Þórdís Kolbrún: Myndin með vinkonunum „taktlaus og mistök“

Vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir það snúið að kalla eftir mann­eskju­legum mann­eskjum í póli­tík, en leyfa þeim svo ekki að vera mann­eskjur. „Gleymum því ekki að það er stór hluti þess að vera mann­eskja, að gera mis­tök, vera takt­laus.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

„Hún var takt­laus og mis­tök, svona eftir á að hyggja. Mynd­málið var þannig og tíma­setn­ingin rétt eftir að til­kynnt var um afdrifa­ríkar ákvarð­anir um komur til lands­ins.“ Þetta segir Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í við­tali við Morg­un­blaðið um myndir af vin­konu­hitt­ingi hennar um miðjan ágúst, þar sem þær voru mynd­aðar nokkrum sinnum saman í einum hnappi.

Myndin sætti mik­illi gagn­rýni í ljósi tveggja metra regl­unnar svoköll­uðu sem var ekki við­höfð við þær mynda­tök­ur.

Rík­is­stjórnin, sem Þórdís Kolbrún situr í, hafði nokkrum vikum áður hert reglur vegna þess að önnur bylgja kór­ónu­veirusmita var að gera vart við sig. Á blaða­manna­fundi í lok júlí sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra: „„Þar sem fólk kemur saman og í allri starf­semi verði tveggja metra reglan við­höfð á milli ein­stak­linga. Það er að segja að hún verði ekki lengur val­kvæð heldur skyldu­bund­in. Þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjar­lægð milli ótengdra ein­stak­linga þá er kraf­ist notk­unar and­lits­grímu sem hylur nef og munn.“

[adspot]Rúmri viku eftir að hertar aðgerðir tóku gildi skrif­aði Þór­dís grein í Morg­un­blaðið með fyr­ir­sögn­inni: „Þetta veltur á okk­ur“. Þar fjall­aði hún um þann upp­takt í smitum sem hafði verið frá lokum júlí­mán­að­ar. Í grein­inni sagði: „Auð­vitað von­um við öll að þetta bak­slag end­­ur­taki sig ekki og kúrf­an fletj­ist út. Í því skipt­ir mestu að við, hvert og eitt okk­­ar, gæt­um að sótt­­vörn­um í dag­­legu líf­i.“

Takmarkarnir hertar daginn áður

Föstu­dag­inn 15. ágúst ákváðu stjórn­völd að herða veru­lega tak­mark­anir á landa­mærum Íslands, sem í reynd lok­uðu land­inu að mestu fyrir komu ferða­manna. Við það tæki­færi skrif­aði Þórdís Kolbrún í stöðu­upp­færslu á Facebook að áfram væru „per­sónu­bundnar sótt­varnir langöflug­asta tækið til að berja þessa veiru niður og hert­ari aðgerðir á landa­mærum koma aldrei í stað­inn fyrir það. Við búum í góðu sam­fé­lagi. Sterku sam­fé­lagi. Og við erum heppin með það teymi sem ráð­leggur okkur í gegnum þann þátt þessa risa stóra verk­efn­is.“

Vin­konu­hitt­ing­ur­inn sem röð mynda voru teknar af átti sér svo stað dag­inn eftir, laug­ar­dag­inn 16. ágúst.

Stór hluti þess að vera manneskja að gera mistök

Þórdís Kolbrún segir í Morg­un­blað­inu í dag að hún hafi verið ráð­herra í fjögur ár án þess að lenda í upp­á­komum sem þessum og að hún hafi kannski mátt búast við að það gerð­ist fyrr eða síðar. „En ég get svo sem ekki kvartað, þetta kom við mig en við þekkjum alveg dæmi um mun per­sónu­legri gagn­rýni. Mér hefur þótt það mín gæfa í stjórn­málum að ég kom til­tölu­lega hratt inn í þau, þannig að ég hef getað verið ég sjálf, án ein­hvers póli­tísks far­ang­urs úr for­tíð. Ég finn að fólki finnst það þægi­legt að ég sé ekki að setja mig í eitt­hvert hlut­verk stjórn­mála­manns­ins, en ég skil líka betur núna að sumir gera það. Það er bara ekki mín leið. Ég ætla að vera ég sjálf. En það er snúið að kalla eftir mann­eskju­legum mann­eskjum í póli­tík, en leyfa þeim svo ekki að vera mann­eskjur. Gleymum því ekki að það er stór hluti þess að vera mann­eskja, að gera mis­tök, vera takt­laus, hafa ekki alltaf hugsað hlut­ina til enda.“

Hún seg­ist ekki gera kvartað yfir sinni stöðu eða tæki­færum sem hún hafi fengið, en stundum finn­ist henni ágengnin keyra úr hófi. „Og margir stjórn­mála­menn sem þurfa að þola það marg­falt á við mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár