Félag Björgólfs Thor fjármagnaði taprekstur DV árum saman

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur opin­berað að Novator var helsti bak­hjarl útgáfu­fé­lags­ins Frjálsrar fjöl­miðl­unar, sem keypti DV og tengda miðla árið 2017 og rak í miklu tapi í rúm tvö ár. Alls lán­aði Novator því að minnsta kosti 610 millj­ónir króna.

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son. Mynd: Revista Capital

Novator ehf., félag sem er að stærstu leyti í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, fjár­magn­aði mik­inn tap­rekstur Frjálsrar fjöl­miðl­unar, fyrr­ver­andi útgáfu­fé­lags DV og tengdra miðla, frá eig­enda­skiptum árið 2017 og var helsti bak­hjarl fjöl­mið­ils­ins.

Þetta kemur fram í samn­ingum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið fékk afhent þegar það fjall­aði um sam­runa Frjálsrar fjöl­miðl­unar og Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, sem til­kynnt var um í fyrra og hefur nú gengið form­lega í gegn.

Þar segir orð­rétt: „Í sam­ræmi við upp­lýs­ingar í sam­runa­skrá og árs­reikn­ingum hefur rekstur Frjálsrar fjöl­miðl­unar verið erf­iður og móð­ur­fé­lag þess Dals­dalur ehf. þurft að fjár­magna rekst­ur­inn að mestu leyti með lánsfé. Af þeim sökum óskaði Sam­keppn­is­eft­ir­litið upp­lýs­inga um lán­veit­endur félag­anna. Þann 14. jan­úar 2020 bár­ust Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu samn­ingar frá sam­runa­að­ilum. Þar kom fram að félagið Novator ehf. hefur verið eini lán­veit­andi Dalsdals og Frjálsrar fjöl­miðl­unar og helsti bak­hjarl fjöl­mið­ils­ins frá eig­enda­skiptum árið 2017.“

Hvorki Novator né Björgólfur Thor voru nokkru sinni skráðir á meðal eig­enda Frjálsrar fjöl­miðl­unar.

Tap frá upphafi

Frjáls fjöl­miðlun hóf starf­­­semi í sept­­­em­ber 2017. Félagið keypti þá fjöl­mið­l­a Pressu­­­­­sam­­­­­stæð­unn­­­­­ar: DV, DV.is, Eyj­una, Press­una, Bleikt, Birtu, Dokt­or.is, 433.is og sjón­­­­­varps­­­­­stöð­ina ÍNN. ÍNN var síðar sett í þrot.

Skráður eig­andi að öllu hlutafé í Frjálsri fjöl­miðlun var félagið Dals­dalur ehf. og eig­andi þess er skráður lög­­­mað­­ur­inn Sig­­urður G. Guð­jóns­­son.

[adspot]Á fyrstu fjórum mán­uðum starf­­sem­innar tap­aði félagið 43,6 millj­­ónum króna. Á árinu 2018 jókst tapið umtals­vert og var um 240 millj­­ónir króna. Sam­tals tap­aði fjöl­miðla­­sam­­stæðan því 283,6 millj­­ónum króna á 16 mán­uð­u­m. Ekki liggur fyrir hversu mikið tapið var 2019 em ljóst að það var umtals­vert. Sig­­urður sagði við RÚV í des­em­ber að „rekst­­ur­inn er mjög erf­ið­ur­[...]þetta er búið að vera rekið með tapi frá árinu 2017.“

Sam­­kvæmt árs­­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­miðlar skuld­aði sam­­stæðan 610,2 millj­­ónir króna í lok árs 2018. Þar af voru lang­­tíma­skuldir 506,7 millj­­ónir króna og voru að nán­­ast öllu leyti við eig­and­ann, Dals­­dal.

Eina eign Dals­dals er Frjáls fjöl­miðlun og skuld þess við félag­ið. Aldrei var greint frá því hver það væru sem fjár­­­magn­aði Dals­­dal í árs­­reikn­ingn­­um né í til­kynn­ingum til fjöl­miðla­nefndar.

Sameinast Torgi og mynda risa

Á fimmt­u­­dags­­kvöldið 13. des­em­ber 2019 greindi Kjarn­inn frá því að Torg, útgáfu­­fé­lag Frétta­­blaðs­ins, væri að kaupa DV og tengda miðla af Frjálsri fjöl­mið­l­un. Útgáfu­­fé­lögin stað­­festu svo kaupin dag­inn eft­­ir. Ástæðan fyrir kaup­unum var sögð vera erfitt rekstr­ar­um­hverfi, en Frjáls fjöl­miðlun hefur verið rekin með miklu lausu tapi frá því að félagið var stofnað til að kaupa DV og tengdra miðla árið 2017.

Með kaup­unum á DV og tengdum miðlum er Torg orðið að einu stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár