Fólk sem er ekki í námi getur nú sótt um herbergi hjá Félagsstofnun stúdenta

Vegna áhrifa COVID-far­ald­urs­ins á háskóla­kennslu eru biðlistar eftir her­bergjum með sam­eig­in­legri eld­hús­að­stöðu og dval­ar­rýmum styttri en venju­lega hjá Félags­stofnun stúd­enta. Fólk sem er ekki í námi getur nú sótt um slík her­bergi í fyrsta sinn.

Oddagarðar við Sæmundargötu eru nú á meðal þeirra stúdentagarða þar sem fólk sem ekki er í námi getur sótt um herbergi til leigu.
Odda­garðar við Sæmund­ar­götu eru nú á meðal þeirra stúd­enta­garða þar sem fólk sem ekki er í námi getur sótt um her­bergi til leigu. Mynd: Af vef Félagsstofnunar Stúdenta

Félags­stofnun stúd­enta (FS) býður nú í fyrsta sinn fólki sem er ekki í námi að sækja um her­bergi til leigu. Vegna áhrifa COVID-19 eru biðlistar eftir her­bergjum með sam­eig­in­legum eld­húsum og dval­ar­rýmum sem FS býður til leigu í nokkrum af sínum stúd­enta­görðum styttri en venju­lega, segir Rebekka Sig­urð­ars­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi FS, í sam­tali við Kjarnann.

Það skýrist af því að erlendir nemar eru ekki að skila sér til lands­ins í þeim mæli sem reiknað var með og nem­endur með lög­heim­ili utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru sumir hverjir að segja upp leigu­samn­ingum sínum og sjá, kannski eðli­lega, ekki til­gang í því að dvelja í Reykja­vík á meðan háskóla­námið fer fram á net­inu.

Það er nýlunda hjá FS að ein­stak­lingar sem ekki eru í námi geti sótt um her­bergi, en þeir fara aft­ast í for­gangs­röð­ina þegar kemur að úthlutun. Enginn sem er ekki í námi er kom­inn með her­bergi, en nokkrir hafa þegar haft sam­band við FS og sýnt áhuga, segir Rebekka. Um er að ræða her­bergi með sam­eig­in­legum eld­hús- og dval­ar­rýmum, á Gamla Garði, Mýr­ar­garði og Odda­görðum.

Einnig er fram­halds­skóla- og iðn­nemum gef­inn kostur á því að sækja um her­bergi núna og gæti það nýst þeim sem eru á loka­ári sínu og hyggja á háskóla­nám og búsetu í hús­næði á vegum FS í haust, til þess að kom­ast fyrr að.

Fólk bíður með að þiggja íbúðir og sér til hvernig faraldurinn þróast

„Þetta COVID-ástand hefur auð­vitað haft áhrif á okkur eins og alla aðra, þannig að í augna­blik­inu eru færri á biðlistum hjá okkur en alla jafna, í eðli­legu árferði,“ segir Rebekka. Ennþá eru þó tölu­verðir biðlistar, en þeir segja ekki nema hálfa sög­una. Rebekka segir að þrátt fyrir að hund­ruð séu á biðlistum séu fleiri en venju­lega sem ekki þiggi úthlut­anir sínar og vilji sjá til hvernig málin þró­ast varð­andi far­ald­ur­inn og stað­kennsl­una.

Í upp­hafi árs 2020 tók FS stærsta stúd­enta­garð á land­inu í notkun, „kortér í COVID“, eins og Rebekka lýsir. Þá opn­aði Mýr­ar­garður, nýr stúd­enta­garður á háskóla­svæð­inu sem hýsir tæp­lega 300 manns og létti það nokkuð á biðlistum FS.

Nú er staðan sú að tölu­vert minni eft­ir­spurn er eftir her­bergjum á vegum FS en venju­legt er og ákveðið var að rýmka úthlut­un­ar­regl­urnar í því ljósi. For­gangur við úthlutun her­bergja er nú eft­ir­far­andi:

  • A. Núver­andi íbúar sem upp­fylla almenn skil­yrði um úthlutun
  • B. Erlendir stúd­entar sem njóta for­gangs (Til­tek­inn fjöldi styrk­þega á vegum mennta­mála­ráðu­neytis, Háskóla Íslands eða Ful­bright­stofn­unar. Njóta for­gangs við úthlutun tví­býla og her­bergja á Gamla Garði.)
  • C. Nemar í HÍ – lög­heim­ili utan höf­uð­borg­ar­svæðis
  • D. Nemar í HÍ – lög­heim­ili innan höf­uð­borg­ar­svæðis
  • E. Nemar í öðrum háskóla
  • EE. Nemar í fram­halds- eða iðn­skóla
  • E3. Ekki í námi

Eins og sjá má ganga núver­andi íbúar sem upp­fylla almenn skil­yrði um úthlutun fyrir þegar kemur að úthlutun her­bergja á stúd­enta­görðum FS, þá erlendir nemar sem njóta for­gangs og svo aðrir háskóla­nemar.

Aftast í röð­inni eru nemar í fram­halds- eða iðn­skólum og þeir sem ekki eru í námi. Þannig verður röðin einnig þegar kemur að úthlutun fyrir kom­andi haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár