Segja kerfið hvetja til skattasniðgöngu

Hag­fræð­ingar hjá ASÍ segja að skýrar vís­bend­ingar séu um að fólk snið­gangi skatt­greiðslu hér á landi með því að skrá launa­tekjur rang­lega sem fjár­magnstekjur.

Róbert Farestveit og Arnaldur Sölvi Kristjánsson, hagfræðingar hjá ASÍ.
Róbert Farest­veit og Arnaldur Sölvi Krist­jáns­son, hag­fræð­ingar hjá ASÍ. Mynd: Aðsend/ASÍ

Skýrar vís­bend­ingar eru um að skatta­snið­ganga í formi svo­kall­aðs tekju­til­flutn­ings við­gang­ist hér á landi. Þetta skrifa Arnaldur Sölvi Krist­jáns­son og Róbert Farest­veit, hag­fræð­ingar hjá ASÍ í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kom út síð­asta föstu­dag.

Samkvæmt Arnaldi Sölva og Róberti á tekju­til­flutn­ing­ur­inn, sem felur í sér að fólk skrái launa­tekjur sínar rang­lega sem fjár­magnstekjur, sér aðal­lega stað á meðal atvinnu­rek­enda með háar tekjur. Þeir telja að reglur sem tak­mörk­uðu slíkan til­flutn­ing myndu auka árlegar skatt­tekjur um allt að átta millj­arða króna, styrkja tekju­öflun sveit­ar­fé­laga og auka skatt­byrði þeirra sem eru tekju­hærri.

Höf­und­arnir segja þessa teg­und snið­göngu vera til­komna þar sem fjár­magnstekju­skattur er lægri en skattur á atvinnu­tekjur. Við það geta ein­stak­lingar sem eru í eigin rekstri van­talið eigið vinnu­fram­lag til þess að hámarka hlut­fallið af tekjum þeirra sem verða skatt­aðar sem fjár­magnstekjur.

Máli sínu til stuðn­ings vísa Arnaldur Sölvi og Róbert til skýrslu sér­fræð­inga­hóps á vegum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins frá árinu 2017, en þar kom fram að með­al­laun frá félögum til eig­enda voru 620 þús­und krónur á mán­uði, á meðan greiddur arður hafi að með­al­tali verið 770 þús­und krónur á mán­uði.

Hluthafalíkan gæti komið í veg fyrir sniðgöngu

Samkvæmt höf­und­unum er ein mögu­leg leið til að koma í veg fyrir slíkan tekju­til­flutn­ing að taka upp svo­kallað hlut­haf­a­líkan, sem Norðmenn tóku upp árið 2006, en það myndi fela í sér að skattar á arð og sölu­hagnað yrðu hækk­aðir þannig að virkt skatt­hlut­fall sé jafnt hæsta skatt­hlut­falli launa.

Upptaka slíks kerfis myndi fyrst og fremst auka skatta hjá þeim tekju­hærri, segja Arnaldur Sölvi og Róbert, þar sem þeir séu með mun hærri arð­semi en aðrir. Önnur mögu­leg leið er þrepa­skipt skatt­kerfi á fjár­magnstekjur, en auk þess væri ein­fald­lega hægt að hækka fjár­magnstekju­skatt­inn eins og hann er núna.

Hægt er að lesa grein Arnaldar Sölva og Róberts í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár