Penninn og Storytel með yfirburði á bókamarkaði

Mark­aðs­hlut­deild Pennans í smá­sölu­mark­aði prent­aðra bóka nemur 50-55 pró­sentum og Storytel selur nær allar bækur á hljóð­bóka­mark­aði, sam­kvæmt nýrri úttekt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Storytel selur nær allar íslenskar hljóðbækur hér á landi.
Storytel selur nær allar íslenskar hljóð­bækur hér á landi. Mynd: EPA

Penninn og Storytel eru hvor um sig með mark­aðs­ráð­andi stöðu í smá­sölu prent­aðra bóka og hljóð­bóka. Sömu­leiðis er Forlagið með langstærstu hlut­deild­ina á mark­aði fyrir útgáfu prent­aðra bóka, en Storytel gefur út yfir­gnæf­andi meiri­hluta allra hljóð­bóka. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­þjöppun á bóka­mark­aði, sem birt­ist á vef stofn­un­ar­innar fyrr í dag.

Tveir mismunandi markaðir

Í úttekt­inni vísar stofn­unin í könnun sem Zenter fram­kvæmdi í fyrra á því í hvaða aðstæðum fólk læsi prent­aðar bækur eða hlust­aði á hljóð­bækur. Samkvæmt henni eru prent­aðar bækur mun vin­sælli til gjafa en hljóð­bækur, á meðan hljóð­bæk­urnar virð­ast nýt­ast við heim­il­is­störf, á æfingum eða í göngu­ferðum. Prent­aðar bækur eru aftur á móti vin­sælli meðal for­eldra sem lesa fyrir börnin sín og þegar fólk fer í frí.

Samkvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu leiða þessar nið­ur­stöður í ljós að vís­bend­ingar séu um að hljóð­bækur og prent­aðar bækur myndi sér­staka mark­aði, þar sem hljóð­bækur séu keyptar í öðrum til­gangi en raf­bækur.

Mikil samþjöppun á markaði

Mikil sam­þjöppun er á mark­aði fyrir útgáfu bóka ef honum er skipt upp eftir því hvort bæk­urnar séu á prent­uðu eða staf­rænu formi. Þannig ber útgáfu­fé­lagið Forlagið höfuð og herðar yfir önnur útgáfu­fé­lög prent­aðra bóka, en fyr­ir­tækið gefur út ríf­lega þriðju hverja prent­aða bók hér á landi. Næst á eftir koma útgáfu­fé­lögin Bjartur og Veröld, en mark­aðs­hlut­deild þeirra er þó ein­ungis þriðj­ungur af hlut­deild For­lags­ins.

Enn meiri sam­þjöppun ríkir á mark­aði yfir smá­sölu prent­aðra bóka, en þar hefur Penninn 50-55 pró­senta mark­aðs­hlut­deild, sem þýðir að fyr­ir­tækið selji meiri­hluta allra seldra bóka á prent­uðu formi. Næst á eftir koma Hagar með 10-15 pró­senta mark­aðs­hlut­deild.

Á mark­aði hljóð­bóka hefur Storytel hins vegar algjöra yfir­burði, bæði í útgáfu og smá­sölu bóka. Samkvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu gefur Storyside, útgáfu­fyr­ir­tæki Storytel, út 80-85 pró­sent allra raf­bóka á íslenska mark­aðnum, auk þess sem fyr­ir­tækið selur 95-100 pró­sent allra hljóð­bóka á íslensku hér­lendis.

Eru þetta tveir markaðir?

Samkvæmt Jóni Scheving Thor­steins­syni, sem vann töl­fræði­lega grein­ingu á bóka­mark­aði fyrir Forlagið í fyrra, bendir könnun Zenter aftur á móti til þess að prent­aðar bækur og hljóð­bækur séu á sama mark­að­inum. Í grein sem Jón skrif­aði í Vís­bend­ingu í byrjun þessa árs segir hann að best væri að skil­greina mark­að­inn út frá les­endum og hlust­endum.

Þar sem meiri­hluti þeirra sem keyptu hljóð­bók höfðu einnig keypt prent­aða bók nýlega mætti draga þá ályktun að vör­urnar séu að miklu leyti stað­kvæmd­ar­vörur og ætti því að skil­greina þær á sama mark­aði, að mati Jóns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár