Boðaðar skattahækkanir Pírata hærri eftir skekkju í útreikningum

Þær skatta­hækk­anir sem Píratar hafa lagt til að fjár­magna þær aðgerðir sem þeir leggja til í kosn­inga­bar­átt­unni hafa nú hækkað umtals­vert eftir að upp komst að flokk­ur­inn studd­ist við ranga útreikn­inga í áætl­unum sínum.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Píratar leggja nú til að milli­þrep tekju­skatts verði hækk­aður úr 37,95 pró­sentum upp í 39,5 pró­sent og að efsta skatt­þrepið verði hækkað úr 46,25 pró­sentum í 53 pró­sent svo að rík­is­sjóður verði ekki fyrir tapi vegna aðgerð­anna sem flokk­ur­inn hefur lagt til í kosn­inga­bar­átt­unni sinni. Þetta kemur fram í fjár­mögn­un­ar­til­lögum Pírata, sem er aðgengi­leg á síðu flokks­ins.

Þessar skatta­hækk­anir eru mun hærri en þær sem flokk­ur­inn lagði til í gær, en líkt og Kjarninn greindi frá end­ur­skoð­uðu Píratar útreikn­inga sína eftir að bent var á að þar skeik­aði tug­millj­örðum í útreikn­ingum þeirra.

[links]Píratar birtu sitt eigið kostn­að­ar­mat á helstu aðgerð­unum sem flokk­ur­inn leggur til í kosn­inga­bar­átt­unni fyrr í vik­unni. Fjórar helstu útgjalda­til­lögur sínar verð­mátu Píratar á 93,4 millj­arða króna, en flokk­ur­inn lagði einnig til tekju­öfl­un­ar­til­lögur sem áttu sam­kvæmt útreikn­ingum flokks­ins að skila 83,7 millj­örðum í rík­is­sjóð.

Auk þess gerði flokk­ur­inn ráð fyrir því að 9,7 millj­arðar skili sér í aukna inn­heimtu virð­is­auka­skatts vegna þess að til­lögur flokks­ins auki það fé sem tekju­lægra fólk hafi á milli hand­anna til neyslu.

Tekju­öfl­un­ar­til­lög­urnar fólu meðal ann­ars í sér hækkun mið­þreps tekju­skatts úr 37,95 pró­sentum í 38 pró­sent og hækkun efsta þreps tekju­skatts úr 46,25 pró­sentum í 50 pró­sent. Samkvæmt Pírötum átti hækkun efsta tekju­skatts­þreps­ins ein og sér að skila rík­is­sjóði 34,8 millj­örðum króna. Þó segja Píratar að skatt­byrði á þá sem eru með undir 1,2 milljón kr. í tekjur á mán­uði verði ekki hærri, þar sem þeir boða einnig hækkun per­sónu­af­sláttar um 20 þús­und kr.

[adspot]Þessir útreikn­ingar flokks­ins eru hins vegar rangir. Í sam­tali við Kjarnann segir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, að flokk­ur­inn hefði ofmetið tekju­öfl­un­ina um 25 millj­arða króna. Samkvæmt Konráði Guð­jóns­syni hag­fræð­ingi og aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs gæti skekkjan hafa verið enn meiri.

Meiri skattahækkanir en minni væntar tekjur

Í nýupp­færðum tekju­öfl­un­ar­til­lögum Pírata hefur flokk­ur­inn marg­faldað boð­aða hækkun á milli­þrep tekju­skatts­ins, úr 0,05 pró­sentu­stigum í 1,55 pró­sentu­stig. Sömu­leiðis hefur flokk­ur­inn tæp­lega tvö­faldað boð­uðu hækk­un­ina á efsta þrep tekju­skatts­ins, úr 3,75 pró­sentu­stigum í 6,75 pró­sentu­stig.

Þrátt fyrir þessar skatta­hækk­anir býst flokk­ur­inn ekki lengur við að þær muni skila rík­is­sjóði 83,7 millj­örðum króna, heldur gerir hann nú ráð fyrir 62 millj­örðum í auknum tekjum. Vænt bein tekju­öflun Pírata hefur því lækkað um rúma 20 millj­arða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár