Tíu staðreyndir um sumarveðrið 2020

Það hafa vissu­lega skipst á skin og skúrir í sumar og með­al­hit­inn ekki verið sér­stak­lega hár víð­ast hvar. En fleiri sól­ar­stunda höfum við fengið að njóta en oft áður og úrkoman hefur meira að segja reynst undir með­al­lagi. Og ágúst lofar góðu.

Dæmigerð veðurkort sumarsins.
Dæmigerð veð­ur­kort sum­ars­ins. Mynd: Skjáskot: Veðurstofan

1. Einar spáði svölu sumri

Sum­ar­dag­ur­inn fyrsti kom upp á 23. degi apr­íl­mán­aðar í ár. „Það eru ívið meiri líkur á því en minni að sum­arið verði í sval­ara lagi,“ sagði Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur og rit­stjóri Bliku.is, þann dag í sam­tali við Kjarnann er hann var beð­inn um að rýna í lang­tíma­spár til næstu þriggja mán­aða. Hann sagði marga óvissu­þætti uppi en að útlit væri að minnsta kosti fyrir gott vor­veður.

2. Vorveðrið almennt gott

Spá Einars reynd­ist rétt því að maí reynd­ist óvenju þurr og sól­ríkur norð­aust­an­lands. Hiti var alls staðar yfir með­al­lagi áranna 1961 til 1990 en um og yfir með­al­tali síð­ustu tíu ára.

Með­al­hiti í Reykja­vík og á Akureyri var 0,2 stigum yfir með­al­lagi síð­ustu tíu ára. Hæsti hiti mán­að­ar­ins mæld­ist 19,7 stig á Skjald­þings­stöðum þann 29. Mest frost í mán­uð­inum mæld­ist -12,3 stig á Gagn­heiði þann 10. Mest frost í byggð mæld­ist -9,8 stig á Gríms­stöðum á Fjöllum sama dag.

Þó nokkur snjór var á hálend­inu en allautt allan mán­uð­inn bæði í Reykja­vík og á Akureyri.

[adspot]

3. Hlýr júní (svona á íslenskan mælikvarða)

Almennt var hlýtt á land­inu í júní og tíð hag­stæð, að mati Veð­ur­stofu Íslands. Þá er nú ekki verið að miða við Spán­ar­hlý­indi eins og margir Íslend­ingar eru sólgnir í en fáir fengu að njóta í ár. Með hlý­indum í júní er átt við að með­al­hiti var yfir með­al­lagi þó „ekki væru þau hlý­indi afbrigði­leg á neinn hátt,“ skrif­aði Trausti Jónsson veð­ur­fræð­ingur á blogg­síðu sína. „Sam­keppnin á þess­ari öld er þó hörð – flestallir júní­mán­uðir eftir alda­mót hafa verið hlýir,“ skrifar Trausti.

Hitanum var þó aðeins mis­skipt. Um landið norð­austan- og aust­an­vert var mán­uð­ur­inn í „6. hlýjasta sæti á öld­inni,“ eins og Trausti orð­aði það, en suð­vest­an­lands var sval­ara og hiti í „12. hlýjasta sæti“.

Með­al­hiti í Reykja­vík var 10,2 stig, 0,1 stigi yfir með­al­lagi síð­ustu tíu ára. Á Akureyri var með­al­hit­inn 11,1 stig, 1,1 stigi yfir með­al­lagi síð­ustu tíu ára.

Júní var þó bjart­ari en margir nafnar hans síð­ustu ára­tug­ina. Sól­skins­stundir í Reykja­vík mæld­ust 6,1 stund yfir með­al­lagi áranna 1961 til 1990 og á Akureyri mæld­ust sól­skins­stund­irnar 222,4, sem er 45,8 stundum fleiri en í með­al­ári.

4. Hita- og kuldametin í júní

Hæsti hiti í júní mæld­ist 24,2 stig á Mörk í Landi. Mest frost mæld­ist -6,3 stig á Gagn­heiði en mest frost í byggð mæld­ist -4,6 stig á Reykjum í Fnjóska­dal.

5. Júlí með þeim kaldari á öldinni

Júlí síð­ast­lið­inn fölnar í sam­an­burði við sama mánuð í fyrra en það er varla rétt­látur sam­an­burður því þá var með­al­hit­inn 13,4 stig – sá mesti á öld­inni.

Júlí í ár var fremur kaldur miðað við það sem algeng­ast hefur verið á síð­ari árum þó að hiti hafi hins vegar verið nærri með­al­lagi áranna 1961 til 1990. Miðað við það sem verið hefur á öld­inni, var hann ýmist næst kaldastur eða þriðji kaldastur síð­ustu 20 árin.

En hann var í raun alls konar. Um hann miðjan gekk ill­viðri yfir og vind­hraða­met féllu, svo dæmi séu tekin. Einna hlýj­ast var um landið suð­aust­an­vert, en hvað kald­ast um landið norð­an­vert og norð­aust­an­vert þar sem mán­uð­ur­inn var all­víða kald­ari en júní.

Með­al­hiti í Reykja­vík var 10,7 stig, -1,3 stigi neðan með­al­lags síð­ustu tíu ára. Á Akureyri var með­al­hit­inn 10,1 stig og því -1,3 stigi neðan með­al­lags síð­ustu tíu ára.

6. Þrettán frostanætur í júlí

Hæsti hiti mán­að­ar­ins mæld­ist 24,8 stig á Egils­staða­flug­velli. Mest frost mæld­ist -2,0 stig á Gríms­stöðum á Fjöllum og í Mið­fjarð­ar­nesi. Á stöð­inni á Dyngju­jökli fór frostið mest -9,5 stig þann 25. „Ekki hefur sést meira frost á hita­mæli á land­inu í júlí,“ segir í sam­an­tekt Veð­ur­stofu Íslands. Frost­nætur urðu alls 13 í mán­uð­inum sem er óvenju­legt, en hins vegar var það aðeins á fáum stöðvum í senn, í ýmsum lands­hlutum.

En samt var hann svo bjartur og sól­skins­stund­irnar í Reykja­vík voru til að mynda um þrjá­tíu fleiri en að með­al­tali á árunum 1961 til 1990. Á Akureyri mæld­ust sól­skins­stund­irnar 187,8 og er það 29 stundum fleiri en í með­al­ári.

7. Blautur júní framan af

Vindur og úrkoma voru víð­ast hvar nærri með­al­lagi í júní á heild­ina litið en þegar litið er til tutt­ugu fyrstu daga mán­að­ar­ins kemur í ljós að úrkoma í Reykja­vík hafi verið þá verið orðin hátt í 50 pró­sent umfram með­al­lag.

Þegar Veð­ur­stofan gerði mán­uð­inn í heild upp kom í ljós að úrkoma í Reykja­vík mæld­ist 49,6 mm í júní sem er rétt undir með­al­lagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mæld­ist hún 31,1 mm sem er 10 pró­sent umfram með­al­lag áranna 1961 til 1990.

Dagar þegar úrkoma mæld­ist 1,0 mm eða meira í Reykja­vík voru 13, tveimur fleiri en í með­al­ári. Á Akureyri mæld­ist úrkoman 1,0 mm eða meiri í 10 daga sem er fjórum fleiri en í með­al­ári.

8. Úrkomumet í júlí

Úrkoma í Reykja­vík mæld­ist 44,7 mm í júlí, 14 pró­sent undir með­al­lagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mæld­ist hún 35,3 mm og er það rétt ofan með­al­lags áranna 1961 til 1990. Dagar þegar úrkoma mæld­ist 1,0 mm eða meira í Reykja­vík voru 7,3 færri en í með­al­ári. Á Akureyri mæld­ist úrkoman 1,0 mm eða meiri 6 daga, einum færri en í með­al­ári.

Mikil úrkoma féll um norð­vestan- og norð­an­vert landið í hvass­viðri um miðjan mánuð og féllu sól­ar­hringsúr­komu­met á fáeinum stöðvum. Vart varð við skriðu­föll og ár urðu vatns­miklar.

9. Meiri úrkoma – lægri hiti

Ef litið er til fyrstu sjö mán­aða árs­ins 2020 var með­al­hiti í Reykja­vík 4,7 stig og því -0,6 stigum undir með­al­lagi síð­ustu tíu ára. Með­al­hit­inn rað­ast í 41. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var með­al­hiti mán­að­anna sjö 4,1 stig, -0,4 stigum undir með­al­lagi síð­ustu tíu ára. Með­al­hit­inn þar rað­ast í 35. sæti á lista 140 ára. Úrkoman hefur hins vegar verið 13 pró­sent umfram með­al­lag í Reykja­vík, en 30 pró­sent umfram með­al­lag á Akureyri.

10. Blautir dagar syðra – hlýir eystra

En sum­arið er ekki búið. Hálfur ágúst­mán­uður er eftir. Hann byrj­aði reyndar sér­deilis vel aust­an­til á land­inu, þar sem hit­inn hefur farið vel yfir 20 gráð­urnar en var hins vegar vot­viðra­samur um hríð syðra.

Ef veðrið fyrstu tíu daga mán­að­ar­ins er skoðað, líkt og Trausti hefur nú gert á blogg­síðu sinni, kemur í ljós að með­al­hit­inn í höf­uð­borg­inni var -0,7 stigum neðan með­al­tals sem skip­aði honum í þriðja neðsta sæti ágúst­mán­aða síð­ustu tutt­ugu ára hvað hlý­indi varðar. Það sem af er öld­inni voru dag­arnir tíu kald­astir árið 2013, með­al­hiti þá 10,4 stig, en hlýj­astir voru þeir árið 2003, með­al­hiti 13,5 stig.

Á Akureyri er með­al­hiti dag­ana tíu 1,4 stigum ofan með­al­lags áranna 1991 til 2020, en 2,1 stigi ofan með­al­lags síð­ustu tíu ára.

Úrkoma í Reykja­vík mæld­ist 39,2 mm, nálægt tvö­falt með­al­lag, en 27,2 mm á Akureyri sem er meira en tvö­falt með­al­lag. Sól­skins­stundir voru aðeins 12,1 í Reykja­vík og hafa aðeins einu sinni verið færri fyrstu tíu daga ágúst­mán­aðar. Það var árið 1916.

En skjótt geta veður skipst í lofti. Jafnvel í ágúst. Í gær var sól­ríkt suð­vest­an­lands eftir rign­ingar dag­ana á undan. Og veð­ur­spár næstu daga lofa góðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár