Vísbendingar um lægri meðaleinkunn í HÍ eftir styttingu framhaldsskólanáms

Andlegri heilsu nem­enda, aðal­lega stúlkna, hefur hrakað frá því að fram­halds­skóla­námið var stytt um eitt ár. Sú þróun hófst þó tals­vert fyrr en náms­tím­anum var breytt, segir í skýrslu mennta­mála­ráð­herra um áhrif stytt­ing­ar­innar á ýmsa þætti.

Framhaldsskólinn var styttur úr fjórum árum í þrjú.
Fram­halds­skól­inn var styttur úr fjórum árum í þrjú. Mynd: EPA

Vís­bend­ingar eru um að með­al­ein­kunn nem­enda af þriggja ára stúd­ents­prófs­brautum sé örlítið lægri en hjá þeim sem lokið hafa prófi á fjög­urra ára stúd­ent­prófs­brautum. Brott­fall hefur hins vegar minnkað lítið eitt með breyt­ingu á náms­tím­anum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um árangur og áhrif þess að náms­tími til stúd­ents­prófs var styttur úr fjórum árum í þrjú. Skýrslan var birt á vef Alþingis í dag.

Nið­ur­stöður hennar sýna enn­fremur að nem­endur telja að lík­am­leg heilsa sé svipuð og und­an­farin ár en að and­legri heilsu hafi hrakað, einkum hjá stúlkum. Sú þróun hófst þó tals­vert fyrr en skipu­lagður náms­tími til stúd­ents­prófs var styttur í flestum fram­halds­skólum.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti barst beiðni frá Helgu Völu Helga­dóttur og fleiri alþing­is­mönnum um að Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra flytji Alþingi skýrslu um árangur og áhrif þess að náms­tími til stúd­ents­prófs var styttur úr fjórum árum í þrjú ár. Í beiðn­inni var farið fram á svör við sjö spurn­ingum, m.a. um áhrif á nám, líðan, brott­fall og rekstur fram­halds­skól­anna.

Hvað varðar áhrif stytt­ing­ar­innar á nám nem­enda og und­ir­bún­ing fyrir háskóla­nám kemur fram í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar að rekt­orar þriggja háskóla telji erfitt að leggja mat á áhrif stytt­ing­ar­innar á þessum tíma­punkti en þó grein­ist hjá Háskóla Íslands vís­bend­ingar um að með­al­ein­kunn nem­enda af þriggja ára stúd­ents­prófs­brautum sé örlítið lægri en hjá þeim sem lokið hafa prófi á fjög­urra ára stúd­ent­prófs­brautum.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti gerði jafn­framt athugun og nið­ur­stöður hennar gefa til kynna vís­bend­ingar um lægri með­al­ein­kunnir nem­enda sem útskrif­uð­ust úr þriggja ára skipu­lögðum náms­tíma til stúd­ents­prófs sam­an­borið við þá sem inn­rit­uð­ust í fjög­urra ára langt stúd­ents­próf upp á 0,38 til 0,5 stað­al­frá­vik.

Brottfall minnkað lítillega

Árlegt brott­hvarf nýnema hefur hins vegar minnkað um 0,5 pró­sentu­stig ef miðað er við tíma­bil fyrir og eftir breyt­ingu á náms­tíma til stúd­ents­prófs þ.e. árin 2010 til og með 2018. Með árlegu brott­hvarfi nýnema er átt við brott­hvarf nýnema haustið eftir að við­kom­andi nem­andi hefur inn­rit­ast beint úr grunn­skóla í fram­halds­skóla. Ekki liggja fyrir nið­ur­stöður um brott­hvarf ann­arra árganga.

Þá sýna nið­ur­stöður óveru­lega breyt­ingu á þátt­töku í félags- og tóm­stunda­starfi en það hefur þó aðeins farið minnk­andi frá 2013 til 2018. Sama má segja með íþrótta­iðkun fram­halds­skóla­nema á stúd­ents­prófs­brautum. Hún hefur breyst óveru­lega en hefur þó frekar auk­ist.

Nið­ur­stöð­urnar sýna nokkra aukn­ingu á atvinnu­þátt­töku fram­halds­skóla­nema með námi á tíma­bil­inu 2013–2018. Hlutfall nem­enda sem vinna með skóla hefur því hækkað frá árinu 2013.

Líkamleg heilsa svipuð

Við skoðun á áhrifum stytt­ingar náms­tíma á líðan nem­enda kom í ljós að nem­endur telja að lík­am­leg heilsa sé svipuð og und­an­farin ár en að and­legri heilsu hafi hrakað, einkum hjá stúlkum. Sú þróun hófst þó tals­vert fyrr en skipu­lagður náms­tími til stúd­ents­prófs var styttur í flestum fram­halds­skólum.

Frá árinu 2015, þegar nær allir fram­halds­skólar breyttu náms­tíma á stúd­ents­brautum í þrjú ár, hafa mæl­ingar sem tengj­ast líðan starfs­fólks og streitu­ein­kennum þró­ast í jákvæða átt. Fram­halds­skólar mæl­ast að jafn­aði með bestu líðan starfs­fólks af öllum atvinnu­greinum í könn­un­inni Stofnun árs­ins.

Hvað rekstur skól­anna varðar kemur fram í skýrsl­unni að heild­ar­fram­lög til fram­halds­skóla­stigs­ins hafi ekki lækkað þrátt fyrir fækkun nem­enda vegna stytt­ingar sem þýðir að fram­lög á hvern nem­anda í fullu námi hafa hækkað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framhaldsskóli

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár