Stoðir hagnast um 12,6 milljarða á hálfu ári

Hraðar verð­hækk­anir á hluta­bréfum skráðra félaga hér­lendis hafa reynst Stoðum vel síð­ustu mán­uð­ina. Tekjur félags­ins af fjár­fest­ingum sínum námu tæpum 13 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins.

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða
Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Stoða Mynd: Síminn

Heild­ar­hagn­aður Stoða á fyrri hluta árs­ins nam 12,6 millj­örðum króna og er hann aðal­lega til­kom­inn vegna hækk­unar á hluta­bréfa­verði skráðra félaga í Kaup­höll­inni. Þetta kemur fram í nýbirtu árs­hluta­upp­gjöri félags­ins.

Samkvæmt reikn­ingnum keypti félagið eigin bréf fyrir 1,4 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Heild­ar­virði eigin fjár þess hefur því hækkað um rúma 11 millj­arða á tíma­bil­inu og nemur nú tæpum 43 millj­örðum króna.

Hlutabréf hækkað um helming í virði

Langstærsti hluti fjár­fest­inga Stoða, eða um 35 millj­arðar króna af 39 millj­örðum, eru í skráðum félögum hér­lendis. Þær voru nær allar í þremur félögum - Arion banka, Kviku og Símanum, í lok júní. Stoðir er stærsti ein­staki hlut­hafi Símans og Kviku banka, auk þess sem félagið er stærsti einka­fjár­festir­inn í Arion banka.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Keldunni hefur virði eign­ar­hlutar Stoða í þessum félögum hækkað um 12,7 millj­arða það sem af er ári. Þar vega þyngst bréfin í Arion banka, sem hafa hækkað um tæp 83% frá árs­byrjun, en hluta­bréf í Símanum og Kviku hafa einnig hækkað um 40 pró­sent á tíma­bil­inu. Sam­an­lagt hefur virði eign­ar­hluta Stoða í þessum félögum auk­ist um rúman helm­ing frá árs­byrjun.

Hagnaður Stoða á síð­asta árs­helm­ingi er tæp­lega tvö­falt meiri en hagn­aður félags­ins á öllu síð­asta ári. Leita þarf aftur til árs­ins 2014 til að finna sam­bæri­legan hagnað á einu ári og á síð­asta árs­helm­ingi. Alls hefur eigið fé félags­ins rúm­lega þre­fald­ast á fjórum og hálfu ári, úr 12 millj­örðum í 42 millj­arða króna.

Keyptu í Bláa lóninu

Líkt og Kjarninn greindi frá í síð­ustu viku keyptu Stoðir hlut Helga Magn­ús­sonar, eig­anda Frétta­blaðs­ins, í Bláa lón­inu. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál, en miðað við verð­möt hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins má ætla að Helgi hafi selt hlut­inn sinn á 2,3 til 2,5 millj­arða króna.

Eign­ar­halds­fé­lagið S121 ehf., sem er í eigu Jóns Sig­urðs­sonar, for­stjóra Stoða, ásamt Björgu Fenger eig­in­konu hans og fjöl­skyldu hennar og öðrum fjár­festum með tengsl við gamla FL Group, á meiri­hluta í Stoðum. Á meðal ann­arra hlut­hafa eru hluta­bréfa­sjóðir á vegum Stefnis, Íslands­banki, og Mótás hf., sem er í eigu Bergþórs Jóns­sonar og Fritz Hendrik Berndsen. Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, á einnig hlut í félag­inu ásamt eig­in­konu sinni, Ágústu Margréti Ólafs­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár