Þórólfur segir tilefni til að slaka á innanlands en ekki tímabært að „fella grímuna“

Hvenær getum við fellt grím­urnar? Erum við með hörð­ustu aðgerðir Evrópu á landa­mær­unum? Hvar er þessi veira, ef hún er enn í sam­fé­lag­inu? Þórólfur Guðnason fór yfir mörg álita­mál á upp­lýs­inga­fundi dags­ins.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Hertar aðgerðir á landa­mær­unum sem taka gildi á morgun munu nýt­ast vel til að meta fram­haldið af aðgerðum þar. Stefnt er að því breyta reglum í þá átt að krefja far­þega um vott­orð um nei­kvætt PCR-próf en aðeins eina sýna­töku eftir komu. Þar með yrði sótt­kví við kom­una til lands­ins mögu­lega úr sög­unni eða stytt veru­lega.

Regl­urnar sem taka gildi á morgun fela í sér að fram­vísa þarf nei­kvæðu PCR-prófi, sem ekki má vera eldra en 72 klukku­stunda gam­alt, ofan á tvö­földu sýna­tök­una með sótt­kví á milli. Þeir sem þegar hafa fengið COVID-19 og þeir sem hafa verið bólu­settir verða und­an­þegnir þessum skil­yrðum svo lengi sem þeir geta fært á því sönnur með vott­orðum. Sömu­leiðis gef­ast nú heim­ildir til að skylda fólk í sótt­kví eða ein­angrun í sótt­varna­hús, m.a. þá sem grein­ast með meira smit­andi afbrigði veirunnar.

[adspot]

Með þessu munu nokkrir hlutir ávinn­ast, sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Við lág­mörkum að smit ber­ist inn í íslenskt sam­fé­lag erlendis frá og getum þá varð­veitt betur þann góða árangur sem náðst hefur inn­an­lands.“

Þá mun með þessu fyr­ir­komu­lagi ávinn­ast þekk­ing á því hvort að tvö­faldrar sýna­töku er þörf þegar nei­kvæðu PCR-prófi er fram­vísað. „Þetta mun nýt­ast okkur vel þegar við förum að huga að frek­ari til­slök­unum á landa­mærum.“

Sömu­leiðis munu hinar hertu aðgerðir á landa­mær­unum gefa tæki­færi til að slaka enn á aðgerðum inn­an­lands og er Þórólfur nú að móta til­lögur þar um sem ráð­herra verður skilað eftir nokkra daga.

Áfram allt í góðu innanlands

„Það gengur áfram vel hjá okkur og eng­inn greind­ist inn­an­lands í gær,“ sagði Þórólfur. Síðustu viku hafa fjórir greinst inn­an­lands og allir voru þeir í sótt­kví. Síðasta virka smitið sem greind­ist utan sótt­kvíar var 1. febr­úar. Tveir greindust á landa­mær­unum í gær og síð­ustu viku hafa þar sam­tals 15 greinst með virkt smit.

[links]Þórólfur fór á fund­inum yfir þá umræðu sem hér hefur komið upp um að aðgerðir okkar á landa­mær­unum séu með þeim hörð­ustu sem þekkj­ast í Evrópu. „Sem betur fer er það ekki rétt,“ sagði hann.

Gerði hann nokkurn sam­an­burð milli landa í þessu skyni og nefndi m.a. að blátt bann við ónauð­syn­legum ferða­lögum er við­haft í níu Evr­ópu­löndum. Ísland er ekki þar á meðal þótt yfir­völd vari fólk ein­dregið við því að fara erlendis án þess að rík ástæða sé til.

Svona eru takmarkanir í Evrópu

21 land krefst nei­kvæðs PCR-prófs en mis­jafnt er hversu gam­alt það má vera. Dæmi eru um það frá nálægum löndum að kraf­ist sé þess að prófið sé ekki eldra en 24 stunda en á okkar landa­mærum verður krafan sú að það sé ekki eldra en þriggja sól­ar­hringa gam­alt.

29 lönd krefj­ast þess að ferða­menn dvelji í sótt­kví af ein­hverju tagi við komu. Tíu þeirra krefj­ast þess að dvalið sé í sótt­kví í tíu daga og átta lönd krefj­ast tveggja vikna sótt­kvíar. Hér á landi er krafan fimm dagar í sótt­kví á milli sýna­tak­anna tveggja.

[adspot]

Þá er Ísland annað tveggja landa Evrópu sem und­an­skilur fólk sem fengið hefur COVID-19 frá sótt­kví og landamæra­skimun. „Ekki er því hægt með sanni að segja að Ísland sem með hörð­ustu aðgerðir á landa­mærum í Evrópu nema síður sé.“

Hinar hörðu aðgerðir á landa­mærum margra Evr­ópu­landa miða að því að hægja á útbreiðslu far­ald­urs­ins. Það er þegar farið að skila árangri því far­ald­ur­inn er víða á hægu und­an­haldi.

Vissar áhyggjur af því að sagan endurtaki sig

„Útlitið hér á landi hvað varðar far­ald­ur­inn er bjart en það er mik­il­vægt að halda áfram að fara var­lega í öllum aflétt­ingum og gæta okkar vel í ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum.“

Þórólfur hvatti fólk með minnstu ein­kenni veik­inda að fara í sýna­töku sem væri horn­stein­inn að góðum árangri okkar. Hann sagð­ist ótt­ast að veiran væri enn þarna úti. „Við erum ekki búin að útrýma veirunni en hvar hún er nákvæm­lega er erfitt að segja.“

Sagðist hann hafa af því vissar áhyggjur að saga síð­asta sum­ars geti end­ur­tekið sig. „Við vorum ekki með nein smit en svo allt í einu bloss­aði þetta upp og við erum hrædd um að það geti gerst aftur.“

Hvað varðar hið marg­um­tal­aða hjarð­ó­næmi benti Þórólfur á að eng­inn viti nákvæm­lega hvenær það náist. Byrjað er að bólu­setja þjóð­ina hægt og bít­andi en dreif­ing­ar­á­ætl­anir fram­leið­enda ná aðeins út mars í augna­blik­inu. Því vill sótt­varna­læknir fara var­lega í að spá mikið um fram­haldið og hvenær meiri­hluti þjóð­ar­innar verði bólu­settur.

Bóluefnaáætlanir út mars

Í lok mars gera áætl­anir ráð fyrir að búið verði að bólu­setja um 45 þús­und manns en sam­tals eru sjö­tíu ára og eldri sem og fram­línu­starfs­menn um 40 þús­und tals­ins. Næst mun svo hefj­ast bólu­setn­ing sjö­tíu ára og yngri sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og smám saman verður farið neðar í aldri.

Þórólfur var spurður um hvenær væri tíma­bært að „fella grím­urnar“ eins og blaða­mað­ur­inn orð­aði það.

„Sumum tekst ekki að fella grímuna en öðrum tekst það ágæt­lega,“ svar­aði Þórólfur léttur í bragði. „En þetta er góð spurn­ing. Til lengri tíma litið, munu lands­menn halda áfram að nota grímur og vera með tveggja metra inn­byggða í sig? Ég held að það verði með seinni skip­unum sem ég muni koma með þau til­mæli að fólk felli grímuna. Það er ýmis­legt sem hægt verður að gera áður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár