Stórauknar kröfur á landamærunum frá 19. febrúar

Allir sem koma til Íslands eftir 19. febr­úar þurfa að fram­vísa vott­orði um að þeir séu ekki með COVID-19, sem má mest vera orðið þriggja daga gam­alt. Áfram verður gerð almenn krafa um tvö­falda skimun á alla nema þá sem eru bólu­settir.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Heilbrigðisráðuneytið

Frá og með 19. febr­úar þurfa allir sem koma til Íslands að fram­vísa nei­kvæðri nið­ur­stöðu úr PCR-prófi bæði fyrir brott­för á leið til Íslands og einnig á landa­mærum við kom­una. Einnig verður gerð krafa um tvö­falda skimun. Prófið sem fram­vísað er þarf að vera tekið innan við 72 klukku­stundum fyrir brott­för.

Þeim sem grein­ast með COVID-19 við skimun á landa­mærum verður sömu­leiðis „skylt að dvelja í sótt­varna­húsi ef önnur við­un­andi aðstaða til ein­angr­unar er ekki fyrir hendi eða ef ein­stak­lingur er með afbrigði veirunnar sem eru þekkt fyrir að vera meira smit­andi en önnur eða valda alvar­legri veik­indum.“

Þetta kemur fram á vef stjórn­ar­ráðs­ins, en Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra kynnti ákvörðun þessa efnis á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag og er ákvörð­unin í sam­ræmi við til­lögur Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis um hertar aðgerðir á landa­mærum.

Þórólfur vill ekki taka bólusetningarvottorð gild en Svandís vill skoða málin betur

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra var einnig lagt til að horfið yrði frá því að veita þeim und­an­þágu frá sótt­varna­ráð­stöf­unum á landa­mærum sem fram­vísa gildu vott­orði um að þeir hafi verið bólu­settir gegn COVID-19.

Þórólfur segir í minn­is­blaði sínu að ekk­ert land í Evrópu hafi enn tekið þetta upog að í nýjum til­mælum frá Sótt­varna­stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins og Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni sé mælst til þess að bólu­setn­ing­ar­vott­orð séu ekki notuð til að und­an­skilja fólk frá aðgerðum á landa­mærum.

„Ástæðan er sú,“ segir í minn­is­blaði Þórólfs, „að ekki hefur verið sýnt fram á með áreið­an­legum rann­sóknum að bólu­setn­ing komi í veg fyrir dreif­ingu veirunnar en von er á nið­ur­stöðum á næst­unni. Því væri óráð­legt á þess­ari stundu að losa bólu­setta ein­stak­linga undan sótt­varna­ráð­stöf­unum á landa­mærum hvað sem síðar verður.“ 

„Heil­brigð­is­ráð­herra fellst ekki á þessa til­lögu sótt­varna­læknis að svo stöddu og telur hana þarfn­ast nán­ari skoð­unar. Reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra sem kveður á um fram­vísun bólu­setn­ing­ar­vott­orða á landa­mærum og kröfur sem gerðar eru til þeirra svo gild telj­ist tók gildi 15. jan­úar síð­ast­lið­inn. Síðan þá hafa 57 ein­stak­lingar fram­vísað bólu­setn­ing­ar­vott­orðum og af þeim vott­orðum hefur 9 verið hafnað,“ segir um þetta í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár