Helmingi færri viðvaranir vegna veðurs

Veð­ur­stofan gaf út um helm­ingi færri við­var­anir vegna veð­urs frá fyrsta degi vetrar og til sum­ar­dags­ins fyrsta í ár en á sama tíma­bili í fyrra. Á nýliðnum vetri voru við­var­an­irnar 189 tals­ins en óveð­ur­s­vet­ur­inn 2019-2020 voru þær 354.

Gervitunglamynd tekin í apríl á síðasta ári. Falskir litir, eins og það er kallað, eru notaðir til að gera greinarmun á ís og snjó annars vegar og skýjum hins vegar.
Gervi­tungla­mynd tekin í apríl á síð­asta ári. Falskir litir, eins og það er kallað, eru not­aðir til að gera grein­ar­mun á ís og snjó ann­ars vegar og skýjum hins vegar. Mynd: MODIS/NASA

Á nýliðnum vetri gaf Veð­ur­stofa Íslands út 189 við­var­anir vegna veð­urs. Er þá miðað við tíma­bilið frá og með fyrsta vetr­ar­degi og til hins fyrsta sum­ar­dags sam­kvæmt gamla nor­ræna tíma­tal­inu. Á sama tíma í fyrra voru við­var­an­irnar mun fleiri eða 354. Þá voru því gefnar út tæp­lega 50 pró­sent fleiri við­var­anir en á þeim vetri sem nú er nýlið­inn. Ef horft er til vetr­ar­ins 2018-2019 voru við­var­an­irnar 211 tals­ins.

[adspot]

Í gögnum sem Veð­ur­stofan tók saman fyrir Kjarnann kemur fram að flestar við­var­anir í vetur voru gefnar út á spá­svæð­inu Aust­fjörðum eða 23. Þar urðu gríð­ar­legar rign­ingar í des­em­ber sem ollu miklum skriðu­föllum á Seyð­is­firði. Í fyrra voru þær 25, lítið eitt fleiri en þegar horft er til ann­arra land­svæða kemur meiri stað­bund­inn munur í ljós. Þannig voru átján við­var­anir vegna veð­urs gefna út á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vet­ur­inn 2019-2020 en aðeins sex í ár.

Enn meiri munur sést á t.d. Suð­ur­landi þar sem 38 við­var­anir voru gefnar út í fyrra en fimmtán í ár og á Norð­ur­landi vestra voru þær 38 í fyrra en 22 í ár. Vest­firð­irnir skera sig einnig úr en þar var gefin út 41 við­vörun í fyrra en 22 í ár. Und­an­gengna þrjá vetur hafa flestar veð­ur­við­var­anir einmitt verið gefnar út þar eða sam­tals 83. Suð­aust­ur­land fylgir þar fast á eftir með 81 við­vörun.

Færir fjallvegir

[Veturinn sem við höfum nýverið kvatt var að mörgu leyti nokkuð sér­stæður. Fyrst ber að nefna hina sögu­legu úrkomu á Seyð­is­firði sem kom á „raka­færi­bandi“ með aust­an­átt­inni – eins og Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur og rit­stjóri Bliku.is lýsti því í sam­tali við Kjarnann nýverið.

[links]Þá voru fyrstu mán­uðir árs­ins nær snjó­lausir í Reykja­vík og víðar á suð­vest­an­verðu land­inu var snjó­létt. Hell­is­heiði var til dæmis aldrei ófær í fyrra­vetur en henni var lokað tólf sinnum í sex klukku­tíma eða lengur í senn í fyrra­vetur. Sömu sögu er að segja af Mos­fells­heið­inni. Vega­gerðin þurfti aldrei að loka henni en hins vegar sextán sinnum í fyrra – ill­viðra­vet­ur­inn 2019-2020. Holta­vörðu­heið­inni var lokað sjö sinnum á nýliðnum vetri en sautján sinnum í fyrra og Stein­gríms­fjarð­ar­heiði var lokað fimmtán sinnum en í fyrra­vetur 35 sinnum.

En þegar austar dregur kemur upp önnur mynd. Vega­gerðin lok­aði til að mynda Fjarð­ar­heiði tutt­ugu sinnum í vetur eða lítið eitt sjaldnar en í fyrra­vetur þegar hún var ófær 26 sinnum.

Svalt vor eftir mildan vetur

Kyrr­látir vor­dagar hafa ein­kennt veðrið suð­vest­an­lands síð­ustu daga en engu að síður hefur verið kalt í veðri. Kalt loft liggur enda yfir land­inu sem valdið hefur næt­ur­frosti, jafn­vel um allt land. Horf­urnar eru í svip­uðum dúr: á mið­viku­dag, fimmtu­dag og föstu­dag spáir Veð­ur­stofan áfram bjart­viðri á Suður- og Vest­ur­landi en stöku éljum við suð­ur­strönd­ina. Hiti verður frá frost­marki og upp í átta stig þegar litið er til alls lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár