Sigmundur Davíð boðar stórar millifærslur til heimila landsins

Íslend­ingar ættu að fá auð­linda­gjald greitt út beint í sinn vasa á Full­veld­is­dag­inn á hverju ári, sam­kvæmt nýrri kosn­inga­stefnu Mið­flokks­ins. Sömu­leiðis inni­heldur stefnan beinar milli­færslur til heim­ila ef afgangur er af fjár­lögum.

Mið­flokk­ur­inn segir að milli­færa ætti helm­ing af afgangi rík­is­sjóðs ár hvert beint á hvern Íslend­ing á full­veld­is­dag­inn, 1. des­em­ber. Sömu­leiðis ætti hver full­orð­inn Íslend­ingur að fá greitt auð­linda­gjald frá rík­is­sjóði sama dag.

Þetta kom fram í kynn­ingu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns flokks­ins, á kosn­inga­stefnu sinni sem fór fram í Hörpu í dag, en henni var streymt á vef Vísis. Í henni voru tíu stefnu­mál flokks­ins kynnt, en þau fólu í sér ýmsar nið­ur­greiðslur og milli­færslur til íslenskra heim­ila og fyr­ir­tækja.

Fyrsta stefnu­mál flokks­ins inni­hélt milli­færslu til heim­ila á hluta af afgangi rík­is­sjóðs. Samkvæmt Sigmundi munu slíkar greiðslur skapa hvata fyrir stjórn­mála­menn til að fara spar­lega með skattfé og auka tekjur rík­is­ins eins og kostur er.

Samkvæmt öðru stefnu­máli flokks­ins mun hver full­orð­inn Íslend­ingur líka fá greitt það auð­linda­gjald sem rík­is­sjóður hefur fengið frá fyr­ir­tækjum lands­ins. Þetta gjald ætti að vera tengt við arð­bæra nýt­ingu auð­lind­anna, en á fyrsta ári muni milli­færslan nema 100 þús­und krónur á núver­andi verð­lagi.

Sig­mundur segir við hæfi að þessar greiðslur muni báðar eiga sér stað á full­veld­is­deg­inum, 1. des­em­ber.

Ýmsar aðrar fyr­ir­hug­aðar nið­ur­greiðslur mátti finna í hinum átta til­lögum flokks­ins. Þar á meðal var lagt til að hlutafé í Íslands­banka yrði dreift með jöfnum hætti til íslenskra rík­is­borg­ara. Þá var einnig lagt til að ríkið myndi veita mót­fram­lag sem gæfi öllum Íslend­ingum tæki­færi til að eign­ast eigið hús­næði og að ein­stak­lingum yrði leyft að ráð­stafa 3,5 pró­sentu­stigum af líf­eyr­is­sparn­aði sínum í hús­næð­is­kaup.

Sig­mundur minnt­ist einnig á orku­kostnað, en sam­kvæmt honum ætti slíkur kostn­aður að vera sá sami fyrir alla íbúa lands­ins, óháð búsetu. Samkvæmt honum er ekki sam­ræmi í því að líta á orku­auð­lind­ina sem sam­eign þjóð­ar­innar og rukka svo mis­mikið fyrir hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár