Sorpa telur að íbúar framtíðarinnar í Gufunesi muni vilja losna við sig

Sorpa kallar eftir því að Reykja­vík­ur­borg skýri betur fram­tíð­ar­sýn sína á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Gufunesi. Byggða­sam­lagið, sem er í meiri­hluta­eigu borg­ar­innar, telur að íbúar muni vilja losna við mót­töku- og flokk­un­ar­stöð­ina. Ekki út af lykt­inni samt.

Teiknuð mynd af Gufunesi úr kynningu Reykjavíkurborgar á Græna planinu.
Teiknuð mynd af Gufunesi úr kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar á Græna plan­inu. Mynd: Reykjavíkurborg

„Telji Reykja­vík­ur­borg að hags­munir af upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis í Gufunesi vegi þyngra en af starf­semi mót­töku- og flokk­un­ar­stöðv­ar­innar í Gufunesi þarf sú afstaða að koma fram með skýrum hætti sem fyrst svo hægt verði að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana í tæka tíð,“ segir í umsögn Sorpu bs. um til­lögur að breyt­ingum á aðal­skipu­lagi Reykja­víkur fram til árs­ins 2040.

Umsögn Sorpu, líkt og aðrar umsagnir um breyt­ingar á aðal­skipu­lagi borg­ar­innar, var kynnt kjörnum full­trúum á fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs borg­ar­innar á dög­unum.

Þar segir að fyr­ir­tækið telji að sú upp­bygg­ing sem fyr­ir­huguð er í Gufunesi sam­ræm­ist illa starf­semi mót­töku- og flokk­un­ar­stöðvar Sorpu í hverf­inu. Þrátt fyrir að borgin leggi upp með að syðsti hluti svæð­is­ins verði áfram iðn­að­ar­svæði telja stjórn­endur Sorpu líkur á því að „fram­tíðar­í­búar svæð­is­ins muni ekki láta sér lynda rekstur mót­töku- og flokk­un­ar­stöðvar fyrir sorp í sínu næsta nágrenni.“

[adspot]

Sorpa segir að starf­sem­inni fylgi þunga­um­ferð, þrátt fyrir að lykt­ar­mengun sé óveru­leg. Fyr­ir­tækið kallar eftir því að Reykja­vík­ur­borg, sem á 60,5 pró­sent hlut í byggða­sam­lag­inu, geri frek­ari grein fyrir fram­tíð­ar­sýn sinni á starf­semi Sorpu í Gufunesi.

Telja þrengt að starfseminni á teikningum borgarinnar

Í umsögn Sorpu er birt teiknuð mynd af fram­tíð­ar­sýn Reykja­vík­ur­borgar á Gufunes, sem tekin úr glæru­sýn­ingu borg­ar­yf­ir­valda um Græna planið svo­kall­aða. Stjórn­endur Sorpu telja mót­töku- og flokk­un­ar­stöð­inni snið­inn þröngur stakkur, af teikn­ing­unni að dæma.

„Verði þessi sýn að veru­leika yrði þannig erfitt að breyta mót­töku- og flokk­un­ar­stöð­inni eða stækka ef þörf krefði,“ segir Sorpa. Fram kemur að það gæti kallað á „við­eig­andi ráð­staf­anir“ af hálfu Sorpu.

Þessar við­eig­andi ráð­staf­anir gætu að óbreyttu þýtt þörf á að byggja nýja mót­töku- og flokk­un­ar­stöð Sorpu fjarri Gufunesi, sam­kvæmt umsögn fyr­ir­tæk­is­ins.

Sorpa minnir á það í umsögn sinni að ef það fari svo að krafa verði gerð um að mót­töku- og flokk­un­ar­stöðin víki úr Gufunesi á gild­is­tíma skipu­lags­ins þurfi slík ákvörðun og fram­tíð­ar­stað­setn­ing að liggja fyrir að minnsta kosti fimm árum áður en stöð­inni yrði gert að loka í Gufunesi, til að tryggja að ekki verði rof í þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár