótt og kostur er á,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. „Íslensk stjórn­völd hafa frá upp­hafi lagt áherslu á að styðja við COVAX-sam­starfið og hefur Ísland, með fram­lagi upp á ríf­lega 1 millj­arð íslenskra króna, skipað sér í hóp ríkja sem umtals­vert hafa lagt af mörkum til dreif­ingar bólu­efna á heims­vísu.“

144 ríki taka þátt í COVAX-sam­starf­inu. Í gegnum það hefur um hálfum millj­arði bólu­efna­skammta verið dreift til efna­minnstu ríkja heims.

Gjafir í samstarfi við ESB

Auk COVAX-sam­starfs­ins hefur íslenska heil­brigð­is­ráðu­neytið í sam­vinnu við Evr­ópu­sam­bandið ákveðið að gefa umfram­skammta af Pfizer-bólu­efn­inu sem nú þegar er hér á landi til Taílands í gegnum tví­hliða samn­ing, þar sem ekki er heim­ilt að gefa bólu­efna­skammta sem þegar hafa borist til lands­ins í COVAX. Það eru í heild­ina 100.620 skammtar. Ekki liggur fyrir nákvæm dag­setn­ing á flutn­ingi skammt­anna til Taílands. Þá vinnur heil­brigð­is­ráðu­neytið einnig að því að gefa umfram­skammta af Moderna-bólu­efni, um 50.000 skammta, í gegnum tví­hliða samn­ing í sam­vinnu við ESB. Um er að ræða skammta sem þegar hafa borist til lands­ins og því ekki hægt að gefa í COVAX. Ekki liggur end­an­lega fyrir hvert verður við­töku­ríkið.

Samtals hefur Ísland því þegar ákveðið að gefa um hálfa milljón skammta til ann­arra ríkja, ýmist í gegnum COVAX eða í sam­vinnu við ESB. Tæplega 600 þús­und skammtar af bólu­efni hafa verið gefnir fólki hér á landi. Um 80 þús­und þeirra eru örv­unar- eða við­bót­ar­skammtar. 89 pró­sent lands­manna tólf ára og eldri eru full­bólu­sett (hafa fengið tvo skammta).

Skammtarnir fæstir þar sem neyðin er mest

Bólu­efna­sam­starfið Gavi vinnur nú að sér­stöku átaki í því að koma bólu­efnum sem fást í gegnum COVAX til þeirra jarð­ar­búa sem búa við við­kvæm­ustu aðstæður allra, m.a. vegna fátæktar og átaka. Í nýrri til­kynn­ingu frá Gavi segir að um helm­ingur þeirra landa þar sem neyðin er mest hafi ekki enn fengið bólu­efni til að bólu­setja 10 pró­sent íbúa. Fimm fátæk­ustu ríki heims (Tjad, Austur-Kongó, Haítí, Suður-Súdan og Jemen) hafa ekki nægt bólu­efni til að bólu­setja tvö pró­sent íbú­anna. Átök og annað ofbeldi er útbreitt í flestum þeirra ríkja sem fæsta bólu­efna­skammta hafa fengið.

Í til­kynn­ingu Gavi segir að á síð­ustu vikum og mán­uðum hafi smám saman tek­ist að flytja meira af bólu­efna til þeirra jarð­ar­búa sem búa við hvað mesta neyð og vonir standi til að sú þróun haldi áfram næstu mán­uði. Stofn­anir á sviði mann­úðar, m.a. UNICEF og UN Women, vinna einnig með Gavi að því að koma lífs­nauð­syn­legri aðstoð, svo sem mat, hreinu drykkj­ar­vatni og skjóli, til fólks sem býr við neyð. Gavi fagnar því í til­kynn­ingu sinni að í þess­ari viku hafi tek­ist að koma fyrstu bólu­efna­skömmt­unum til fólks sem er á flótta undan átökum í Íran og til fólks í áhættu­hópum vegna COVID-19 í Taílandi.

Gera ríkar kröfur til viðtakenda bóluefna

Ýmsar hindr­anir standa í vegi fyrir því að hægt hefur gengið að dreifa bólu­efnum. Ekki aðeins seina­gangur vest­rænna ríkja við að gefa skammta leikur þar hlut­verk. Við venju­legar aðstæður taka fram­leið­endur bólu­efna og lyfja mögu­legar skaða­bóta­kröfur vegna notk­unar efn­anna á sig. En í heims­far­aldri COVID-19 hafa lyfja­fyr­ir­tækin gert þær kröfur að allir kaup­endur og við­tak­endur skammt­anna, hvort sem um er að ræða ein­stök lönd eða mann­úð­ar­stofn­anir, taki þessa áhættu.

[adspot]

Fjórir bólu­efna­fram­leið­endur (Clover, Johnson & Johnson, Sin­oph­arm og Sinovac) hafa aflétt þessum vátrygg­inga­kröfum og hvetur Gavi fleiri til að gera slíkt hið sama svo mann­úð­ar­stofn­anir og sam­tök geti dreift bólu­efnum hraðar um alla heims­byggð­ina. Rík­is­stjórnir eru hvattar til að beita sér í þessu sam­bandi en eru einnig minntar á við­kvæma hópa innan sinna sam­fé­laga s.s. flótta­fólk, hæl­is­leit­endur og í ein­hverjum til­fellum inn­flytj­endur sem gætu vegna lít­illa tengsla í nýju sam­fé­lagi orðið útundan í bólu­setn­ingum gegn COVID-19.

Stutt við efnaminni ríki með ýmsum hætti

Utan stuðn­ings við COVAX hefur Ísland stutt við ýmsar aðgerðir til að bregð­ast við áhrifum COVID-19 á heims­vísu og stuðla að bættri getu efna­minni ríkja til að takast á við far­ald­ur­inn, þar með talið í tví­hliða sam­starfs­löndum okkar, segir í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í Malaví hefur 125 millj­ónum króna verið veitt til COVID-tengdra verk­efna árin 2020-2021. Þar af var 45 millj­ónum til að styrkja COVID-19 við­bragðs­á­ætlun Mangochi-hér­aðs í heil­brigðis- og mennta­málum. Fram­lagið nýtt­ist í sam­hæf­ingu, þjálfun heil­brigð­is­starfs­fólks og kaup á heil­brigð­is­vörum. Þá var 27 millj­ónum króna veitt til Jafn­rétt­is­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UN Women), með áherslu á að draga úr áhrifum far­ald­urs­ins á stúlkur, t.d. með bar­áttu gegn barna­hjóna­böndum. Alls hafa 53 millj­ónir króna farið til Mat­væla­að­stoðar SÞ (WFP) sem hefur aðstoðað stjórn­völd í við­brögðum vegna far­ald­urs­ins m.a. með því að setja upp skimunar- og grein­ing­ar­að­stöðu við landamæra­stöðvar Malaví og bráða­birgða­bygg­ingar við sjúkra­hús sem munu nýt­ast sem rann­sókn­ar­stofur og legu­deildir fyrir COVID-smit­aða.

Í Úganda hefur 118 millj­ónum króna verið veitt til COVID-tengdra verk­efna árin 2020-2021. Þar af var um 65 millj­ónum til skóla­mál­tíða fyrir 23 þús­und börn í Buikwe-hér­aði. Þá fóru 15 millj­ónir til að styrkja COVID-19 við­bragðs­á­ætlun hér­aðs­yf­ir­valda í Buikwe, með áherslu á heilsu og menntun.

Nú nýverið var sam­þykkt að bæta við stuðn­ingi við bæði sam­starfs­héruð Íslands í Úganda fyrir árið 2021, að upp­hæð 38 millj­ónir, sem mun styrkja við­bragðs­getu hér­að­anna, m.a. með þjálfun starfs­fólks, vit­und­ar­vakn­ingu í sam­fé­lögum og kaupum á heil­brigð­is­bún­aði.

Þá var 84 millj­ónum króna varið í verk­efni í Síerra Leóne árið 2020. Þar af var 41 milljón veitt til Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNICEF) til vatns- og hrein­læt­is­við­bragða til varnar far­aldr­inum. Þá var 41 milljón veitt til UNFPA til að við­halda kyn­heil­brigð­is­þjón­ustu á tímum COVID-19. Að auki var tveimur millj­ónum króna bætt við fjár­mögnun fyrir Aberdeen Womens Centre til að reka mið­stöð fyrir aðgerðir gegn kyn­bundnu ofbeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár