Sementsskortur á landinu

Hrá­vöru­skortur í Evrópu hefur leitt til þess að inn­flutn­ingur á sem­enti hefur dreg­ist mikið saman á síð­ustu vikum. Fram­kvæmda­stjóri Sem­ents­verk­smiðj­unnar segir að það sé áskorun fyrir fyr­ir­tækið að standa við skuld­bind­ing­arnar sínar.

Skortur er á steypu í landinu þessa stundina, samkvæmt framkvæmdastjóra Sementsverksmiðjunnar.
Skortur er á steypu í land­inu þessa stund­ina, sam­kvæmt fram­kvæmda­stjóra Sem­ents­verk­smiðj­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Gunnar H. Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Sem­ents­verk­smiðj­unnar, segir að inn­flutn­ingur á sem­enti hafi dreg­ist mikið saman í haust í sam­tali við Kjarnann. Samkvæmt honum er mikil óvissa í kort­unum varð­andi afhend­ing­ar­á­ætl­anir og á Sem­ents­verk­smiðjan erfitt með að standa við sínar skuld­bind­ingar þessa stund­ina.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru að með­al­tali flut inn um 14 þús­und tonn af Portlands­sem­enti, sem er algeng­asta teg­und sem­ents, til lands­ins í hverjum mán­uði árið 2019. Í fyrra var með­al­talið komið niður í 11 þús­und tonn á mán­uði, en á fyrstu mán­uðum þessa árs var með­al­talið komið upp í 13 þús­und tonn á mán­uði.

Á haust­mán­uðum sagði Gunnar þó að það hefði farið að koma í ljós að inn­flutn­ing­ur­inn myndi drag­ast mikið saman, en aðspurður hver ástæðan sé að baki þessum sam­drætti segir hann að það sé skortur á vör­unni í allri Skand­in­avíu og í raun­inni allri Norður-Evrópu.

„Við höfum flutt inn minna en við viljum og fáum ekki það magn sem við óskum okkur,“ bætir Gunnar við. Samkvæmt honum er það áskorun fyrir Sem­ents­verk­smiðj­una að standa við skuld­bind­ingar sínar þessa stund­ina. Enn sé þó eitt­hvað fram­leitt af sem­enti á Norð­ur­lönd­unum, sem sé svo flutt inn til lands­ins, en áskor­unin felst í því að ná meiru sem­enti til lands­ins.

Sem­ents­verk­smiðjan er að mestu í eigu þýska fyr­ir­tæk­is­ins HeidelbergCement Group og sér um inn­flutn­ing á sem­enti frá norska fram­leið­and­anum Norcem AS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sementsverksmiðja

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár