Sumarið verður líklega „í svalara lagi“

Við höfum þurft að þola ill­viðri vetr­ar­ins í ýmsum skiln­ingi. Og nú, á sum­ar­deg­inum fyrsta, er ekki úr vegi að líta til veð­urs­ins fram undan. Af þeim spám eru bæði góðar og slæmar fréttir að hafa.

Senn fara sumarblómin að springa út og færa litagleði inn í líf okkar.
Senn fara sum­ar­blómin að springa út og færa lita­gleði inn í líf okkar. Mynd: Aðsend

„Það eru ívið meiri líkur á því en minni að sum­arið verði í sval­ara lagi,“ segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur og rit­stjóri Bliku.is, beð­inn um að rýna í lang­tíma­spár til næstu þriggja mán­aða.

Þetta voru ef til vill ekki frétt­irnar sem lands­menn vildu fá á sum­ar­dag­inn fyrsta eftir ill­viðri vetr­ar­ins í ýmsum skiln­ingi. En ekki skal örvænta. Þetta eru aðeins spár og þær eru að auki háðar ýmsum óvissu­þáttum. Góðu frétt­irnar eru þær að ekk­ert hret er í kort­unum næstu daga.

Ýmsar stofn­anir gefa út lang­tíma­spár til þriggja mán­aða í senn. „Það getur verið gaman að skoða þessar spár en þær eru ekki alltaf réttar,“ bendir Einar á. „Evrópska reikni­m­ið­stöðin rataði vel á þetta í vetur en það hefur ekki gengið eins vel með sum­ar­spárnar hjá þeim und­an­farin ár.“

[adspot]

Í spá Evrópsku reikni­m­ið­stöðv­ar­innar fyrir maí, júní og júlí kemur fram í sjónum í kringum landið er enn kuldi eftir vet­ur­inn. Það eigi sér­stak­lega við um haf­svæðin sunnan og suð­austan lands­ins. „Það verður ein­hver vor­koma í sjónum eins og alltaf,“ segir Einar, „en hins vegar er gert ráð fyrir því í þessum spá­reikn­ingum að sjáv­ar­kuld­inn geti temprað dálítið hita­stigið eins og hann gerir alla jafnan.“

Að auki er heldur minni hiti yfir land­inu og norð­an­verðu Atl­ants­hafi heldur en stundum áður. „Það hefur síðan áhrif á hit­ann á jörðu niðri þannig að sam­an­lögðu þá eru frekar litlar líkur á því að sum­arið fram að júlílokum ætli að gera ein­hverjar voða­legar rósir í hita. Það eru meiri líkur en minni á því að við munum fá hita­tölur sem eru innan við með­al­hita þess­ara mán­aða síð­ustu tíu árin eða svo.“

Vindáttirnar geta breytt öllu

Ýmsir þættir geta haft áhrif þarna á svo ekki er öll nótt úti enn. „Það sem við sjáum ekki almenni­lega fyrir er hverjar verða ríkj­andi vind­áttir í sumar,“ bendir Einar á. „Vind­átt­irnar hafa svo mikið að segja hvað varðar hita­stig og veður eftir lands­hlutum.“

Vís­bend­ingar eru um það í spám Evrópsku reikni­m­ið­stöðv­ar­innar að austan- og norð­austan áttir gætu orðið heldur tíð­ari en aðrar vind­áttir. Þýska veð­ur­stofan túlkar gögnin með öðrum hætti og telur líkur á að meira verði um suð­vestan áttir.

Íbúar suð­vest­ur­horns lands­ins ættu að von­ast eftir því að aust­an­áttir verði ráð­andi. Sú vind­átt heldur haf­gol­unni frá landi. „Vind­áttir frá landi eru bestar að þessu leyti, hvar sem er við strendur lands­ins.“

En vind­átt­irnar eru sá þáttur í lang­tíma­spánum sem háður er hvað mestri óvissu. „En þessi stóra mynd um frekar svalt umhverfi er nokkuð skýr.“

Einar segir að engin skýr merki komi fram í lang­tíma­spám um úrkomu, hvorki að hún verði minni eða meiri en að með­al­tali síð­ustu sumur. „Það er kannski til marks um óviss­una í þessu öllu saman.“

Ekkert hret í kortunum

Það er áreið­an­legra að horfa aðeins til næstu daga. Og útlitið til svo skamms tíma er ágætt. „Þetta góða vor­veður sem hefur verið heldur jafn­vel fram á morgun, föstu­dag. Síðan er að sjá dálitla hálofta­lægð sem fer yfir landið um helg­ina. Það er nú eng­inn sér­stakur kuldi sem fylgir henni en það verður meira um skúrir og gæti orðið næt­ur­frost, sér­stak­lega aðfara­nótt sunnu­dags.“

En í kjöl­farið er svo aftur að vænta hæg­láts veð­urs. „Þannig að það er ekki að sjá nein hret í kort­unum fram í næstu viku.“

Veturinn sem nú er loks lið­inn ein­kennd­ist af því hversu ill­viðra­samur hann var, segir Einar. „Það var mikið um djúpar lægðir og þegar á leið var snjó­þungt, sér­stak­lega á Norður- og Aust­ur­landi og Vest­fjörðum.“

Hann segir að vetr­ar­veðr­áttan hafi haldið alveg fram í fyrstu viku apríl. „Þá urðu skýr umskipti. Og ef við sleppum alveg við hret, sem mér finnst nú reyndar ólík­legt, þá eru þetta sér­stak­lega skörp skil vetrar og vors.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár