Smitum enn að fjölga á Vestfjörðum

Alls eru nú 74 til­felli COVID-19 skráð á Vest­fjörðum. Tvö ný smit voru greind í gær, bæði hjá fólki sem hefur tengsl við hjúkr­un­ar­heim­ilið Berg.

Smitum heldur áfram að fjölga á norðanverðum Vestfjörðum.
Smitum heldur áfram að fjölga á norð­an­verðum Vest­fjörðum. Mynd: Lögreglan á Vestfjörðum

Tveir ein­stak­lingar, báðir með tengsl við hjúkr­un­ar­heim­ilið Berg í Bol­ung­ar­vík, greindust með COVID-19 í gær. Smitum heldur áfram að fjölga á norð­an­verðum Vest­fjörðum.

Alls eru nú 74 til­felli sjúk­dóms­ins skráð í umdæm­inu öllu, segir í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Vest­fjörðum. Hafa ber þó í huga að umrædd taln­ing byggir á lög­heim­il­is­skrán­ingu við­kom­andi, sem kann að dvelja utan umdæm­is­ins. Þannig er því til að mynda háttað með nýskráð til­felli í Vest­ur­byggð og hið sama á við um skráða til­vikið í Hólmavík/Strandir.

Ljóst er að smitin eru í vexti, segir í til­kynn­ingu lög­regl­unnar. Eins og staðan er í dag er sjúk­dóm­ur­inn bund­inn við norð­an­verða Vest­firði. Engin virk smit eru í Reyk­hóla­hreppi, Hólmavík, Árnes­hreppi og Kald­rana­nes­hreppi og hið sama á við um Vest­ur­byggð og Tálkna­fjörð.

„Enn og aftur er brýnt fyrir öllum sem finna fyrir flensu­ein­kennum að halda sig heima og hafa sam­band við sína heilsu­gæslu­stöð, sjá heima­síður þeirra, www.hvest.is og www.hve.is Læknir eða annar heil­brigð­is­starfs­maður mun veita ráð og ákveða sýna­töku.“

Hertar reglur áfram í gildi

Aðgerða­stjórn almanna­varna á Vest­fjörðum hefur ákveðið í sam­ráði við sótt­varna­lækni að halda óbreyttu fyr­ir­komu­lagi sótt­varna á norð­an­verðum Vest­fjörðum til að minnsta kosti 26. apríl.

Í því felst að:

Leik- og grunn­skólar á norð­an­verðum Vest­fjörðum verði áfram lok­aðir. Þó skulu börn á for­gangs­listum fá vistun á leik­skólum og 1. og 2. bekkjum grunn­skóla.

Sam­komu­bann verði miðað við fimm manns (þetta á þó ekki við um fjöl­skyldur sem búa á sama heim­ili).

Fjöldi við­skipta­vina í stærri versl­unum (>150 fer­metrar) sé að hámarki 30 á hverjum tíma.

„Það er mat aðgerða­stjórnar að ofan­greindar aðgerðir séu að skila árangri,“ segir í til­kynn­ingu. „Enn eru þó að grein­ast ný smit og all­margir ein­stak­lingar í sam­fé­lag­inu eru veikir. Það er því afar brýnt að fólk haldi sig heima, haldi sam­skipta­fjar­lægð, tak­marki ferðir sínar og fylgi leið­bein­ingum þessum.“

Aðgerða­stjórn fundar og metur stöð­una á degi hverjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár