Aðstæður á Landakoti meginorsök hópsýkingarinnar

Engin loft­ræst­ing ásamt fáum sal­ernum, ófull­nægj­andi hólfa­skipt­ingu og litlum kaffi­stofum eru meðal fjöl­margra ástæðna COVID-19 hóp­sýk­ing­ar­innar sem braust þar út og hefur kostað fjölda manns lífið, sam­kvæmt skýrslu frá Land­spít­al­anum.

Ástand hús­næðis, loft­skipta og aðbún­aður á Landa­koti er ófull­nægj­andi fyrir starf­sem­ina sem þar fer fram og lík­lega meg­in­or­sök þeirra miklu smit­dreif­ingar sem varð þegar hóp­sýk­ing breidd­ist út á spít­al­anum í síð­asta mán­uði. Þetta er mat Lovísu Bjarkar Ólafs­dóttur, sér­fræð­ings í smit­sjúk­dómum og sýk­ing­ar­vörnum hjá Land­spít­al­anum, sem skrif­aði skýrslu fyrir Land­spít­al­ann um hóp­sýk­ing­una.

Í skýrsl­unni er farið yfir atburða­rás hóp­sýk­ing­ar­innar, en rekja mátti alls 98 COVID-19 til­felli til hennar frá 22.-29. októ­ber. Þar af voru 52 starfs­menn og 46 sjúk­lingar. Með­al­aldur starfs­manna var 43 ár, en með­al­aldur sjúk­ling­anna var 84 ár. Smitið náði til fjög­urra deilda, en á einni deild­inni sýkt­ust allir 14 sjúk­ling­arnir af veirunni. Í annarri deild smit­uð­ust 14 af 15 sjúk­lingum, eða 93 pró­sent þeirra, og í enn annarri sýkt­ust sjö af átta sjúk­lingum.

Samkvæmt Lovísu er lík­legt að smit hafi borist inn á stofn­un­ina með nokkrum ein­stak­lingum. Hins vegar telur hún einnig hugs­an­legt að nokkur smit­anna milli starfs­manna megi rekja til náinna sam­skipta þeirra vegna fjöl­skyldu- og vina­tengsla utan vinnu­staðar, en hún bætir við að nýgengi smita í sam­fé­lag­inu hafi verið með hæsta móti á tíma hóp­sýk­ing­ar­innar.

Lovísa segir þó að margir sam­verk­andi þættir hafi valdið þá miklu útbreiðslu sem hóp­sýk­ingin náði, en flestir þeirra snúa að ófull­nægj­andi aðbún­aði á spít­al­anum.

Engin loft­ræst­ing er á sjúkra­stofum á Landa­koti, en sam­kvæmt Lovísu er ein­göngu útsog af snyrt­ingum á legu­deildum, en eng­inn inn­blástur af nýju lofti. Í skýrsl­unni kemur einnig fram að starfs­fólk hefur kvartað undan lélegri loft­ræst­ingu á öllum vinnu­svæðum spít­al­ans.

Til við­bótar við lélega loft­ræst­ingu kom í ljós að beitt hafi verið svo­kall­aðri kæfisvefns­véla­með­ferð á einum sjúk­lingi spít­al­ans, en síðar kom í ljós að hann var smit­aður af veirunni. Þessi með­ferð eykur dropa­fram­leiðslu ein­stak­linga og veldur því að vélin dreifir úða­ögnum frá önd­un­ar­færum í and­rúms­loftið. Að mati Lovísu gæti þessi dreif­ing, ásamt lélegri loft­ræst­ingu, hafa átt stóran þátt í því að smitin dreifð­ust vel innan spít­al­ans.

3 salerni og 2 sturtur fyrir 19 sjúklinga

Til við­bótar við lélega loft­ræst­ingu nefnir Lovísa marga aðra galla í aðbún­aði á spít­al­anum sem urðu þess vald­andi að sótt­varnir hafi ekki verið nægi­legar þar. Til að mynda voru fjöl­margir snertifletir inniliggj­andi sjúk­linga, líkt og sam­eig­in­leg sal­ern­is­að­staða, dag­stofa, tækja­salur og hópa­með­ferðir sjúkra- og iðju­þjálfa. Á einni deild voru ein­ungis þrjú sal­erni og tvær sturtur fyrir 19 sjúk­linga.

11-15 fermetra kaffistofur

Aðstöðu og ábún­aði starfs­manna er einnig ábóta­vant sam­kvæmt Lovísu og var það til þess fallið að auka líkur á smit­dreif­ingu meðal starfs­fólks. Sem dæmi fyrir því nefnir hún að bún­ings­að­staða sé þröng og kaffi­stofur litlar, en stærð þeirra er á bil­inu 11 til 15 fer­metrar. Oft hefði reynst erfitt að halda tveggja metra fjar­lægð þegar starfs­menn­irnir tækju niður grímur í mat­ar­hléum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár