Biður hagsmunasamtök að tjá sig ekki um verðhækkanir

Sam­keppn­is­eft­ir­litið brýnir fyrir for­svars­mönnum hags­muna­sam­taka að taka ekki þátt í umfjöll­unum um hækk­andi vöru­verð, þar sem sam­tökin eiga að fara gæti­lega þegar kemur að umræðu sem hefur áhrif á verð­lagn­ingu fyr­ir­tækja.

For­svars­menn hvers konar hags­muna­sam­taka í atvinnu­líf­inu eiga ekki að taka þátt í umfjöllun sem teng­ist verð­lagn­ingu eða annarri mark­aðs­hegðun fyr­ir­tækja. Þetta segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið í til­kynn­ingu sem send var á fjöl­miðla fyrr í dag.

Í til­kynn­ing­unni minnt­ist stofn­unin sér­stak­lega á ummæli fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins um að það væri mjög lík­legt að yfir­stand­andi vöru­skortur á alþjóða­vísu myndi valda verð­hækk­unum á ein­hverjum vöru­flokkum. Einnig voru talin upp ummæli frá fram­kvæmda­stjóra Samtaka versl­unar og þjón­ustu og for­manni Bænda­sam­tak­anna um lík­legar verð­hækk­anir á næst­unni.

Samkvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu verða sam­tök fyr­ir­tækja að fara afar gæti­lega þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á mark­aðs­hegðun félags­manna sinna, líkt og kveðið er á í sam­keppn­is­lögum. Sér­stak­lega sé brýnt að gætt sé að þessu þegar fákeppn­is­mark­aðir eiga í hlut og efna­hags­erf­ið­leikar steðja að.

„Á sam­keppn­is­mark­aði á hækkun á aðfanga­verði ekki að leiða sjálf­krafa til hækk­unar á verði til neyt­enda,“ segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið í til­kynn­ing­unni sinni. „Sam­keppn­is­lög gera ráð fyrir því að hvert og eitt fyr­ir­tæki geri eigin ráð­staf­anir og taki sjálf­stæðar ákvarð­anir til að bregð­ast við slíkum áskor­unum á sínum eigin rekstr­ar­legu for­sendum og án alls sam­ráðs við keppi­nauta eða hvatn­ingar frá hags­muna­sam­tökum.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið beinir því einnig til neyt­enda að vera á varð­bergi gagn­vart verð­hækk­unum framundan, en hægt sé að beina ábend­ingum um slíkt til Neyt­enda­sam­tak­anna, verð­lags­eft­ir­lits ASÍ, eða Neyt­enda­stofu. Hægt er að lesa til­kynn­ingu eft­ir­lits­ins í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár