Greiðslur úr Ábyrgðarsjóði virðast ólöglegar

Vinnu­mála­stofnun segir að greiðslur til fjög­urra fyrr­ver­andi starfs­manna Manna í vinnu virð­ist ekki hafa verið í sam­ræmi við lög.

Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Almannavarnir

Vinnu­mála­stofnun segir að greiðslur Ábyrgða­sjóðs launa til fjög­urra fyrr­ver­andi starfs­manna starfs­manna­leig­unnar Manna í vinnu virð­ist ekki hafa verið í sam­ræmi við lög.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stofn­un­inni í kvöld, en eins og Kjarninn sagði frá í dag sendi Efling frá sér til­kynn­ingu um málið þar sem sagði að í ljósi greiðslna Ábyrgð­ar­sjóðs myndi stétt­ar­fé­lagið ekki styðja við kæru til Lands­réttar vegna frá­vís­unar á kröfum félaga sinna í síð­asta mán­uði.[links]

„Afgreiðsla á launa­kröfum í þrota­bú­inu í febr­úar og mars, virð­ist ekki vera í sam­ræmi við lög og mun Vinnu­mála­stofnun taka máls­með­ferð sjóðs­ins til end­ur­skoð­unnar. Kröf­urnar voru afgreiddar í sam­ræmi við sam­þykki skipta­stjóra þrota­bús­ins sem lá fyrir síð­ast­liðið haust. Í kjöl­far nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms 24. febr­úar sl.var til­efni til end­ur­skoð­unar á afgreiðslu umrædds þrota­bús. Það var yfir­sjón að afgreiða þessar kröfur án til­lits til umrædds dóms,“ segir í yfir­lýs­ingu Vinnu­mála­stofn­unar.

Vinnu­mála­stofnun tekur fram í yfir­lýs­ing­unni að engin afstaða sé tekin af hálfu stofn­un­ar­innar til þeirra mála­ferla sem Efling á í við þrotabú Menn í vinnu og fyr­ir­tækið Eldum rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár