Segir Bjarna hafa viljað ráðið hver væri fulltrúi Viðreisnar í stjórn Íslandspósts

Formaður Við­reisnar segir fjár­mála­ráð­herra hafi losað sig við full­trúa flokks­ins úr stjórn Íslands­pósts, sem hafi veitt fyr­ir­tæk­inu aðhald, og sett und­ir­mann sinn úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu inn í stað­inn.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar segir full­trúa flokks­ins í stjórn Íslands­pósts hafa gegnt mik­il­vægu hlut­verki í að bæta rekstur félags­ins, verið gagn­rýn­inn og veitt aðhald. Hins vegar hafi Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra skipt honum út fyrir und­ir­mann sinn í fjár­mála­ráðu­neyt­inu eftir að hafa beitt Viðreisn þrýst­ingi um að finna annan stjórn­ar­mann.

Við­skipta­blaðið greindi frá því síð­ast­lið­inn föstu­dag að Thomasi Möller, full­trúa Við­reisnar í stjórn Íslands­pósts, hafi verið hent út úr stjórn félags­ins á aðal­fundi þess. Meiri­hluti stjórnar félags­ins hefur inni­haldið full­trúa frá rík­is­stjórn­ar­flokk­unum, á meðan stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafi skipt öðrum full­trúum á milli sín. Samkvæmt heim­ildum Við­skipta­blaðs­ins var þrýst á tvo flokka til að skipta út stjórn­ar­mönnum sínum.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook greindi Þor­gerður Katrín frá því að Bjarni hafi viljað ráða því hver yrði full­trúi Við­reisnar í stjórn Póstsins. Þegar ekki var orðið við þeirri ósk og því haldið til streitu að Viðreisn myndi áfram skipa Thomas í stjórn, hafi honum verið hent út og und­ir­maður Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu settur inn í stað­inn.

Samkvæmt Þorgerði Katrínu hefur Thomas sinnt stjórn­ar­setu sinni af alúð. Hann hafi gegnt mik­il­vægu hlut­verki í að bæta rekstur Íslands­pósts og hag­ræða síð­ustu árin verið gagn­rýn­inn og veitt fyr­ir­tæk­inu aðhald í þágu gagn­sæis, sam­keppn­is­sjón­ar­miða, þjón­ustu og almanna­hags­muna.

Enn fremur sagði hún það ekki hafa farið fram hjá neinum að það séu erf­ið­leikar við stjórnun Íslands­pósts. Þessi vanda­mál séu hins vegar á ábyrgð stjórn­enda og meiri­hluta stjórn­mála­flokka en skrif­ist ekki á einn full­trúa minni­hlut­ans á Alþingi. „Gamla Ísland var að hringja,“ bætti hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár