„Við erum bara hýslar, bara leiksvið fyrir veiruna“

Getur nýja kór­ónu­veiran stökk­breyst og orðið hættu­legri? Hún mun þró­ast en við getum haft áhrif á hvernig það ger­ist með því að fækka smitum. Þannig breytum við leik­svið­inu og minnkum mögu­leik­ana á að hún stökk­breyt­ist, segir Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur.

Arnar Pálsson erfðafræðingur og prófessor í lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur og pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Kristinn Ingvarsson/Háskóli Íslands

Þegar orðin stökk­breyt­ing og kór­ónu­veiran eru að finna í sömu setn­ingu rennur sjálf­sagt mörgum kalt vatn milli skinns og hör­unds. Stökk­breyt­ing er eitt­hvað sem við heyrum í vís­inda­skáld­skap – orðið er gild­is­hlaðið og í hugum margra nei­kvætt. Fyrsta hugsun okkar gæti verið að stökk­breyt­ing geti ekki leitt neitt gott af sér.

Svo það er skilj­an­legt að margar fyr­ir­spurnir sem ber­ast Vís­inda­vef Háskóla Íslands um þessar mundir snú­ist um einmitt þetta: Getur nýja kór­ónu­veiran stökk­breyst? Og ef svarið er já – getur hún þá orðið hættu­legri?

Vís­inda­menn Háskóla Íslands svara spurn­ingum sem ber­ast Vís­inda­vefnum af kost­gæfni og einn þeirra er erfða­fræð­ing­ur­inn Arnar Pálsson sem líkt og aðrir fræði­menn aflar sér stöðugt nýrra upp­lýs­inga um rann­sóknir á veirunni.

„Mér sýn­ist að fólk ótt­ist að veiran geti stökk­breyst og orðið svæsnari,“ segir Arnar. Hann er pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði og er staddur á skrif­stof­unni sinni í Öskju, nátt­úru­fræði­húsi Háskóla Íslands, þegar hann flettir í gegnum rann­sóknir sem hann hefur nýlega lesið til að svara fyr­ir­spurn blaða­manns Kjarnans.

[adspot]

Líf­upp­lýs­inga­fræði... hvað er það nú eig­in­lega?

„Líf­upp­lýs­inga­fræði er til­tölu­lega ný grein, svona tísku­orð,“ segir hann og hlær. Í grunn­inn er hann erfða­fræð­ingur og í störfum sínum rann­sakar hann meðal ann­ars þróun teg­unda eins og bleikj­unnar hér­lendis, gena­kerfi líf­vera og þar fram eftir göt­unum.

Arnar situr í rit­nefnd Vís­inda­vefs­ins og hefur síð­ustu vikur svarað fjöl­mörgum spurn­ingum í tengslum við far­aldur kór­ónu­veirunnar. Fyrst og fremst spurn­ingum um mögu­legar stökk­breyt­ingar veirunnar sem virð­ast brenna mjög á fólki.

„Íslenska orðið stökk­breyt­ing er svo­lítið óþægi­legt og vekur ugg,“ segir hann um áhuga Íslend­inga á þessum þætti. „Margir virð­ast tengja það við vís­inda­skáld­sögur þar sem allt fer á versta veg. Mér finnst mjög mik­il­vægt að slá á þessa hræðslu og þess vegna hef ég svarað ítar­lega mörgum spurn­ingum um stökk­breyt­ingar veira á Vís­inda­vefnum. Af nógu þurfum við að hafa áhyggjur svo þessar bæt­ist ekki við.“

Og svörin við algeng­ustu spurn­ing­unum eru: Já, veirur stökk­breyt­ast, en nei, þær gera okkur ekki að upp­vakn­ingum með því að taka yfir heila­starf­sem­ina og leggja okkur orð í munn. En þær geta vissu­lega verið hættu­legar. Jafnvel lífs­hættu­legar.

Stökk­breyt­ingar eru hluti af nátt­úru­legum ferlum, útskýrir Arnar. „Menn eru með tug­millj­ónir stökk­breyt­inga en flestar þeirra hafa ekki skað­leg áhrif. Í hverri kyn­frumu sem við fáum frá móður eru tutt­ugu nýjar stökk­breyt­ingar og í hverri kyn­frumu frá föður eru þær enn fleiri. Ein­hverjar stökk­breyt­ingar geta verið slæmar en við þurfum samt ekki að vera hrædd við þær.“

Á end­anum nýt­ast sumar stökk­breyt­ingar okkur, til dæmis í því að gera ens­ímin okkar betri eða gera okkur þolin gagn­vart geislun. „Stökk­breyt­ingar eru hrá­efni fyrir þróun. Flestar sem eru algengar meðal manna hafa ekki nokkur áhrif á okkur, þær gera okkur ekki betri í lífs­bar­átt­unni en ekki verri heldur.“

Vegna þess hve orðið stökk­breyt­ing er gild­is­hlaðið segir Arnar oft betra að nota orðið „erfða­breyti­leiki“.

Veirur breytast sér í hag

Í upp­hafi far­ald­urs­ins ríkti mikil óvissa. Veiran var ný og ekk­ert vitað um hvernig hún hag­aði sér. Snemma var ljóst að til voru ólíkir stofnar af henni sem er þó ekki óvænt þar sem hún tekur stöð­ugum breyt­ingum á meðan hún ferð­ast manna á milli um allan heim. Það sem olli almenn­ingi ótta var að í fyrstu voru óljósar fregnir um að ólík afbrigði hennar virt­ust valda mis­al­var­legum sjúk­dóms­ein­kennum. „En miðað við þær rann­sóknir sem hafa verið gerðar hingað til bendir ekk­ert til þess að svo sé,“ segir Arnar. „En það þýðir ekki að annað afbrigði af henni verði ekki til í fram­tíð­inni. Þá stendur eftir spurn­ingin, verður hún þá hættu­meiri eða hættu­minni fyrir okkur mann­fólkið?“

Veiran mun þró­ast. Valið verður fyrir stökk­breyt­ingum sem eru henni best í hag. Henni er ekki sér­stak­lega annt um okkur – svo mikið er víst. „Við erum bara hýslar, bara leik­svið fyrir veiruna. Þess vegna er svo mik­il­vægt að hafa í huga að allt sem við gerum breytir þessu leik­sviði. Ef við gætum að hrein­læti, forð­umst mann­marga staði og höldum fjar­lægð okkar á milli, þá hægir það á fjölgun veirunnar. Hún á þá erf­ið­ara upp­dráttar, hefur færri lík­ama til að sýkja.“

Eitt það veiga­mesta í aðgerðum okkar er að fækka smitum því í hvert skipti sem veiran fjölgar sér þá getur hún stökk­breyst. „Og í hvert skipti sem hún gerir það aukast lík­urnar á því að breyt­ingar verði, sem eru henni sjálfri í hag. En opna spurn­ingin er, hvað er henni í hag?“

Er betra fyrir veiruna að sýkja sem flesta og sem hrað­ast? Eða valda frekar langvar­andi sýk­ingu? Nú eða valda alvar­legri eða mild­ari sjúk­dómi? Í ljósi sög­unnar þá haga ólíkar veirur sér með mis­mun­andi hætti. Afleið­ingar sýk­ingar af þeirra völdum eru mis­jafnar. Þær geta valdið dauða eða þær geta valdið ein­kennum sem verða til þess að við­kom­andi veira á auð­veld­ara með að dreifa sér og fjölga. Þannig var til dæmis veiran sem olli stóru bólu. Margar bólur mynd­uð­ust á húð sýktra ein­stak­linga og þannig átti veiran greiða leið út úr einum lík­ama og í þann næsta. „Aðrar veirur velja mild­ari leið,“ segir Arnar. „Þær valda lang­vinnu kvefi en geta þá að sama skapi smitað yfir langt tíma­bil.“

Andinn er úr glasinu

Og út frá fræð­unum er því að sögn Arnars nokkuð ófyr­ir­sjá­an­legt hvaða leið hver veira fer. Þannig að það að fækka smitum manna á milli – með fjar­lægð og fleiri aðgerðum – breytum við kjör­lendi veirunnar. „En við getum ekki bara horft á þetta út frá Íslandi eða Evrópu,“ bendir hann á. „Í þessu sam­bandi skiptir máli hvað ger­ist alls staðar í heim­inum. Ef við náum ekki taum­haldi á henni í fátækt­ar­hverfum eða flótta­manna­búðum þá mun þessi veira sveima um heim­inn og koma aftur og aftur.“

Og er ekki hætta á því, nú þegar veiruna er að finna um víða ver­öld?

„Sér­fræð­ingar í smit­sjúk­dómum hafa bent á að sé tölu­verð hætta á því,“ svarar Arnar. „Andinn er úr glas­inu, því miður. Og hann er ekki ljúfur í lund.“

Þannig að saman tekið, eins og Arnar skrifar í svari sínu á Vís­inda­vefnum:

  • Stökk­breyt­ingar geta haft jákvæð, nei­kvæð eða engin áhrif á þró­un­ar­fræði­lega hæfni ein­stak­linga.
  • Það er frekar ólík­legt að stökk­breyt­ingar leiði til þess að nýja kór­ónu­veiran verði hættu­legri.
  • Ekki er ástæða til að hræð­ast stökk­breyt­ingar í veirunni sér­stak­lega því flest erfða­frá­vik eru hlut­laus.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár