Laun hafa hækkað í kjölfar farsótta

Spænska veikin leiddi til launa­hækk­ana og mik­ils hag­vaxtar fyrir eft­ir­lif­endur, sam­kvæmt rann­sóknum hag­fræð­inga. Hins vegar ætti ekki að búast við eins þróun í kjöl­far COVID-19.

Bráðarbirgðaspítali í Kansas í Bandaríkjunum á tímum spænsku veikinnar.
Bráð­ar­birgða­spít­ali í Kansas í Banda­ríkj­unum á tímum spænsku veik­innar. Mynd: Armed Forces Institute of Pathology/National Museum of Health and Medicine

Mann­skæðum far­sóttum, líkt og spænsku veik­inni, Svarta­dauða og Asíuflens­unni, fylgir gjarnan langt tíma­bil launa­hækk­ana og lægri vaxta. Þó er ekki hægt að búast við að sú verði raunin eftir að COVID-19 far­sótt­inni lýkur, þar sem hún hefur ekki valdið eins mörgum dauðs­föllum.

Þetta skrifar Gylfi Zoega hag­fræði­pró­fessor í nýrri jóla­út­gáfu Vís­bend­ingar, sem hægt er að lesa hér. Í grein sinni fer Gylfi yfir efna­hags­legar afleið­ingar far­sótta síð­ustu alda og hag­fræði­rann­sóknir tengdum þeim.

Samkvæmt þeim virð­ist spænska veikin hafa leitt til skamm­vinnrar kreppu og langs hag­vaxt­ar­skeiðs, bæði hér­lendis og erlendis, fyrir öld síðan. Sömu sögu er að segja um aðrar stórar far­sóttir, en nýleg rann­sókn benti til þess að far­sóttum sem valda að minnsta kosti 100 þús­und dauðs­föllum fylgi tíma­bil hærri launa og lægri sem geti varið í ára­tugi.

Möguleg ástæða launa­hækk­un­ar­innar er sú að vinnu­færu fólki hefur fækkað vegna far­sótt­ar­innar og verður því fram­lag þeirra sem eftir lifa verð­mæt­ari heldur en áður. Sömu­leiðis eykst fjár­magns­stofn þeirra sem eftir lifa, en með því minnkar fórn­ar­kostn­aður fjár­magns og vextir lækka.

„Vegna þess að COVID far­sóttin hefur sem betur fer ekki valdið eins mörgum dauðs­föllum og spænska veikin er ekki hægt að búast við því að laun hækki eða arð­semi fjár­magns lækki á næstu árum eins og gerð­ist í kjöl­far ban­væn­ustu far­sótt­anna,“ bætir Gylfi þó við. Hins vegar segir hann að efna­hags­lífið muni smám saman kom­ast í eðli­legra horf þegar bæði fram­boðs- og eft­ir­spurn­ar­á­hrif yfir­stand­andi far­sóttar fjara út.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár