Ellefu urðu útsett fyrir smiti á heimili Víðis

Auk Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns og eig­in­konu hans eru fimm manns í nærum­hverfi hjón­anna, sem voru gest­kom­andi á heim­ili þeirra síð­asta laug­ar­dag, smituð af kór­ónu­veirunni. Víðir segir hjónin hafa verið veru­lega slöpp í gær, en skárri í dag.

Fimm manns sem voru gestkomandi á heimili Víðis og eiginkonu hans síðasta laugardag eru smituð af kórónuveirunni.
Fimm manns sem voru gest­kom­andi á heim­ili Víðis og eig­in­konu hans síð­asta laug­ar­dag eru smituð af kór­ónu­veirunni. Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra deildi því með lands­mönnum í kvöld að alls hefðu tólf manns orðið útsett fyrir smiti vegna kór­ónu­veirusmits eig­in­konu hans, að honum með­töldum. Ekki hefur tek­ist að rekja upp­runa smits­ins.

Samkvæmt Facebook-færslu sem Víðir birti var um að ræða fjöl­skyldu­með­limi og vina­fólk sem var gest­kom­andi á heim­ili þeirra hjóna laug­ar­dag­inn 21. nóv­em­ber, alls um tíu manns.

Fimm þeirra sem komu í heim­sókn smit­uð­ust af veirunni. Þeirra á meðal er vina­fólk hjón­anna, sem býr á lands­byggð­inni en komu til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins síð­asta laug­ar­dag og dvelja tíma­bundið á heim­ili Víðis sökum þess að þau þurftu að sækja lækn­is­þjón­ustu í borg­ina.

Víðir rekur í færslu sinni hverjir hafi verið útsettir fyrir smiti á heim­ili þeirra þennan laug­ar­dag. „Dætur [vina­fólks­ins utan af landi] kíktu stutt í kaffi á sunnu­deg­inum. Vinkona okkar kom stutt við í kaffi líka. Börn okkar, tengda­dóttir og barna­barn komu einnig við og um kvöldið komu til okkar vina­hjón sem stopp­uðu stutt. Í öllum til­fellum var passað upp á fjar­lægðir á milli okkar og gesta og reyndum að forð­ast sam­eig­in­lega snertifleti. Þegar smitrakn­ing hafi lokið að fara yfir til­felli okkar þótti ljóst að 12 voru útsettir að mér með­töldum og fóru í sótt­kví,“ segir Víðir í færslu sinni.

Þar segir hann einnig frá að búið sé að fara vel yfir öll sam­skipti sem þau hjónin áttu við gesti sína og fundið út að „fjar­lægð sem var haldin var um eða yfir 2 metra við alla.“

„Hins vegar er ljóst að við pössuðum ekki upp á alla sam­eig­in­lega snertifleti. Vatnsskanna, kaffi­bollar og glös hafa senni­lega verið sam­eig­in­legir snertifletir sem hafa dugað til að smita,“ skrifar Víðir.

Þungbært að þetta sé staðan

„Sjálfur hef ég verið manna dug­leg­astur við að hvetja alla til að passa eigin sótt­varnir og því þung­bært að þetta sé staðan. Við getum ekki annað en vonað að við öll, eins og allir þeir fjöl­mörgu sem eru að berj­ast við þennan óvætt komum heil út úr þessu,“ skrifar Víðir, en í færslu hans kemur einnig fram að þau hjónin hafi verið veru­lega slöpp í gær, eftir að hafa verið með væg ein­kenni í fyrstu. Dagurinn í dag hafi verið skárri.

Hann segir að þau hjónin hafi þrengt veru­lega þann hóp sem þau hafi umgeng­ist frá því að far­ald­ur­inn kom til lands­ins. Það hafi þau gert til að lág­marka áhættu á því að bera smit á milli. Víðir segir að eig­in­kona hans hafi farið að finna fyrir ein­kennum síð­asta mánu­dag og farið strax heim úr vinnu og pantað tíma í sýna­töku.

„Uppruni smits­ins hjá kon­unni minni er óþekktur og hefur smitrakn­ing þar ekki skilað árangri. Hún vinnur á skrif­stofu og eina sem hún fór dag­ana fyrir ein­kennin var í vinn­una og í versl­anir. Vinnu­fé­lagar hennar hafa allir farið í skimun og reynst nei­kvæðir,“ segir í færslu Víðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár