„Ég er tilbúin að fá mér kettling“

Facebook-síður eru troð­fullar af aug­lýs­ingum frá fólki sem óskar eftir kett­lingum. Við­brögðin eru oft dræm en þau eru gríð­ar­leg þegar aug­lýst er eftir heim­ili fyrir kisur. Rekstr­ar­stjóri Katt­holts minnir á að um ketti þarf að hugsa vel og það í 15-20 ár.

Kettir geta gefið eigendum sínum mikið með sinni mjúku nánd.
Kettir geta gefið eig­endum sínum mikið með sinni mjúku nánd. Mynd: Myndir af Facebook-síðu Kattholts

„Mig og dóttur minni langar að bjóða einum kett­lingi í fjöl­skyld­una. Okkur langar mest í ein­hvern loð­bolta en erum þó aðal­lega að huga um ein­hvern karakter sem heillar okkur.“

„Er að leita að kisu á hvaða aldri sem er, úti- eða innikisu. Lofa ást­ríku heim­ili!“

„Er ein­hver með kett­ling gef­ins?“

„Hæhæ, ég óska eftir kett­lingi á mjög gott heim­ili.“

„Er ein­hver með kett­ling i heim­il­is­leit? Mun ávalt vera dekraður og elsk­aður.“

„ÓE ungri innikisu. Get borgað með henni.“ [ÓE þýðir „óska eftir“.]

Þau eru oft fá svörin sem ber­ast við færslum á Facebook þessa dag­ana þar sem óskað er eftir kett­lingum og full­orðnum köttum. Aðeins annað slagið birt­ist svar yfir höfuð. Sumar aug­lýs­ing­arnar eru ítrek­aðar nokkrum sinnum.

Margir virð­ast þrá að eign­ast kött. Stundum „helst ein­hvern loð­bolta“ en öðrum er slétt sama um kyn og útlit. Það vill „kisu á hvaða aldri sem er“.

[adspot]

Á kisu­síð­unum á Facebook eru við­brögð við aug­lýs­ingum um kett­linga og full­orðna ketti í heim­il­is­leit mun meiri. Stundum gríð­ar­leg. Á þriðja tug svara bár­ust til dæmis við færslu þar sem stóð: „Ég er með þrjá kett­linga fædda í júní í leit að góðu heim­ili.“

„Já, það væri æðis­legt!“ svarar einn um hæl. „Er til í einn,“ skrifar annar. „Áttu mynd?“ spyr sá þriðji. „Ég er mikil kisum­amma,“ skrifar áhuga­söm kona og bætir við: „Munum að við erum að taka kisur að okkur til fram­búðar.“

Með færslu um þriggja mán­aða kett­ling sem er í leit að heim­ili er birt mynd af grá­brönd­óttum kett­lingi með stór og for­vitin augu. Og stór eyru. „Almátt­ugur minn! Hvernig er þetta bara hægt. Þessi slær alla krútt­skala.“

Það eru engar ýkjur. Þessi litli kett­lingur er mjög sætur, liggj­andi á sæng í manna­rúmi með tand­ur­hreinar hvítar og loðnar loppur. Enda láta við­brögðin ekki á sér standa. „Ég er til­bú­inn að fá mér kett­ling,“ skrifar einn.

Í annarri aug­lýs­ingu stendur: „Þetta litla krútt er að leita að heim­ili. Hún er alveg að vera fjög­urra mán­aða.“ Mynd fylgir. Litla læðan er þrí­lit og hallar undir flatt á meðan hún horfir beint í mynda­vél­ina. „Í drauma­lit­unum okkar. Getum tekið við henni. Búin að senda þér skila­boð,“ er skrifað nær sam­stundis og aug­lýs­ingin birt­ist. „Ég vil eiga hana,“ segir í öðru svari. Alls eru svörin um 30. Reikna má með að enn fleiri sendi við­kom­andi einka­skila­boð.

Svo mörg svör ber­ast við hverri aug­lýs­ingu að þær eru sumar hverjar horfnar af síð­unum nær sam­dæg­urs.

En hvað veldur þessu katta­fári hjá land­anum og hvað ber að hafa í huga áður en loð­inn ein­stak­lingur er boð­inn vel­kom­inn í fjöl­skyld­una?

„Það er meiri eft­ir­spurn eftir köttum en áður, aðal­lega kett­lingum,“ segir Hanna Evensen, rekstr­ar­stjóri Katt­holts í sam­tali við Kjarnann. „Það er alveg sleg­ist um þá.“

Á þessum árs­tíma koma venju­lega margar kett­linga­fullar læður til Katt­holts. Engin breyt­ing hefur orðið á því í ár að sögn Hönnu. „Sumar hafa fund­ist úti en aðrar koma til okkar í heim­il­is­leit frá fólki sem ræður ekki við að hafa þær.“

Hanna segir að eft­ir­spurn eftir kett­lingum hafi alltaf verið mikil. En þar sem fólk sér ekki fram á mikil ferða­lög erlendis á næst­unni vegna COVID-far­ald­urs­ins, gæti það haft þau áhrif að fleiri finna þörf til að fá sér „nýja fjöl­skyldu­með­limi“.

Ekki algengt að fólk losi sig við ketti

Hún segir minna um það en áður að fólk fái sér kett­ling og losi sig svo við hann þegar aðstæður breyt­ast, t.d. ferða­lög standi fyrir dyrum. Margir eru orðnir með­vit­aðir um að í Katt­holti sé fínt katta­hótel þar sem dýrin hafa það náð­ugt á meðan aðrir í fjöl­skyld­unni eru á ferða­lagi.

Í Katt­holti er sá háttur hafður á að fólk sækir um að fá ketti sem þar dvelja. „Umsókn­ar­ferli fer í gang þegar fólk kemur hingað og vill ætt­leiða kött,“ útskýrir hún. „Oft er það þannig að ef það koma þrjá­tíu umsóknir um kett­ling og þær eru að okkar mati allar jafn góðar, þá er ekk­ert annað í stöð­unni fyrir okkur en að snúa umsókn­unum á hvolf og draga.“

Í umsókn­ar­ferl­inu er hvorki verið að dæma einn né annan heldur að kanna við hvaða aðstæður kött­ur­inn mun búa, t.d. hvort hann geti farið út í fram­tíð­inni og þar fram eftir göt­unum. „Hver sem er getur orðið góður katt­ar­eig­andi. En fólk verður algjör­lega að gera sér grein fyrir því að þetta er ekki skamm­tíma­lausn fyrir ein­hvern sem leið­ist í sum­ar­frí­inu. Það þarf að passa upp á ketti og gefa þeim mikla ást og hlýju í fimmtán til átján ár. Fólk verður líka að gera sér grein fyrir því að kett­ling­ur­inn verður full­orð­inn köttur sem muni lifa lengi – í sumum til­fellum í tutt­ugu ár.“

Hanna segir að flestir sem áhuga hafi á því að fá sér kött og komi í Kattholt í þeirri leit sinni geri sér grein fyrir þessu. „Mér finnst hafa orðið mjög mikil vit­und­ar­vakn­ing í sam­fé­lag­inu hvað þetta varðar. Fólk er ekki lengur að fá sér sætan kett­ling sem það síðan losar sig við þegar hann verður stór.“

Henni finnst að fólk sé almennt farið að taka meiri ábyrgð á dýr­unum sínum en áður. „Kettir gefa eig­endum sínum mikið – það er því­lík gleði sem fylgir því að hafa kisur í kringum sig.“

Fósturheimili fyrir kettlingafullar læður óskast

Í Katt­holti eru ekki bara kett­lingar í heim­il­is­leit heldur einnig eldri kisur. Núna dvelur þar til dæmis þrettán ára fress. Hann fær mikið knús frá öllum sem koma að skoða en kett­ling­arnir verða oftar fyrir val­inu en þeir eldri. „En á end­anum finnum við heim­ili fyrir þá eldri líka. Við gefum þeim allan þann tíma sem þeir þurfa þar til að full­komna fjöl­skyldan kemur og sækir um.“

Í athvarf­inu eru nú einnig nokkrar kett­linga­fullar læður sem starfs­menn Katt­holts eru að reyna að finna tíma­bundin fóst­ur­heim­ili fyrir. Eftir að hafa dvalið á fóst­ur­heim­ilum um nokkra vikna skeið eru svo fundin fram­tíð­ar­heim­ili fyrir læð­urnar og kett­ling­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár