RÚV og Helgi Seljan hafna ásökunum Samherja

„Ný við­mið í árásum stór­fyr­ir­tækis á fjöl­miðla og ein­staka frétta­menn,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Helga Seljan og Þóru Arn­órs­dóttur sem þau sendu frá sér vegna mynd­bands Samherja. Mynd­bandið var birt á YouTube rás Samherja fyrr í dag.

Helgi Seljan var borin þungum sökum í myndbandi Samherja
Helgi Seljan var borin þungum sökum í mynd­bandi Samherja Mynd: Samsett mynd

Helgi Seljan, frétta­maður á RÚV, og Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks, sendu frá sér yfir­lýs­ingu í dag þar sem þau hafna ásök­unum sem settar eru fram í nýju mynd­bandi frá Samherja. „Í stuttu máli er ekk­ert hæft í þeim ásök­unum sem Samherji hefur sett fram. Mark­miðið með þessum drullu­mokstri er að sverta mann­orð öfl­ug­asta rann­sókn­ar­blaða­manns lands­ins og hrella fjöl­miðla,“ segir í yfir­lýs­ing­unni sem birt var á Facebook-síðu Þóru.

Auk þess hafnar RÚV því í yfir­lýs­ingu sem stofn­unin sendi frá sér fyrr í dag að Helgi hafi falsað gögn við gerð Kast­ljós­þáttar um mál­efni Samherja. „Það er lík­lega eins­dæmi að stór­fyr­ir­tæki leggi í per­sónu­lega her­ferð gegn blaða­manni með ára­tug­a­reynslu. Þessi grófa árás þjónar þeim eina til­gangi að skaða mann­orð frétta­manns RÚV, sem hefur hvorki falsað gögn né „átt við þau“ og trú­verð­ug­leika frétta­stof­unnar,“ segir í yfir­lýs­ingu RÚV sem und­ir­rituð er af Stefáni Eiríks­syni, útvarps­stjóra, og Rakel Þor­bergs­dóttur, frétta­stjóra RÚV.

Skýrslan sem aldrei var gerð

Fyrr í dag birti Samherji á YouTube rás sinni heim­ild­ar­þátt sem ber heitið Skýrslan sem aldrei var gerð. Þættinum, sem fram­leiddur er af fyr­ir­tæk­inu, er ætlað að varpa nýju ljósi á Seðla­banka­málið svo­kall­aða sem fyr­ir­tækið segir að hafi haf­ist í kjöl­far sýn­ingar Kast­ljós­þátt­ar­ins.

Í þætt­inum var sagt frá meintri sölu Samherja á karfa á und­ir­verði til dótt­ur­fé­laga sinna erlendis. Í lýs­ingu á heim­lid­ar­þætt­inum er umfjöllun Kast­ljóss sögð byggj­ast á skýrslu Verð­lags­stofu skipta­verðs sem Samherji segir að aldrei hafi verið unnin. „Nú er komið í ljós að skýrslan var aldrei unnin af Verð­lags­stofu skipta­verðs sem hefur stað­fest það í bréfi til Samherja,“ segir í áður­nefndri lýs­ingu mynd­bands­ins.

Leynileg hljóðritun Jóns Óttars

Leynileg hljóð­ritun frá fundi Jóns Óttars Ólafs­sonar og Helga Seljan er birt í þætt­inum. Helgi vann áður­nefnda umfjöllun Kast­ljóss og Jón Óttar, sem er fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, hefur starfað fyrir Samherja við inn­an­húss­rann­sókn á mál­efnum félags­ins. Í mynd­band­inu er því haldið fram að Helgi Seljan hafi átt við meinta skýrslu frá Verð­lags­stofu skipta­verðs. „Gögnin voru þannig að, þú veist, ég var búinn að þurfa að eiga við sko, hérna, skýrsl­una,“ segir Helgi á upp­tök­unni sem spiluð er í þætt­inum.

„Ef það reyn­ist rétt að Helgi Seljan hafi átt við ein­hver gögn eða ein­hverjar skýrslur. Þá er það auð­vitað bara grafal­var­legur hlutur. Að ef hann er að fara með slíkt skjal á fund stjórn­valds sem hefur vald­heim­ildir og er að bera aðila sökum, raun­veru­lega, um að hafa framið refsi­verðan verknað. Þá er hann sjálfur að ger­ast sekur um refsi­verðan verknað,“ segir Garðar Gíslason, lög­maður Samherja í Sam­herj­a­mál­inu um upp­tök­una í heim­ild­ar­þætt­inum.

Síðar í mynd­band­inu segir Jón Óttar frá því að Samherji hafi fengið bréf frá innri skoðun Verð­lags­stofn­unar þar sem sagt er frá því að ekk­ert bendi til þess að skýrslan hafi verið unnin.

Skjalið unnið af þáverandi forstjóra Verðlagsstofu

Þetta segir Helgi Seljan að sé rangt, en við­brögð hans við mynd­band­inu voru birt í áður­nefndri Facebook-færslu Þóru Arn­órs­dóttur, rit­stjóra Kveiks. Hann segir umrætt skjal hafa verið gert af þáver­andi for­stjóra Verð­lags­stofu skipta­verðs og það lagt fram í Úrskurð­ar­nefnd útvegs­manna og sjó­manna.

Hann segir það rangt og einkar bíræfið að halda því fram að skjalið hafi verið falsað. „Sund­ur­klippt ummæli um að átt hafi verið við skjalið, vísa ein­göngu til þess að áður en það var birt voru per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar, sem hefðu getað vísað á heim­ild­ar­mann, afmáðar af því. Það að snúið sé út úr því með þeim hætti sem gert er, segir alla sög­una um raun­veru­legan til­gang þess­arar mynd­banda­gerðar Þor­steins Más og félaga,“ segir Helgi.

Yfir­lýs­ing Þóru Arn­órs­dóttur og Helga Seljan má lesa hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár