Þrjár lexíur frá Kanarí

Mik­il­vægur lær­dómur úr hjóla­ferð á Kanarí­eyjum í febr­úar nýt­ist vel í ein­angr­un­inni sem fylgir kór­ónu­veirunni. Það náði eng­inn að æfa fyrir COVID19-ver­öld­ina sem við búum nú í, við erum öll nýgræð­ingar í því að takast á við þetta.

Brekkurnar á Kanarí eru langar og krefjandi.
Brekk­urnar á Kanarí eru langar og krefj­andi. Mynd: Eyrún Magnúsdóttir

Kanarí­eyjar í byrjun febr­úar. Það hljómar svosem ekki sem sér­stök svað­il­för að skella sér í viku til Kanarí, enda stundum eins og hálf þjóðin sæki á þær slóðir yfir dimm­ustu mán­uð­ina. En í febr­úar síð­ast­liðnum var runnin upp stundin sem ég hafði beðið eftir í vetur — hjóla­ferðin til Kanarí. Ég afrek­aði það nefni­lega að skrá mig í þrí­þraut­ar­fé­lag í haust. Gleymdi svo að mestu að mæta á æfingar í vetur, mætti á nokkrar hjóla­æf­ingar í nóv­em­ber og des­em­ber, keypti mér samt „treiner“ til að nota heima (svona græju sem hægt er að nota til að breyta venju­legu hjóli í þrek­hjól), próf­aði hann yfir nokkrum Friends-þáttum. Svo var hann fyrir þegar jóla­tréð þurfti sitt pláss í stof­unni þannig að ég pakk­aði honum inn í skáp. Gleymdi honum þar. 

En hjóla­ferðin, með þrí­þraut­ar­fé­lag­inu, var á dag­skrá og þar sem ég hafði greitt stað­fest­ing­ar­gjald að hausti var ekk­ert annað en að láta sig hafa það að borga rest snemma árs og þykj­ast svo æfa fyrir hana. Gleymdi því samt eig­in­lega líka. Svo nálg­að­ist ferðin óðum þannig að ég pant­aði hjóla­dress á net­inu og fékk sent heim, hafði keypt hjóla­skó fyrr um vet­ur­inn — til að nota á trein­ernum.

Sirka viku fyrir brott­för var ég því klár í slag­inn. Búin að leigja hjól á fínni hjóla­leigu á Kanarí, klippa mið­ana af glæ­nýju og ónot­uðu hjóla­föt­unum og kom­ast að því hvernig átti að festa klít­ana undir hjóla­skóna. Mér var orðið ljóst að ég myndi ekki æfa mikið fyrir ferð­ina úr þessu, það hafði alveg farist fyrir. Ég varð því að treysta á að grunn­formið myndi fleyta mér áfram og svo von­aði ég bara að ég næði tökum á því að vera í skóm sem eru fastir við pedal­ana og hjóli með hrúta­stýri (eins og það hét í minni barn­æsku) áður en allir í ferð­inni myndu fatta að ég hefði reynslu af hvor­ugu. Var sem­sagt að stíga á „racer“ í fyrsta sinn og hafði aldrei prófað að vera í klíta­skóm nema á treiner — öll þrjú skiptin sem ég próf­aði hann áður en hann vék fyrir jóla­trénu.

Flogið út á milli lægða

Flug­ferðin gekk vel, við komumst út á milli lægða. Reyndar var ég innst inni með fing­urna kross­lagða og von­aði að öllu saman yrði frestað — þá gæti ég kannski æft! Upp­haf­lega flugið féll reyndar niður vegna veð­urs en það tókst að koma öllum á áfanga­stað. Ég kom degi síðar en hinir, missti úr einn hjóla­dag. Ég var hálf­part­inn fegin.

Kanarí tók á móti mér með sól og blíðu eins og vera ber. Hótelið frá­bært og hóp­ur­inn bauð mig hjart­an­lega vel­komna. Þau vissu að ég var ekki reyndur hjól­ari, en ég hélt því þó fyrir mig að ég hefði hrein­lega aldrei prófað neitt annað en fjalla­hjól. Racer væri mér fram­andi tæki sem og klíta­skórnir. Einn far­ar­stjór­anna hafði tjáð mér að hjóla­dagur tvö, sem var fyrsti dag­ur­inn minn, yrði „léttur og þægi­legur.“ Ég hélt það nú, ég væri til­búin að léttan hjóla­túr.

Ein­hverra hluta vegna var plan­inu svo breytt á síð­ustu stundu, létti dag­ur­inn færður og dag­ur­inn sem ég byrj­aði á var 72 kíló­metra leið inn eftir gili og upp bratta brekku. Reyndar er aldrei talað um brekkur, heldur býður hjóla­l­ingóið manni að tala um klifur. Í þessum túr var sem­sagt helj­ar­innar klifur, það lengsta var 9 kíló­metrar. Semsagt 9 kíló­metrar upp, upp, upp. Þar sem ég hélt fyrst að ég væri eitt­hvað að mis­skilja skiltið sem á stóð að brekkan framundan væri 9 kíló­metrar var ég ekk­ert að stressa mig mikið á þessu, það gat ekki verið að við ættum að hjóla upp bratta brekku 9 kíló­metra leið. En jú, það var víst málið. 

Upp brekk­una komst ég, að vísu lang­síð­ust, en það var allt í lagi. Til­finn­ingin var mögnuð. Eftir dag­inn, kíló­metrana 72, var ég vissu­lega þreytt en gleðin yfir­gnæfði þó þreyt­una. Fjórir hjóla­dagar og einn frí­dagur áður en kom að brott­för. Ég hjólaði 205 kíló­metra áður en ég flaug heim aftur, í sól og hita og dásam­legum félags­skap. Við flugum út á milli lægða og komumst heim rétt fyrir sand­storm. Allt gekk eins og í sögu og það var ekki fyrr en við komum heim að farið var að tala af meiri alvöru um kór­ónu­veiruna, hún var ekki orð­inn stór hluti af til­ver­unni fyrr.

Það sem ég lærði

Örfáum vikum síðar varð ljóst að utan­lands­ferðir yrðu ekki fleiri á næst­unni. Hjóla­ferðin til Kanarí hafði verið ansi sögu­leg ferð. Það sem ég lærði af þess­ari ferð var aðal­lega þrennt. Þrjár mik­il­vægar lex­íur sem koma sér vel núna í COVID-ver­öld­inni sem við höfum öll stigið inn í skyndi­lega:

Númer eitt: Ég get alltaf miklu meira en ég held

Ég velti því alvar­lega fyrir mér þegar ég pant­aði hjólið á hjóla­leig­unni að taka raf­magns­hjól, því ég var svo viss um að ég kæm­ist ekk­ert upp þessar brekkur og myndi tefja hina. Þótt mót­or­inn hefði ábyggi­lega hjálpað þá var svo miklu skemmti­legra að hjóla á sams konar hjóli og hinir. Ég komst alveg allar hjóla­leið­irnar sem lagt var upp með, þótt æfinga­prógram­mið hefði farið for­görðum (ég kenni jóla­trénu um!). Ég var vissu­lega langoft­ast síð­ust, en ég var líka búin að æfa mig minnst svo það var eðli­legt. En ég komst allar brekk­urnar, ég hjólaði sömu leiðir og hinir, bara aðeins hægar. En ég gat meira en mig grun­aði fyr­ir­fram.

Númer tvö: Fólk er almennt til í að sýna hjálpsemi þegar það sér að einhver þarf aðstoð

Fyr­ir­fram hafði ég miklar áhyggjur af öllum hinum, öllu góða fólk­inu sem var þarna með mér. Þau myndu ekki nenna að hafa mig í eft­ir­dragi. Ég komst að því í ferð­inni að stærstur hluti hóps­ins var að æfa fyrir ýmsar Ironman-keppnir út um allan heim (sem nú er reyndar búið að fella niður eins og aðra íþrótta­við­burði). Þrátt fyrir að vera að kepp­ast við að koma sér í form og raða inn sem flestum kíló­metrum þá voru allir til í að aðstoða nýgræð­ing­ana. Þjálf­ar­arnir skipt­ust á að sjá um okkur sem vorum aft­ast, gefa góð ráð og hvetja áfram yfir erf­ið­ustu kafl­ana. Þeir allra sterk­ustu í hópnum komu iðu­lega til baka (voru auð­vitað langt á undan) til að spjalla og veita félags­skap og hvatn­ingu inn á milli.

Númer þrjú: Það er ekki hægt að stytta sér leið upp brekku

Ef þú á annað borð byrjar á brattri brekku (klifri á hjóla­máli) þá þarftu að klára hana. Það er ekki hægt að stytta sér leið upp brekku, en það er þó hægt að beita ýmsum aðferðum til að auð­velda klifrið. Til dæmis er hægt að hjóla í sikksakk, það léttir á um stund. Svo er líka hægt að syngja, í hljóði eða upp­hátt eftir því hversu margir eru í kring. En aðal­málið til að létta sér leið­ina er að skipta brekkunni upp í kafla. Hugsa bara um að kom­ast að næsta staur, næsta tré eða næstu beygju. Þegar þeim áfanga er náð er hægt að huga að þeim næsta. Sama hversu langan tíma tók að kom­ast upp og hversu mik­ill brun­inn í lær­unum var á leið­inni upp, þá var það alltaf þess virði þegar á topp­inn var komið. Þá blasti stór­kost­legt útsýni við og til­finn­ingin var eins og ég gæti allt, væri algjör­lega ósigr­andi.

Af hverju skiptir þetta máli núna?

Lex­í­urnar úr hjóla­ferð­inni eru mér sér­stak­lega hug­leiknar núna, þegar við öll erum í aðstæðum sem við höfum ekki lent í áður. Við erum öll byrj­endur, nýgræð­ingar í þess­ari veg­ferð sem útbreiðsla kór­ónu­veirunnar færir okkur og lærum eitt­hvað nýtt á hverjum degi.

Hugtök sem voru okkur fram­andi fyrir örfáum vikum eru orðin okkur töm. Mig rekur ekki minni til að hafa nokkru sinni, fyrr en í mars 2020, átt sam­töl við fólk um sýna­tökupinna, sótt­kví, smitrakn­ingu eða sam­komu­bann. Nú eru þetta orð sem skyndi­lega eru í mik­illi notkun og við hendum inn í sam­ræður eins og ekk­ert sé eðli­legra.

Kanarí-vís­dóm­ur­inn minn úr hjóla­ferð­inni með þrí­þraut­ar­fé­lag­inu, sem reynd­ist síð­asta utan­lands­ferðin í ein­hvern tíma, á því vel við núna þegar við þurfum öll að treysta á að grunn­formið fleyti okkur áfram upp hverja brekk­una á fætur annarri. Rifjum þær upp aftur.

Númer eitt: Ég get alltaf miklu meira en ég held

COVID-ver­öldin skikkar okkur öll til að gera meira. Við erum í krefj­andi aðstæðum og þurfum að standa okkur. Það náði bók­staf­lega eng­inn að æfa sig áður en þetta skall á. Það er einmitt í slíkum aðstæðum sem við komumst við að því að við getum meira en við héldum.

Númer tvö: Fólk er almennt til í að sýna hjálpsemi þegar það sér að einhver þarf aðstoð

Sjaldan höfum við séð það jafn greini­lega og nú, þegar margir eru fastir í miðri brekku og finnst eins og hún muni engan enda taka. Náunga­kær­leikur og hjálp­semi eru sem betur fer á upp­leið. Það er alltaf ein­hver sem er kom­inn lengra upp brekk­una sem er til í að stíga nokkur skref til baka og lyfta þeim sem hægar fara.

Númer þrjú: Það er ekki hægt að stytta sér leið upp brekku

Það eina sem hægt er að gera er að kafla­skipta brekkunni í hug­anum, svo hefst klifrið hvort sem við erum til­búin í það eða ekki. Það er þó gott að taka því rólega, syngja jafn­vel með sjálfum sér og hafa í huga að hver ein­asta brekka breytir líf­inu smá­vegis.

Þegar við komumst upp þá blasir útsýnið við og okkur líður eins og við getum allt. Við sjáum og vitum að það er eitt­hvað betra framundan og minn­ingin um erf­ið­leik­ana neðar í brekkunni dofnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár