Þórhildur Ólöf ráðin forstjóri Íslandspósts

Þór­hildur Ólöf Helga­dóttir hefur verið ráðin sem nýr for­stjóri Íslands­pósts, en hún hefur gegnt starfi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs þar síðan í fyrra. Hún er fyrsta konan sem sest í for­stjóra­stól­inn hjá Íslands­pósti.

Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspósts.
Þór­hildur Ólöf Helga­dóttir, for­stjóri Íslands­pósts. Mynd: Aðsend

Þór­hildur Ólöf Helga­dóttir hefur verið ráðin í starf for­stjóra Íslands­pósts og hefur hún þegar tekið til starfa. Áður gegndi Þór­hildur starfi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs fyr­ir­tæk­is­ins en hún tók við þeirri stöðu í lok sum­ars 2019.

Þór­hildur er fyrsta konan til að gegna stöðu for­stjóra Póstsins, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu þaðan. Hún tekur við af Birgi Jónssyni, sem sagði starfi sínu lausu nýlega.

„Ég er mjög ánægð með að fá þetta tæki­færi og það mikla traust sem mér er sýnt. Póst­ur­inn hefur gengið í gegnum mikið umbreyt­ing­ar­ferli á síð­ustu miss­erum til þess að takast á við áskor­anir í starf­semi félags­ins. Við erum stolt af árangri okkur en höldum áfram að styrkja fyr­ir­tækið og bæta þjón­ust­una,“ er haft eftir Þór­hildur Ólöfu í frétta­til­kynn­ingu pósts­ins.

Auk starfa sinna fyrir Íslands­póst hefur Þór­hildur verið fjár­mála­stjóri 66°Norður, bíla­um­boðs­ins Heklu og Securitas. Þá hefur hún setið í stjórn Sjóvár-Almennra og átt sæti í stjórnum dótt­ur­fé­laga þeirra fyr­ir­tækja sem hún hefur starfað hjá. Þór­hildur er með cand. oecon-próf frá Háskóla Íslands.

„Við fögnum því sann­ar­lega að fá jafn öfl­ugan stjórn­anda og Þórhildi Ólöfu Helga­dóttur til að takast á við þau fjöl­breyttu verk­efni sem bíða Póstsins á miklum breyt­inga­tímum og leiða þetta mik­il­væga almanna­þjón­ustu­fyr­ir­tæki inn í fram­tíð­ina,“ er haft eftir Bjarni Jónssyni, for­manni stjórnar Íslands­pósts, í frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár