ASÍ vill sjá hlutabótaleiðina framlengda fram á næsta sumar

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands telur að rétt væri að fram­lengja hluta­bóta­leið­ina fram á næsta sumar, í ljósi óvissunnar á vinnu­mark­aði. Mið­stjórnin leggur einnig til að atvinnu­leys­is­trygg­inga­tíma­bilið verði lengt í þrjú ár að nýju.

Alþýðu­sam­band Íslands leggur til að grunnatvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar um 9,9 pró­sent upp í 318.250 kr., tekju­tengdar bætur verði greiddar í sex mán­uði frá fyrsta degi atvinnu­leysis og að þak þeirra verði hækkað upp í 650.000 kr. á mán­uði, auk þess sem þak tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta verði hækkað þannig að fyrri tekjur upp að dag­vinnu­tekju­trygg­ingu, sem í dag nemur 335.000 kr., skerði ekki tekju­tengdar atvinnu­leys­is­bætur.

Þá leggur ASÍ til að hluta­bóta­leiðin verði fram­lengd í núver­andi mynd fram á næsta sumar og að leng­ing bóta­réttar verði lengdur um hálft ár, úr 30 mán­uðum og upp í 36 mán­uði.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í sam­þykkt frá mið­stjórn ASÍ, en þar segir að við þær aðstæður sem nú eru á vinnu­mark­aði sé brýnna sem aldrei fyrr að gera umbætur á atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerf­inu. Forða þurfi fólki sem misst hefur vinn­una frá enn verri áföllum en felist í atvinnu­missi með því að tryggja afkomu­ör­yggi þess og aðstoða fólk við að kom­ast aftur út á vinnu­mark­að­inn.

ASÍ leggur einnig til að fjár­magn til vinnu­mark­aðs­að­gerða verði tryggt í fjár­mála­á­ætlun, svo halda megi úti vinnu­mark­aðs­að­gerðum með þjón­ustu, stuðn­ingi og námstæki­færum fyrir atvinnu­leit­endur og sömu­leiðis að lög um atvinnu­leys­is­trygg­ingar verði end­ur­skoðuð til að mæta betur mögu­leikum atvinnu­leit­enda til að nýta námsúr­ræði og önnur virkni­úr­ræði sem eru í boði og styrkja stöðu sína á vinnu­mark­aði.

Hvergi hafi gengið að „svelta fólk út af bótum“

„Atvinnu­þátt­taka er mjög há á Íslandi og atvinnu­leysi alla jafna lágt. Engu að síður eru atvinnu­leys­is­trygg­ingar hér hærri en víða ann­ars staðar. Þetta afsannar þá lífs­seigu kenn­ingu að atvinnu­leys­is­trygg­ingar séu letj­andi til atvinnu­leitar. Hvergi í heim­inum hefur sú aðferð að svelta fólk út af bótum skilað árangri,“ segir í sam­þykkt mið­stjórnar ASÍ, en þar segir einnig að skortur á afkomu­ör­yggi geti verið mjög dýr­keyptur sam­fé­lags­lega.

„Tekju­fall ein­stak­linga hefur dómínó-áhrif á hag­kerfið í heild sinni og getur leitt til þess að kreppan vegna COVID-19 verður dýpri og lang­vinn­ari en ella,“ segir í sam­þykkt mið­stjórn­ar­innar.

Reikna má með að tek­ist verði á um atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið á vett­vangi stjórn­mál­anna á næst­unni, en ­Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði meðal ann­ars í við­tali í Kast­ljósi í gær­kvöldi að honum hugn­að­ist ekki að ráð­ast í þá hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur farið fram á. Frekar kæmi til greina í hans huga að fram­lengja tíma­bundið tekju­teng­ing­ar­tíma­bil atvinnu­leys­is­bót­anna, sem er í dag þrír mán­uð­ir. For­svars­menn ASÍ hafa í dag lýst yfir von­brigðum með þessi orð ráð­herra.

Guðrún Johnsen hag­fræð­ingur og efna­hags­ráð­gjafi VR fjall­aði um atvinnu­leys­is­bætur í erindi sínu á sam­ráðs­fundi stjórn­valda um lífið með veirunni fyrr í dag. Þar sagði hún að rann­sóknir sýndu að hóf­legar hækk­anir atvinnu­leys­is­bóta hefðu engin áhrif á atvinnu­leysi, þar sem atvinnu­leys­is­trygg­ingar væru tíma­bundnar.

Í minn­is­blaði um til­lögur ASÍ segir að atvinnu­leysi hafi þegar verið vax­andi áður en heims­far­ald­ur­inn skall á og að aukin hætta sé á lang­tíma­at­vinnu­leysi nú. Því sé rétt að bæði hækka bæt­urnar, lengja tekju­teng­ing­ar­tíma­bilið, minnka skerð­ingar og lengja bóta­tíma­bilið aftur í 36 mán­uði, en það var stytt niður í 30 mán­uði árið 2015.

„Mikil óvissa ríkir í atvinnu­líf­inu og ákveðnar atvinnu­greinar eru nán­ast óstarf­hæfar. Ekki er hægt að segja við fólk að leggja harðar að sér í atvinnu­leit við slíkar aðstæður, þegar engin störf er að hafa,“ segir í minn­is­blaði mið­stjórnar ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár