Þorgerður Katrín fór í golf utan höfuðborgarsvæðisins þvert á tilmæli GSÍ

Formaður Við­reisnar fór í golf í Hvera­gerði þrátt fyrir til­mæli Golf­sam­bands Íslands til kylfinga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að virða tak­mark­anir og leita þannig ekki til golf­valla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. „Þetta voru mis­tök sem ég mun læra af,“ segir hún.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þrátt fyr­ir til­mæli Golf­sam­bands Íslands (GSÍ) um að kylf­ing­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leit­uðu ekki til golf­valla utan þess til þess að fara í golf spil­aði for­maður Við­reisnar, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, golf síð­deg­is í dag á golf­vell­in­um í Hvera­gerði. Frá þessu er greint á mbl.is í kvöld.

Fram kemur í frétt­inni að á Face­book-síðu Golf­klúbbs Hvera­gerðis hafi í gær verið til­kynnt lok­un vall­ar­ins fyr­ir öðrum en fé­lags­mönn­um frá há­degi 9. októ­ber. Þor­gerður Katrín sé ekki fé­lags­maður.

Þor­gerður Katrín segir í sam­tali við mbl.is þetta vera „nátt­úr­lega al­ger­lega óaf­sak­an­legt í ljósi til­mæla. Ég er alltaf í sveit­inni en það af­sak­ar ekki það að hafa farið í golf.“

Þá seg­ist hún hafa farið í golf en ekki vera með­lim­ur í klúbbn­um – þannig að þá sé það ekki heim­ilt „eins og maður seg­ir, sam­kvæmt til­mæl­um, ef maður á að fara ná­kvæm­lega eft­ir þeim“.

Segist hafa dvaldið í Ölfusi

Á mbl.is kemur enn fremur fram að Þor­gerður Katrín hafi dvalið í húsi sínu í Ölfusi frá því í gær. Hún segir að til­mæli sem golf­sam­bandið sendi frá sér hafi kveðið á um að fólk leit­aði ekki sér­stak­lega frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á golf­velli utan þess, en hafi ekki til­tekið að fólk sem væri þegar utan höf­uð­borg­ar­svæðis­ins ætti ekki að fara í golf.

„Það var ekki verið að banna fólki að fara í golf ef þú ert þegar úti á landi. Síðan má al­veg segja hvort þetta sé rétt eða rangt. Ég get ekk­ert verið að af­saka það hér. Ég bara er alltaf hér en fólk get­ur auð­vitað litið á það öðru­vísi. Það hefði verið heppi­legra að fara ekki en til­mæl­in eru þau að þú far­ir ekki sér­stak­lega út á land til að spila golf,“ seg­ir Þor­gerður Katrín við mbl.is.

Á vef­síðu Golf­sam­bands Íslands beinir sam­bandið þeim til­mælum til kylfinga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að virða tak­mark­anir og leita þannig ekki til golf­valla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, enda hafi yfir­völd beint því til höf­uð­borg­ar­búa að vera ekki á ferð­inni til eða frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu meira en nauð­syn krefur.

Biðst afsökunar

Þor­gerður Katrín brást við á Facebook um kvöldið og sagði að henni hefði orðið á og að hún bæð­ist inni­legrar afsök­unar.

„Ég hef verið mikið í sveit­inni minni í Ölfusi und­an­farið, þar sem við fjöl­skyldan verjum alla jafna miklum tíma enda okkar annað heim­ili. Við hjónin tókum þá ákvörðun í dag að fara í golf seinni­part­inn í Hvera­gerði eins og við gerum iðu­lega. Það hefði ég ekki átt að gera.

Þetta var yfir­sjón af minni hálfu, og ég biðst afsök­unar á að hafa ekki gert betur. Ég hef eftir fremsta megni fylgt til­mælum og veit að það eru allir að vanda sig á þessum skrýtnu tímum. Það stóð aldrei til hjá mér að fara fram­hjá neinum reglum. En þetta voru mis­tök sem ég mun læra af,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár