Fréttablaðið hættir að koma út á mánudögum

Mest lesna dag­blað lands­ins hefur ákveðið að fækka útgáfu­dögum sínum úr sex í fimm. Blaðið mun héðan í frá ekki koma lengur út á mánu­dögum.

Frétta­blaðið mun frá og með næstu viku ekki lengur koma út á mánu­dögum. Útgáfu­dagar blaðs­ins verða því fimm í stað sex eins og nú er.

Frétta­­blaðið er frí­­blað sem er dreift í 80 þús­und ein­tök­­um á hverjum útgáfu­degi. Lestur þess hefur dreg­ist veru­lega saman á und­an­förnum ára­tug. Heilt yfir hefur hann minnkað um 40 pró­sent frá því í apríl 2010 og í síð­ustu birtu könnun Gallup sögð­ust 37,7 pró­sent lands­manna lesa blaðið. Lestur þess hefur minnkað um 55 pró­sent hjá les­endum í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára á ára­tug, og í þeim ald­urs­hópi er lestur blaðs­ins nú 28,9 pró­sent.

Í frétt á vef blaðs­ins segir að þetta sé liður í nauð­syn­legri hag­ræð­ingu í rekstri fjöl­miðla Torgs, sem gefur út Frétta­blaðið, Mark­að­inn, DV og tengda vef­miðla. Þar er haft eftir Jóhönnu Helgu Við­ars­dóttur, for­stjóra Torgs, að boð­aðar styrkt­ar­greiðslur til fjöl­miðla, sem kynntar voru á þriðju­dag, séu til bóta en breyti stöðu sam­stæð­unnar ekki veru­lega. „Nú eigum við eftir að sjá hvernig fyr­ir­hug­aður rekstr­ar­styrkur stjórn­valda til einka­rek­inna fjöl­miðla mun verður nánar útfærður og sömu­leiðis er þing­legri með­ferð máls­ins er ekki lokið. Það er því óvíst hvernig nið­ur­staðan end­an­lega verður. Við teljum hins vegar ekki hjá því kom­ist að fækka útgáfu­dögum um einn í viku. Ég vil taka fram að engar upp­sagnir fylgja þess­ari aðgerð nú um mán­að­ar­mótin.“

[adspot]Miklar svipt­ingar hafa verið hjá Torgi und­an­farin miss­eri. Helgi Magn­ús­son fjár­festir keypti helm­ing­inn í útgáfu­fé­lag­inu í fyrra­sumar. Í októ­ber 2019 var svo greint frá því að hann, og með­fjár­festar hans hefðu keypt hinn helm­ing­inn og sam­hliða yrði sjón­varps­stöð­inni Hring­braut rennt inn í sam­stæð­una. Í des­em­ber var svo greint frá því að Torg hefði keypt DV og tengda miðla.

Helgi á í dag 82 pró­sent hlut í Torgi. Aðrir eig­endur eig­anda útgáfu­fé­lags­ins, félags­ins HFB-77 ehf., eru Sig­urður Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Hring­brautar og við­skipta­fé­lagi Helga til margra ára, með tíu pró­sent hlut, Jón G. Þór­is­son, annar rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, með fimm pró­sent hlut, og Guð­mundur Örn Jóhanns­son, fyrr­ver­andi sjón­varps­stjóri Hring­brautar og nú fram­kvæmda­stjóri sölu, mark­aðs­­mála og dag­­skrár­­gerðar hjá Torg­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár