Hitametin í júlí: Ekki er vitað um „slíkt og þvíumlíkt“ hér á landi

Um mest­allt norðan- og aust­an­vert landið var júlí sá hlýjasti frá upp­hafi mæl­inga. Með­al­hiti var meiri en 14 stig á fáeinum veð­ur­stöðvum, „en ekki er vitað um slíkt og því­líkt hér á landi áður í nokkrum mán­uði,“ segir Trausti Jónsson veð­ur­fræð­ingur

Trausti segir ekki ólíklegt að sólskinsstundamet verði slegið á Akureyri og að sama megi segja um Mývatn.
Trausti segir ekki ólík­legt að sól­skins­stunda­met verði slegið á Akureyri og að sama megi segja um Mývatn. Mynd: Pexels

Júlí­mán­uður var um mest­allt norðan- og aust­an­vert landið sá hlýjasti sem vitað er um frá upp­hafi mæl­inga. Um þetta fjalla tveir veð­ur­fræð­ingar, Einar Svein­björs­son og Trausti Jónsson í færslum á ýmist Facebook- eða blogg­síðum sínum.

Einar skrifar að í júlí hafi með­al­hit­inn á Akureyri verið 14,3°C og að hærri mán­að­ar­hiti hafi aldrei mælst. Trausti segir ekki ólík­legt að sól­skins­stunda­met verði einnig slegið á Akureyri og að sama megi segja um Mývatn.

„Með­al­hiti eins mán­aðar hefur aldrei farið yfir 14 stig í mæl­inga­sög­unni,“ skrifar Einar og að „klár­lega“ sé um Íslands­met að ræða, Trausti skrifar að með­al­hit­inn hafi verið meiri en 14 stig á fáeinum veð­ur­stöðvum, „en ekki er vitað um slíkt og því­líkt hér á landi áður í nokkrum mán­uði“.

Trausti skrifar á blogg­síðu sína í gær­kvöldi að nýlið­inn júlí­mán­uður hafi verið sér­lega hlýr. Þótt um met sé að ræða á norðan- og aust­an­verðu land­inu sé þó vitað um hlýrri júlí­mán­uði á stöku stöðvum – en nokkuð á mis­víxl líkt og Trausti orðar það. Á Egils­stöðum var júlí 1955 t.d. lít­il­lega hlýrri heldur en nú.

Traustir skrifar að með­al­hiti í byggðum lands­ins í heild reikn­ist 11,7 stig. „Það er það næst­mesta sem við vitum um í júlí, í þeim mán­uði 1933 reikn­ast með­al­hit­inn 12,0 stig.“ Hann bendir hins vegar á að í raun er varla mark­tækur munur á þessum tveimur tölum vegna mik­illa breyt­inga á stöðvakerf­inu. „Við vitum af einum mark­tækt hlýrri ágúst­mán­uði, árið 2003, en þá var með­al­hiti á land­inu 12,2 stig og í ágúst 2004 var jafn­hlýtt og nú (11,7 stig).“

Með­al­há­marks­hiti í nýliðnum júlí var einnig hærri en áður, 20,5 stig á Hall­orms­stað. Hæsta eldri tala „sem við hik­laust við­ur­kennum“, skrifar Trausti, er 18,7 stig í Hjarð­ar­land í júlí 2008.

„Það er líka óvenju­legt að hiti komst upp fyrir 20 stig ein­hvers staðar á land­inu alla daga mán­að­ar­ins nema einn (30 dagar). Er það mjög óvenju­legt, mest er vitað um 24 slíka daga í einum mán­uði (júlí 1997) síð­ustu 70 árin rúm.“

Uppgjör Veð­ur­stof­unnar með end­an­legum hita-, úrkomu- og sól­skins­stunda­tölum mun að sögn Trausta birt­ast síðar í vik­unni.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár