Þórhildur Þorkelsdóttir nýr kynningarfulltrúi BHM

Þór­hildur Þor­kels­dóttir hefur sagt upp störfum hjá RÚV og hafið störf sem kynn­ing­ar­full­trúi Banda­langs háskóla­manna.

Þórhildur hefur undanfarin ár starfað sem fréttamaður og vaktstjóri á RÚV auk þess að annast dagskrárgerð og þáttastjórnun í bæði útvarpi og sjónvarpi.
Þór­hildur hefur und­an­farin ár starfað sem frétta­maður og vakt­stjóri á RÚV auk þess að ann­ast dag­skrár­gerð og þátta­stjórnun í bæði útvarpi og sjón­varpi. Mynd: Aðsend mynd

Þór­hildur Þor­kels­dóttir hefur verið ráðin kynn­ing­ar­full­trúi BHM og hefur þegar tekið til starfa. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BHM í dag.

Sem kynn­ing­ar­full­trúi BHM mun Þór­hildur hafa umsjón með vef og sam­fé­lags­miðlum banda­lags­ins, ann­ast sam­skipti við fjöl­miðla, skipu­lagn­ingu við­burða og fleiri verk­efni á sviði kynn­ing­ar­mála.

Hún tekur við starf­inu af Óla Jóni Jónssyni sem verið hefur kynn­ing­ar­full­trúi BHM und­an­farin rúm­lega fimm ár en ákvað nýlega að söðla um og hverfa til ann­arra starfa, að því er fram kemur hjá BHM.

„Þór­hildur hefur und­an­farin ár starfað sem frétta­maður og vakt­stjóri á RÚV auk þess að ann­ast dag­skrár­gerð og þátta­stjórnun í bæði útvarpi og sjón­varpi. Áður var hún frétta­maður á Stöð 2 og þar áður blaða­maður á frétta­vefnum Vísi og Frétta­blað­inu. Hún hefur lokið BA-prófi í fjöl­miðla­fræði frá Háskól­anum á Akureyri og stund­aði nám í mann­fræði við Háskóla Íslands. Þess má geta að Þór­hildur hlaut blaða­manna­verð­laun árs­ins 2020 fyrir vönduð frétta­tengd við­töl,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár