Eimskip viðurkennir alvarleg samkeppnislagabrot og fær 1,5 milljarða sekt

Eimskip hefur við­ur­kennt að hafa við­haft ólög­mætt sam­ráð við Samskip árum saman og greiðir 1,5 millj­arð króna í sekt vegna máls sem hefur verið til rann­sóknar frá 2013. Samskip eru enn til rann­sóknar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Eimskip viðurkennir brot sín og greiðir einn og hálfan milljarð í sekt.
Eimskip við­ur­kennir brot sín og greiðir einn og hálfan millj­arð í sekt. Mynd: Skjáskot/RÚV

Eimskip hefur gert sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um greiðslu 1,5 millj­arða króna stjórn­valds­sektar vegna alvar­legra brota gegn sam­keppn­is­lögum og EES-samn­ingum sem framin voru í sam­ráði við Samskip, aðal­lega á árunum 2008 til 2013.

Fyr­ir­tækið við­ur­kennir einnig að hafa við­haft ólög­mætt sam­ráð við Samskip áður en stór­tækara sam­ráð á milli fyr­ir­tækj­anna tveggja hófst sum­arið 2008.

Brot félag­anna tveggja gegn sam­keppn­is­lögum hafa verið til rann­sóknar árum saman, en Sam­keppn­is­eft­ir­litið sagði frá því að Eimskip hefði leitað eftir sáttum í mál­inu fyrr í þessum mán­uði. Tekið er fram í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­litnu að Samskip sé enn til rann­sóknar vegna þess­ara mála.

Eimskip við­ur­kennir að hafa brotið gegn lögum með eft­ir­far­andi hætti:

  • Samráð við Samskip á síð­ari hluta árs­ins 2008 um breyt­ingar á sigl­inga­kerfum og tak­mörkun á flutn­ings­getu í sjó­flutn­ingum til og frá Íslandi.
  • Samráð við Samskip um skipt­ingu á mörk­uðum eftir stærri við­skipta­vinum í sjó- og land­flutn­ingum. Samráð þetta var umfangs­minna á loka­ári rann­sókn­ar­tíma­bils­ins (á árinu 2013).
  • Samráð við Samskip um álagn­ingu gjalda og afslátt­ar­kjör í flutn­inga­þjón­ustu og um miðlun á mik­il­vægum verð- og við­skipta­upp­lýs­ingum. Samráð þetta var umfangs­minna á loka­ári rann­sókn­ar­tíma­bils­ins (á árinu 2013).
  • Samráð við Samskip um land­flutn­inga­þjón­ustu á flutn­inga­leiðum á Íslandi og skipt­ingu á mörk­uðum á til­teknum flutn­inga­leiðum.
  • Samráð við Samskip um sjó­flutn­inga milli Íslands og ann­arra Evr­ópu­landa, og aðrar aðgerðir sem mið­uðu að því að raska sam­keppni í flutn­ings­þjón­ustu.
  • Samráð við Samskip um sjó­flutn­inga milli Íslands og Norður-Ameríku þegar ekki var í gildi und­an­þága frá 10. gr. sam­keppn­islaga.

Einnig við­ur­kennir Eimskip sem áður sagði að félagið hafi haft ólög­mætt sam­ráð við Samskip fyrir fund sem fór fram 6. júní 2008, en það sam­ráð ku hafa verið umfangs­minna en sam­ráðið sem hófst eftir umræddan fund. Að auki við­ur­kennir Eimskip að hafa brotið gegn sam­keppn­is­lögum með því að hafa ekki veitt nauð­syn­legar eða réttar upp­lýs­ingar eða afhent gögn í þágu rann­sóknar máls­ins, en félagið hefur á fyrri stigum rann­sóknar máls­ins neitað því að hafa gerst brot­legt við lög.

Skuldbinda sig til þess að vinna ekki frekar með Samskip

Í sátt­inni felst að Eimskip skuld­bindur sig til að grípa til aðgerða til að vinna gegn frek­ari brotum og efla sam­keppni.

„Í þessu felst m.a. að Eimskip mun tryggja að ávallt sé fyrir hendi virkt innra eft­ir­lit og fræðsla til þess að koma í veg fyrir að brot á sam­keppn­is­lögum end­ur­taki sig. Í því sam­bandi mun Eimskip sér­stak­lega gæta að því að stjórn­endum og helstu starfs­mönnum sé gerð grein fyrir ríkum kröfum um sam­keppn­is­legt sjálf­stæði fyr­ir­tækja sem starfa á fákeppn­is­mörk­uðum og ströngu banni við hvers konar sam­skiptum við stjórn­ar­menn, stjórn­endur eða aðra starfs­menn keppi­nauta eða mögu­lega keppi­nauta sem eru til þess fallin að raska sam­keppni.

[adspot]

Eimskip skuld­bindur sig til þess að yfir­fara alla samn­inga sína við önnur flutn­inga­fyr­ir­tæki með til­liti til sam­keppn­islaga. Jafn­framt skuld­bindur Eimskip sig til þess að hætta öllu við­skipta­legu sam­starfi við Samskip. Í þessu felst einnig að Eimskip skuld­bindur sig til þess að eiga ekki í sam­starfi við önnur fyr­ir­tæki í hvers konar flutn­inga­þjón­ustu ef Samskip á einnig í sam­starfi við við­kom­andi fyr­ir­tæki. Þetta gildir ekki ef Eimskip getur sýnt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu fram á að eðli við­kom­andi sam­starfs sé með þeim hætti að ekki sé hætta á röskun á sam­keppni milli Eimskips og Samskipa,“ segir í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Segja nýja stjórnarhætti hafa verið tekna upp

Í til­kynn­ingu frá Eimskip segir að félagið leggi áherslu á að það hafi átt sér stað grund­vall­ar­breyt­ingar í rekstri félags­ins á und­an­förnum árum, nýir stjórn­ar­hættir hafa verið teknir upp, ný stjórn og stjórn­endur hafa komið til starfa og nýir aðal­eig­endur fari nú fyrir félag­inu.

„Það er mik­il­vægur áfangi að ljúka nú með sátt sam­keppn­is­mál­inu sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur haft til rann­sóknar og varðar tíma­bilið 2008-2013 þó vissu­lega séu þetta þung skref að taka. Frá þeim tíma hefur orðið grund­vall­ar­breyt­ing á rekstri félags­ins, nýir stjórn­endur tekið til starfa, nýir eig­endur komið að félag­inu og stjórn­ar­hættir bættir. Liður í þessum breyt­ingum og þeirri veg­ferð sem við erum á var að ná fram sátt í þessu máli og nú hefur óvissu sem því fylgdi verið eytt. Þrátt fyrir nei­kvæðu fjár­hags­legu áhrifin af sekt­inni var það mat stjórnar Eimskips að best væri fyrir heild­ar­hags­muni félags­ins að ljúka þessu gamla máli með sátt,“ er haft eftir Vilhelm Má Þor­steins­syni for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár