„Á engan hátt“ átti að gera Íslendinga að „tilraunadýrum fyrir alþjóðlegt lyfjafyrirtæki“

Þórólfur Guðnason svarar lið fyrir lið sið­ferð­is­spurn­ingum sem komu upp í tengslum við mögu­legt vís­inda­starf við Pfizer. „Að sjálf­sögðu“ hefði engum verið meinað að fara í bólu­setn­ingu, segir hann m.a.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Sótt­varna­lækni kom veru­lega á óvart hversu margar flökku­sögur af mögu­legum rann­sókn­ar­samn­ingi við Pfizer fóru á kreik án þess að nokkuð væri raun­veru­lega í hendi. Hann segir þessar flökku­sögur hafi keyrt vænt­ingar fram úr hófi. Nið­ur­staða Pfizer sé sú að ekki sé séu nægi­lega mörg smit að grein­ast hér í landi til að vís­inda­rann­sókn myndi skila þekk­ingu sem gagn­ast myndi heims­byggð­inni. Endanleg svar frá for­svars­mönnum Pfizer liggur þó ekki enn fyrir og beðið er eftir því.

Hug­myndir að vís­inda­rann­sóknum hafi verið lagðar fyrir Pfizer í des­em­ber og tveir fundir voru haldnir í þeim mán­uði og í byrjun jan­úar. Stjórn­völdum var haldið upp­lýstum um þessar óform­legu við­ræður allan tím­ann. Hug­myndin var sú að svara nokkrum spurn­ingum með vís­inda­legum hætti, um áhrif bólu­setn­inga gegn COVID-19.

[adspot]

Engin samn­ings­drög hafi verið lögð fram, engar skuld­bind­ingar um sam­starf hafi verið gerðar. „Það var aldrei neitt í hendi hvort af [sam­starfi] yrði,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Á fund­inum fór hann yfir þær gagn­rýn­is­raddir sem fram hefðu komið á hina mögu­legu vís­inda­rann­sókn þar sem fram hefð komið að lands­menn hefði ekki verið upp­lýstir um gagn­semi „svona rann­sóknar“. Sagði Þórólfur þessa gagn­rýni ein­fald­lega ekki rétta „því að við höfum margoft lýst því yfir hvaða gagn­semi við myndum geta fengið af svona rann­sókn, bæði fyrir okkur og aðrar þjóðir“.

[links]Sam­an­tekið sagði hann að ein gagn­rýnin hafi snú­ist um hvort það væri sið­ferð­is­lega rétt að „troð­ast fram fyrir röð­ina“ hvað varðar bólu­setn­ingar á heims­vísu. Þórólfur svar­aði þessi gagn­rýni á þann hátt að sam­kvæmt til­lög­unum stóð til að „svara knýj­andi spurn­ingum á vís­inda­legan hátt sem munu gagn­ast fleirum en okkur“. Einnig benti hann á að ef af rann­sókn­inni hefði verið hefðu bólu­efni sem við hefðum tryggt okkur með samn­ingum farið annað. „En ef við hefðum troðið okkur framar í röð­ina án nokk­urra skuld­bind­inga hefði það ekki verið sið­ferð­is­lega rétt að mínu mati.“

Annar þáttur í gagn­rýn­inni hefði verið sá að efast hefði mátt um vís­inda­legt gildi rann­sóknar á Íslandi fyrir aðrar þjóðir. Því er til að svara, sagði Þórólfur, að vís­inda­legt gildi rann­sóknar á Íslandi er jafn mik­il­vægt fyrir aðra og rann­sóknir á öðrum þjóðum eru fyrir okkur. Benti hann á að lyf og bólu­efni væru prófuð víða um heim og við, Íslend­ingar, nýttum okkur þá þekk­ingu. „Þannig að þetta passar ekki,“ sagði hann um þessa gagn­rýni. Þá sagði hann gagn­semi vís­inda­rann­sókna ekki „standa og falla“ með því hvar hún er gerð. Á Íslandi væru betri inn­viðir til að fram­kvæma slíka rann­sókn en víð­ast hvar ann­ars staðar í heim­inum.

Höfum yfir mörgu að gleðjast

Að auki hafa verið vanga­veltur um hvort aflað yrði upp­lýsts sam­þykkis Íslend­inga í rann­sókn sem þess­ari. Þórólfur sagði „að sjálf­sögðu“ hefði svona rann­sókn þurft að ganga í gegnum alla eðli­lega ferla hjá vís­inda­siða­nefnd og Per­sónu­vernd.

Komið hafa enn­fremur fram spurn­ingar um hvort að þeir sem ekki vilja taka þátt í rann­sókn á borð við þessa færu þá aft­ast í röð­ina í bólu­setn­ingu. Þórólfur sagði að „að sjálf­sögðu myndi engum verða meinuð bólu­setn­ing“ þó að hinn sami vildi ekki taka þátt í vís­inda­rann­sókn.

Þórólfur sagði að lokum, í þess­ari yfir­ferð sinni um gagn­rýni og spurn­ingar sem vaknað hefði úti í sam­fé­lag­inu vegna hinnar fyr­ir­hug­uðu rann­sóknar, að hana hefði „á engan hátt verið hægt að túlka sem að verið væri að gera Íslend­inga að til­rauna­dýrum fyrir alþjóð­legt lyfja­fyr­ir­tæki“.

Þó að af rann­sókn­inni verði lík­lega ekki sá sagði Þórólfur til­efni til að gleðj­ast yfir þeim árangri sem hér hefði náðst í bar­átt­unni gegn COVID-19. Síðustu viku hefðu aðeins þrír greinst inn­an­lands með veiruna og allir voru þeir í sótt­kví. Sautján hefði á sama tíma­bili greinst á landa­mær­unum, þar af sex með virkt smit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár